20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1872 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)
1. mál, fjárlög 1981
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Það er það langt komið atkvgr. um till. þessa að það liggur ljóst fyrir að stjórnarliðið hefur ákveðið að vanskil Skallagríms hf. við ríkisábyrgðasjóð verði áfram í óreiðu. Hæstv. fjmrh. blaðrar um það, að eðlilegt sé að unnið sé að lausn þessa máls, en vill þó ekki heimild til þess að vinna að því. Hvað þýðir í raun og veru að syn ja og fella hér heimild til þess að vinna að þessu máli? Það þýðir blátt áfram það, að hann hefur enga heimild til þess, það þýðir, að honum er bannað að vinna að úrlausn þessa máls. Hv. þm. Stefán Valgeirsson finnur ráð til þess að fella þessa till., og það er það, að hann veit um aðra meiri óreiðu annars staðar. Ég hef aldrei orðið vitni að vitlausari afgreiðstu en þessari hér. Ég segi já.