20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1874 í B-deild Alþingistíðinda. (2108)

1. mál, fjárlög 1981

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Með því, að þessi till. verði felld og hæstv. ríkisstj. dr. Gunnars Thoroddsens nái sínum markmiðum fram, hefur eignarskattur hækkað um a.m.k. 270% síðan dr. Gunnar Thoroddsen komst til valda. Það er fróðlegt. Hér er enn stefnt að því, að þessi frjálslyndi maður, fulltrúi frjálslyndisins í landinu, seilist í þurftartekjur almennings með tekjuskattinum einnig. Það er að sjálfsögðu eftirtektarvert hvernig menn breytast komnir undir sjötugt. Ég man að Gladstone breyttist í þveröfuga átt. (Gripið fram í.) Ég er trúr stefnu Sjálfstfl., þeirri stefnu, sem Sjálfstfl. hefur m.a. komið fram innan Alþýðusambands Íslands í þeirri skattastefnu sem þar var mótuð á skattalagaráðstefnu sem haldin var fyrir nokkrum árum og núv. varaforseti Alþýðusambandsins barðist mest fyrir. Ég segi já.