29.10.1980
Neðri deild: 7. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (212)
36. mál, tímabundið innflutningsgjald á sælgæti og kex
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Hér er á ferðinni frv. til l. til staðfestingar á brbl. Áður en ég segi nokkur orð um það vil ég bjóða hæstv. fjmrh. velkominn á þingfundinn. Það er ánægjulegt að sjá hann hér á Alþ. í dag. (Fjmrh.: Hann er alltaf hér.) Hann sá sér ekki fært að koma í gær á fund í Sþ. til að svara ýmsum fsp. sem þar var til hans beint í sambandi við málefni Flugleiða. (Gripið fram í: Alþb. átti hérna málsvara þá. — Gripið fram í: Var það ekki formaður þingflokks Framsfl.?)
Það er annað atriði sem mig langar til að ræða líka örlítið. Það er um form á slíkum lagafrv., en eins og menn sjá á þskj. 37, er grg., sem fylgir þessu lagafrv., nákvæmlega eins og lagafrv. sjálft, vegna þess að í grg. er ekkert annað en brbl. Þetta mun vera venja, en ég vek athygli á því, að segja má að grg. sé alveg óþörf. Það væri mun betri aðferð, ef hægt væri að koma því á, að í aths. kæmu fram skýringar við einstakar greinar, en ekki farið með aths. eins og gert er í þeim frv. sem koma fram á hv. Alþ. til staðfestingar á brbl. Þetta er ekki sérstakt um þetta frv. Það gildir um flestöll ef ekki öll lagafrv. til staðfestingar á brbl.
Það er ljóst að hér er á ferðinni mál sem stríðir gegn ákveðnu grundvallaratriði, sem er fríverslun. Þess vegna er ástæða til að staldra við og huga aðeins að þessu máli.
Mér er kunnugt um að í ýmsum Evrópulöndum er um að ræða innflutningstolla af sælgæti sem helgast af landbúnaðarstefnu þessara landa því að víða er sælgæti, einkum súkkulaðivörur talið til meiri háttar landbúnaðarframleiðslu. Má nefna t.d. Sviss í þessu sambandi.
Það þarf ekki að rifja upp vandamál sælgætisiðnaðarins hér á landi, þau eru öllum kunn. Ástæðan hefur að miklu leyti verið sú, að þessi iðnaður hefur ekki fengið að þróast. Hann hefur ekki fengið að byggja sig þannig upp að hann sé samkeppnisfær við erlendan iðnað. Má t.d. nefna í því sambandi að á sínum tíma þurfti íslenskur sælgætisiðnaður að borga upp undir fimmfalt heimsmarkaðsverð á mjólkurdufti sem notað er við súkkulaðiframleiðslu.
Á árinu 1977 var gerð tilraun hér á hv. Alþ. til þess að koma á þeirri skipan að sett yrði 40% innflutningsgjald, sem átti ekki að vera tímabundið, á innflutt sælgæti. Það frv. dagaði uppi og kom aldrei frá hv. fjh.- og viðskn. Nd., sem fékk málið til meðferðar á þeim tíma.
Sá háttur hefur verið á um innflutt sælgæti, að ríkt hefur svokallað kvótakerfi og hafa innflytjendur fengið ákveðinn kvóta í sinn hlut. Það má öllum ljóst vera að slíkt fyrirkomulag er ekki gott til lengdar, einkum og sér í lagi þar sem sú gagnrýni kom fram að ákveðnir aðilar hefðu hyglað innflytjendum í þessu kvótakerfi, en slíkt vill ávallt eiga sér stað þar sem um er að ræða skömmtun, höft, boð og bönn, eins og allir þekkja. Hins vegar skeði það í des. s.l., að viðskrn. tilkynnti munnlega íslenskum framleiðendum að kvótinn yrði tekinn af og engir tollar yrðu á innfluttu sælgæti frá og með 1. apríl. Í reynd gerðist það hins vegar, að bankarnir afgreiddu allar innflutningsbeiðnir frá 1. jan. Þeim þótti ekki stætt á því að draga á langinn beiðnir um yfirfærslu þar sem svo stutt var til þess tíma að kvótakerfið yrði afnumið.
Það er rétt, sem kom fram í ræðu hæstv. ráðh., að þessi snöggu umskipti urðu til þess að ýmis íslensk fyrirtæki áttu um sárt að binda. Þannig hætti starfsemi Lindu um skeið, verksmiðjan Freyja átti í erfiðleikum og sælgætisgerðin Ópal var sett á söluskrá. Ástæðan er einfaldlega sú, að fyrirtæki, sem hafa háð baráttu innbyrðis án þess að taka tillit til innflutts sælgætis, hefur dagað uppi í þróuninni, ekki fengið tækifæri til að berjast í eðlilegri samkeppni og í raun verið gert erfitt fyrir vegna þess að opinberir aðilar hafa ekki staðið við sinn hluta þess samkomulags sem gert var við iðnaðinn á sínum tíma við inngönguna í Fríverslunarbandalagið.
Í framhaldi af þessu beitti Félag ísl. iðnrekenda sér fyrir ýmsum aðgerðum, sem fyrst og fremst miðuðu að því að innflutt sælgæti lyti sömu reglum og sælgæti sem framleitt er hér á landi, og fóru fram bréfaskriftir á milli Félags ísl. iðnrekenda og viðskrn. annarsvegar og iðnrn. hins vegar vegna þess máls. Allan þennan tíma starfaði hins vegar nefnd til að kanna málið og gera tillögur um hvernig bregðast skyldi við þegar áðurgreindir erfiðleikar kæmu fram hjá mörgum fyrirtækjum í sælgætisiðnaðinum. Ýmsar skoðanir voru uppi í nefndinni. Það skal tekið skýrt fram, að það hefur verið sjónarmið iðnrekenda og meira að segja ýmissa þeirra, sem í sælgætisiðnaðinum hafa starfað, að það ætti ekki að koma til greina að leggja innflutningstoll á innflutt sælgæti. Niðurstaðan varð hins vegar sú, að nefndin samþ. að lagður yrði á þessi 40% innflutningstollur. Rökstuðningurinn eða réttlætingin — sem kannske ætti frekar að segja — var sú, að þessari grein iðnaðarins hefði verið meinað um aðlögum og það væri þess vegna ekki úr vegi að gefa henni nú 18 mánaða tækifæri til aðlögunar. Þetta vekur hins vegar upp þær spurningar, hvernig að þessum málum hafi verið staðið í þau 10 ár sem liðin eru síðan við gengum í EFTA. Þetta vekur jafnframt spurningar um það, hvernig við verður brugðist þegar aðrar greinar iðnaðarins koma og biðja um sams konar aðgerðir. Má þá nefna t. d. húsgagnaiðnaðinn sem hefur verið í vandræðum m.a. vegna þess að ríkisstjórnir ýmissa Evrópulanda hafa styrkt þennan iðnað beint með ýmsum hætti og þannig má kannske segja að þær þjóðir hafi flutt út sitt atvinnuleysi til annarra landa.
Aðalatriði þessa máls er það, að íslenskum iðnaði verði tryggð sömu starfsskilyrði og iðnaði eru tryggð í öðrum löndum, en það hefur ekki verið þannig hér á landi. Í öðru lagi þarf að koma hér á virðisaukaskatti í stað söluskatts. — Ég vil nota tækifærið til þess að spyrja hæstv. ráðh. að því hvenær efndir verða á stjórnarsáttmálanum, en þar er tekið fram að hæstv. ríkisstj. stefni að því að koma á skatti með virðisaukasniði í stað söluskatts. — Og í þriðja tagi verður að vera tryggt að kvaðir séu ekki meiri á sælgæti, sem framleitt er hér á landi, en hinu, sem inn er flutt. — [Fundarhlé.]
Herra forseti. Ég var að því kominn að spyrja hæstv. fjmrh. einnar spurningar, sem ég vildi gjarnan fá svar við á þessum fundi ef hægt er, þar sem það kemur þessu máli beinlínis afar mikið við.
Ég minntist á það, að eitt af þeim starfsskilyrðum, sem yrði að fullnægja fyrir íslenskan samkeppnisiðnað, væri að innlenda hráefnið yrði á heimsmarkaðsverði, og hins vegar, að aðflutningsgjöld af aðföngum til iðnaðar yrðu felld niður. Þannig var, að á 100. löggjafarþinginu var lagt fram frv. til l. til breyt. á lögum um tollskrá. Þetta frv. var flutt af mér og þremur öðrum hv. þm. úr öllum stjórnmálaflokkum og gerði ráð fyrir að felld yrðu niður aðflutningsgjöld af aðföngum til iðnaðar. Þetta frv. var ekki samþ. á Alþ., en fór til hæstv. fjh.- og viðskn. sem lagði til að frv. yrði vísað til ríkisstj., sem síðar var samþykkt.
Í nál. fjh.- og viðskn. á þeim tíma segir m. a., með leyfi forseta:
„Nefndin er sammála um að markmiði þessu þurfi að ná. Efni frv. er nánast samhljóða niðurstöðu samstarfsnefndar um iðnaðarmál, en sú nefnd hefur starfað á vegum iðnrn. Flutningsmenn frv. eru þm. úr öllum þingflokkum. Því sýnist víðtæk samstaða vera um efni frv.
Þar sem n. er ljóst, að ýmsir framkvæmdaörðugleikar muni verða við framkvæmd slíks ákvæðis í lögum, eins og frvgr. er orðuð, leggur n. til að frv. verði vísað til ríkisstj., sem sjái um að frv. verði samið um þetta efni og flutt á næsta þingi, þar sem með því verði best tryggð örugg framkvæmd málsins.“
Undir þetta rita allir nm. í fjh.- og viðskn. og þ. á m. eru hv. þáv. þm. Lúðvík Jósepsson og Kjartan Ólafsson. Síðan hef ég spurst fyrir um þetta mál á Alþ. Þá var ráðherra hv, þm. Sighvatur Björgvinsson. Í svari hans kom fram að unnið væri að þessu máli hjá fjmrn. og málinu hefði verið skipt í tvo hluta: Annars vegar þann hluta, sem sneri að auglýsingu um þetta mál. Mér er kunnugt um að hæstv. iðnrh. hefur í fréttatilkynningu sagt að það mál sé nánast tilbúið, en ekki alveg tilbúið. Hins vegar kom fram í svari þáv. hæstv. fjmrh. að unnið væri að lagafrv. eða drögum. Nú langar mig til að spyrja hæstv. fjmrh. hvernig þessari vinnu miði áfram. Ástæðan er sú, að þetta frv. var flutt til að gera íslenskan iðnað samkeppnisfæran og fullnægja þeim skilyrðum sem sett
voru af hálfu iðnrekenda á sínum tíma og ríkisstj. Íslands féllst á. Mér þætti vænt um ef hæstv: fjmrh. svaraði því í tilefni af umr. um það mál, sem hér liggur fyrir, hvernig þetta mál stendur.
Að öðru leyti vil ég segja að þetta mál, sem til umr. er, þarf að sjálfsögðu að skoða í n. með tilliti til þess annars vegar, að það hlýtur að vera grundvallarstefna að um fríverslun sé að ræða, og hins vegar, að hér er aðeins um bráðabirgðaráðstafanir að ræða og þess vegna þurfi, eins og reyndar hefur verið unnið að, að þróa þennan iðnað þannig að hann geti orðið samkeppnisfær þegar þessu tímabili lýkur.