26.01.1981
Sameinað þing: 40. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1891 í B-deild Alþingistíðinda. (2126)

Umræður utan dagskrár

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Það er eflaust traustvekjandi fyrir marga og þjóðin fagnar því, að allt það, sem ekki er bannað með sáttmála í milli stjórnarflokka, er leyft og það er á ráðherravaldi einu að ákveða hvað gert er og hvað ekki er gert ef það er ekki bannað orðrétt í stjórnarsáttmála. En það er ekki ástæðan fyrir því að ég kem upp í ræðustól, þ.e. almenn hætta á þessu augnabliki fyrir íslenskan iðnað og uppsagnir á fólki í íslenskum iðnaði og fleira því um líkt.

Einhvern tíma um helgina, eða hvort það var rétt fyrir helgina, hlustaði ég á samtal við forstjóra Járnblendiverksmiðjunnar og ég las frétt í Morgunblaðinu, með leyfi forseta, 23. jan., svo hljóðandi:

„Raforkusala Landsvirkjunar enn skert“ er fyrirsögnin.

„Yfirborð Þórisvatns fer enn lækkandi og á fundi stjórnar Landsvirkjunar í gær var ákveðið-að grípa til frekari raforkuskömmtunar.

Halldór Jónatansson aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvirkjunar tjáði Morgunblaðinu í gærkvöldi að ekki væri búið að ákveða hvaða kaupenda þessi viðbótarskerðing næði til, en á næstu dögum yrðu fundir með fulltrúum almenningsrafveitna og stóriðjufyrirtækja um það mál.“

Síðan heldur greinin áfram og er rætt um orkuskerðinguna sem verður til hinna ýmsu aðila, bæði hins almenna markaðar og eins álversins, járnblendiverksmiðju og áburðarverksmiðju, sem hafa verulega dregið úr framleiðslu sinni vegna orkuskömmtunar, og grípa hefur þurft til skömmtunar til almenningsrafveitna með þeim afleiðingum að framleiða þarf rafmagn með olíuvélum, sem er mjög kostnaðarsamt. Allt verður þetta til að skapa hættuástand og aukin vandamál fyrir íslenskan iðnað og íslenskan atvinnumarkað.

Ég fékk þær fregnir um helgina að stjórn Landsvirkjunar og aðrir aðilar, sem til eru kallaðir, hefðu verið boðaðir á fund í morgun til að ræða þessi mál. Eru þessi mál rædd á þeim grundvelli, að mér skilst, —ég hef engar áreiðanlegar heimildir, — að framleiða verði meiri raforku með aðstoð innfluttrar orku, þ.e. dýru olíuverði, og velta yfir á almenning kostnaði af því að hin erlend — íslensku stóriðjuver, sem hér eru, járnblendiverksmiðjan, álverksmiðjan og jafnvel áburðarverksmiðjan, hafi þar af leiðandi ódýrari raforku til framleiðslu sinnar á þessu vandræðatímabili en raforkan í raun og veru kostar. Þetta er náttúrlega mjög alvarlegt því að það lendir ekki einungis á fólkinu í landinu, heldur á iðnfyrirtækjum, sem þegar eru í vandræðum, og öðrum atvinnurekstri. Ég undirstrika, að ef þetta gerist er það alveg ný stefnumótun í raforkusölu og raforkuframleiðslu. Ég óska eftir því, að engin slík ákvörðun verði tekin neins staðar úti í bæ, heldur verði þessi stefnumótun samþykkt og staðfest af eigendum Landsvirkjunar, sem eru að hálfu ríkið og hins vegar Reykjavíkurborg, og stjórn Landsvirkjunar, sem skipuð er fulltrúum kjörnum af Alþingi og borgarstjórn. Ég óska hér með eftir því, að þegar þessi nefnd, sem ég hef fregnað að stóð til að hefði sinn fyrsta fund í morgun um þessi mál, hefur komist að einhverri niðurstöðu taki hún engar ákvarðanir sem verða íþyngjandi fyrir fólkið í landinu, heldur komi mátið á dagskrá Alþingis og verði rætt. Ég mun óska eftir því, að það komi á dagskrá í borgarstjórn Reykjavíkur og verði þar rætt og að eigendur Landsvirkjunar, Alþingi eða ríkið og Reykjavíkurborg, taki ákvörðun um þessa nýju stefnumótun, ef um stefnubreytingu verður að ræða, en auknum kostnaði vegna tilveru stóriðjufyrirtækjanna hér á landi verði ekki fyrirvaralaust og án samþykktar Alþingis og borgarstjórnar Reykjavíkur, sem eru sameignaraðilar, velt yfir á fólkið í landinu.