26.01.1981
Sameinað þing: 40. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1895 í B-deild Alþingistíðinda. (2128)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það er hægt að segja margt um þau mál sem hér eru á dagskrá, en það, sem einkum olli því að ég stóð upp nú, voru þau ummæli hæstv. forsrh. að engum manni hefði verið sagt upp vinnu hjá súkkulaðiverksmiðjunni Lindu. Það er rétt, að ég hygg, að á þessu ári hafi engum manni verið sagt upp vinnu hjá þeirri verksmiðju af þeim sérstöku ástæðum, að svo stóð á hjá súkkulaðiverksmiðjunni Lindu að þar var ekki um neinn vörulager að ræða um áramót eins og víðast hvar hjá öðrum sælgætisverksmiðjum. Hins vegar gefur það rétta mynd af umsvifum þessa iðnaðar á Akureyri að rifja upp að fyrir tveim árum störfuðu hjá þessu fyrirtæki 60 manns, fyrir einu ári um 50 manns og nú starfa þar 37 manns. Starfsmönnum hefur fækkað á tveim árum úr 60 í 37. Forráðamenn þessa fyrirtækis fara ekkert leynt með að þeir eru mjög kvíðnir yfir framvindunni og óttast mjög, að þeir muni enn verða fyrir nýjum búsifjum í febrúarmánuði, og hafa m.a. vakið athygli á því, að sá greiðslufrestur, sem er til að skila hinum nýja skatti, er of stuttur, og hafa farið fram á að hann sé lengdur úr 60 dögum í 90. Nú vil ég spyrja hæstv. forsrh. hvort ríkisstj. hafi athugað það mál að koma til móts við þennan atvinnurekstur, bæði sælgætis- og gosdrykkjaiðnaðinn, og lengja greiðslufrestinn á þessum nýja skatti úr 60 dögum í 90, sem af mörgum ástæðum mundi vera mikið hagræði fyrir þessa aðila og létta á vaxtakostnaði og létta á peningamálum þeirra almennt, og skal ég ekki rekja nákvæmlega hvernig á því stendur því ég þykist vita að hæstv. ríkisstj. sé um það kunnugt.

Á hinn bóginn er atvinnuástand á Akureyri, ef lítið er yfir það í heild, mjög kvíðvænlegt. Það er að vísu rétt, að ekki hefur komið til atvinnuleysis hjá kvenfólki þar almennt enn sem komið er. Það er fyrst og fremst því að þakka, að ríkisstj. fékkst til þess á síðari helmingi s.l. árs að leiðrétta gengisskráninguna þannig að gengissigið á s.l. ári var mjög hratt og mjög mikið síðari helming ársins og rétti það stöðu útflutningsiðnaðarins á Akureyri. Nú hefur ríkisstj. boðað að gengið eigi að verða fast jafnvel fram í maímánuð. Hins vegar er framleiðslukostnaðurinn þegar byrjaður að hækka hjá útflutningsiðnaðinum og er fyrirsjáanlegt að hann mun hækka enn meir til þessa tíma. Þá er eðlilegt að spyrjast fyrir um það hjá ríkisstj., hvernig hún hyggist bregðast við hjá þeim iðnaði t.d. fyrir norðan, sem vinnur úr íslensku hráefni og er viðkvæmastur fyrir gengisskráningunni. Ég nefni þarna m.a. verksmiðju Sambands íslenskra samvinnufélaga á Akureyri. Uppsagnir eru fyrirhugaðar hjá skinnaverksmiðjunni Iðunni, og eins og mönnum er kunnugt hefur verið um það talað að skóverksmiðjan á Akureyri muni hætta störfum, henni verði lokað á næsta sumri þegar sumarleyfi hefjast. Það er því síður en svo að atvinnuástandið sé neitt tryggt að þessu leyti.

Ef við tölum um byggingariðnaðinn, eru þar miklir erfiðleikar sýnilegir. Fyrir einu ári var þar allt annað ástand en nú er, fór að síga á ógæfuhliðina á s.l. hausti. Ástandið hélt áfram að versna í nóv. og des., og nú í janúarmánuði er svo komið að um 120–130 manns eru atvinnulausir. Eftirtektarvert er í þessu sambandi að þarna er um ungt fólk að ræða, unga menn sem eru óþreyjufullir og una því illa að fá ekki atvinnu. Þetta fólk er að uppistöðu til útivinnandi verkamenn, en þarna er líka um að ræða trésmiði. Múrurum hefur verið sagt upp þó þeir séu ekki í verulegum mæli komnir á atvinnuleysistryggingaskrá. Dulið atvinnuleysi er mjög mikið á Akureyri, á því leikur enginn vafi. Hér er náttúrlega um mikið alvörumál að ræða.

Ég verð að segja það, að mesta ánægjuefnið um atvinnuþróun á Akureyri á s.l. ári var að niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar tókst af eigin rammleik með traustri efnahagslegri stöðu sinni að halda rekstrinum áfram. Á hinn bóginn harma ég að hún skyldi ekki fá eins mikla síld til framleiðslu sinnar og forráðamenn töldu nauðsynlegt. Á sama tíma liggur fyrir að Siglósíld á Siglufirði, ríkisrekið fyrirtæki, hefur fengið um 500 millj. kr. ýmist í styrk eða að láni úr ríkissjóði á s.l. tveim til þremur árum. Á sama tíma og þannig er með beinum fjárstuðningi úr ríkissjóði haldið uppi atvinnu á Siglufirði í þeirri verksmiðju, sem þar er, er gengið hart að sams konar verksmiðju á Akureyri og henni ekki einu sinni gert mögulegt að fá það hráefni til síldarvinnslu sem hún telur nauðsynlegt. Er þó öllum mönnum kunnugt að þessi verksmiðja á Akureyri hefur haldið uppi eða komið á stofn þeim niðursuðuiðnaði sem drýgstur hefur orðið okkur á erlendum markaði. Skal ég svo ekki fjölyrða um það frekar að þessu sinni.

Ræða hv. 12. þm. Reykv., Guðmundar G. Þórarinssonar, var athyglisverð á marga lund. Hann talaði réttilega um að iðnfyrirtæki erlendis byggju við miklu betri skilyrði, bæði vaxtar- og rekstrarskilyrði, en samsvarandi fyrirtæki hér á landi, sem segja má að séu hundelt af opinberum aðilum með margvíslegum sköttum og jafnvel kröfum aftur í tímann, alls konar skattaálögum sem menn í viðkomandi rekstri hafa kannske ekki hugmynd um að búið er að leggja á, en fá svo reikning eftir á um að þeim sé gert skylt að skila svo og svo miklu gjaldi af margvíslegum sköttum sem þeir höfðu ekki hugmynd um. En það er ekki aðeins að verr sé búið að íslenskum iðnfyrirtækjum með rangri skattalöggjöf, með því að lánsfjármagn er dýrt rekstrarfjármagn, með því að búið er að éta upp eigið fé fyrirtækjanna á undanförnum árum með skammsýnni verðlagsstefnu og verðlagsstjórn og rangri skattalöggjöf, eins og ég sagði, heldur er það háð duttlungum misviturra ríkisstjórna hvernig haldið er á gjaldeyrismálunum, á hvaða verði gjaldeyririnn er seldur. Þetta getur þýtt það, að einn ársfjórðung er kannske hagkvæmt að kaupa erlendar iðnvörur, næsta ársfjórðung er hagkvæmara að kaupa þær innlendu. Ef við höldum gjaldeyrinum í of háu verði er það sama og að greiða niður framleiðslukostnað á erlendum iðnaðarvörum í samkeppni við íslenskar. Eins og ríkisstj. hefur túlkað gjaldeyrisstefnu sína fram á næsta vor er ekki annað sýnt en hún stefni að því að greiða stórkostlega niður framleiðslukostnað á erlendum iðnaðarvörum sem eru í samkeppni við íslenskar iðnaðarvörur, t.d. í húsgagnaiðnaðinum. Ég veit að hæstv. iðnrh. ber mjög mikið fyrir brjósti húsgagnaiðnaðinn, og ég veit að það er mikill þrýstingur á hann frá félögum trésmiða hér í Reykjavík og á Akureyri, sem hefur verið mikið vígi flokksbræðra hans í verkalýðshreyfingunni, og ég efast ekki um að það hafi verið rakið fyrir honum nákvæmlega hvernig þróunin hefur orðið í þessum iðnaði. Við sjáum að erlendar eldhúsinnréttingar, erlend húsgögn eru að fylla markaðinn hér heima, og þær vörur eru keyptar á þeim tímum sem gjaldeyrisstaðan er hagstæð til þeirra kaupa.

Svo er náttúrlega ekki að spyrja að því að um leið og menn komast upp á að kaupa erlendar iðnaðarvörur vilja þeir halda því áfram. Þá komum við að mjög alvarlegum þætti málsins. Bæði kaupmenn og almenningur standa ekki nógu fast saman um að byggja upp eða kaupa íslenskan iðnvarning. Væri veruleg ástæða til þess að ríkisstj. gæfi nú iðnrekendum tækifæri til að auglýsa rækilega í sjónvarpi vörur sínar við hóflegu verði til að standa betur að vígi í keppninni við erlendar vörur.

Herra forseti. Það, sem olli því að ég stóð hér upp, er að í fyrsta lagi hefur komið til mikils samdráttar í sælgætisiðnaðinum á Akureyri og ég taldi nauðsynlegt að það kæmi alveg skýrt fram vegna þeirra orðaskipta sem hér höfðu orðið um það mál. Í öðru lagi liggur það ljóst fyrir, að atvinnuvegirnir standa nú mjög tæpt, atvinnuleysi er meira en það hefur verið um langt skeið og dulið atvinnuleysi kannske miklu meira en menn órar fyrir. — Annars er það nú svo, að það er kannske best að spá sem minnstu um það á þessu stigi málsins. Það er ýmislegt sem steðjar að þessu þjóðfélagi. Skal ég svo ekki hafa fleiri orð um það að þessu sinni, en óska hins vegar skýringa á því frá hæstv. forsrh., hvort hann hyggist gera einhverjar sérstakar ráðstafanir til að styðja útflutningsiðnaðinn ef þeirri gjaldeyrisstefnu verður fram haldið sem hann hefur boðað, að krónan verði óbreytt fram í maímánuð með öllum þeim afleiðingum sem það hefur.