26.01.1981
Sameinað þing: 40. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1897 í B-deild Alþingistíðinda. (2129)

Umræður utan dagskrár

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Það er vissulega ástæða til að fara nokkrum fleiri orðum um það málefni, sem hér hefur verið rætt, sem er stöðugt versnandi atvinnuöryggi fólks í þessu landi og atvinnuleysi og fjöldauppsagnir sem farið er að brydda á í tilteknum starfsgreinum. Ég ætla þó ekki að níðast á góðmennsku forseta, en reyna að ljúka umr. á mjög skammri stundu.

Ég vil vekja athygli á því, hvílík hætta okkur er búin þegar það er farið að gerast að í einu umsvifamesta sjávarútvegskjördæmi landsins eru menn, sem hafa reynslu og þekkingu bæði á sviði stjórnunar fyrirtækja og á sviði fiskveiða og rekstrar fiskiskipa, að fara af landi brott, keyptir af erlendum samkeppnisaðilum til að kenna þeim vinnubrögð og tækni sem er á valdi okkar Íslendinga.

Ég verð að segja að það kom mér nokkuð á óvart að heyra viðtal við hæstv. félmrh., Svavar Gestsson, í útvarpinu þar sem hann var spurður um afstöðu til þessara atriða. Hæstv. félmrh. taldi þá upp ýmis vandkvæði á því að fólk flytti til útlanda. Hann talaði um að það væri nú ekki víst að það hreppti neitt betri kjör en hér, þó svo að þetta fólk hefði ekki haft hér atvinnu við sitt hæfi. Hann talaði um að það yrði að yfirgefa vini og vandamenn og hverfa frá því lífsumhverfi sem það þekkti, þó svo að þetta lífsumhverfi byði því ekki atvinnutækifæri við þess hæfi. Og hann talaði um og fór mörgum orðum um það, hve alvarlegar ákvarðanir fólk væri þarna að taka fyrir blessuð börnin, sem þetta fólk er náttúrlega fyrst og fremst að hugsa um að geta boðið mannsæmandi lífskjör þar sem þörf er fyrir vinnuafl þess.

Öðruvísi mér áður brá, verð ég nú að segja. Það var einu sinni, á meðan hv. formaður Alþb. var ritstjóri Þjóðviljans, að hann hefði talið eðlilegra að svara slíkum spurningum með að krefjast þess að eitthvað annað yrði gert í atvinnumálum, svo að fólk fengi störf við sín hæfi, en halda ræðu í Göbbelsstíl um að vara menn við að fara af landi brott í atvinnuleit vegna þess hversu illt væri að búa í útlöndum. Þetta sýnir bara þær breytingar sem orðið hafa á þessum ágæta manni við að komast í ríkisstjórn.

Meginástæðan fyrir því, að ég gekk hér í ræðustól, var þó sú að beina tiltekinni fsp. til hæstv. utanrrh., og ég vildi gjarnan óska eftir að hæstv. utanrrh. yrði gert viðvart því hann er ekki hér í hliðarherbergjum. Þessi fsp. er mjög stutt. Vildi hæstv. forseti gæta þess, hvort utanrrh. gæti verið viðstaddur? Ég vona að hæstv. forseti umberi mig þó að ég geri hlé á ræðu minni. Þetta er örstutt fsp. sem ég þarf að gera til hæstv. utanrrh. — Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir að koma.

Það er örstutt fsp. sem mig langar að gera til hæstv. utanrrh. vegna ummæla hans í ræðustól áðan. Eins og við allir vitum hefur það aldrei gerst í sögu heimastjórnar á Íslandi, ef svo má segja, að kommúnistar eða fylgifiskar þeirra hefi farið með utanríkismát í þessu landi. (Gripið fram í.) Nei, nei, hæstv. utanrrh. er síður en svo neinn kommúnisti. Hins vegar hafa þeir, þegar þeir hafa átt aðild að ríkisstjórnum, ávallt gert tilraun til að fá umráð eða a.m.k. neitunarvald varðandi einhverjar framkvæmdir sem heyra undir utanrrh. í það og það sinnið. Það hefur gengið misjafnlega vel að fá slíkt fram. — Og það er rétt hjá hæstv. utanrrh., að í núverandi stjórnarsáttmála hafa kommúnistar ekki neitunarvald, nema ef vera skyldi um byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Öll önnur mál heyra undir forræði hæstv. utanrrh. — En mér leikur forvitni á að vita hvort hæstv. utanrrh, sé um það kunnugt, að ráðgerðir séu uppi t ríkisstj. um að leggja fram frv. hér á hinu háa Alþingi þess efnis að taka Keflavíkurflugvöll undan forræði utanrrn. og setja málefnin þar undir stjórn samgrn. Er hæstv. utanrrh. kunnugt um að slíkar hugmyndir séu á döfinni í ríkisstj. eða að undirbúið sé frv. um þessi efni? Og spurning nr. tvö: Hver er afstaða hæstv. utanrrh. til slíkra hugmynda? Mega menn ekki treysta því, að hæstv. utanrrh. beiti sér alfarið gegn því að slík breyting verði gerð?