29.10.1980
Neðri deild: 7. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (214)
36. mál, tímabundið innflutningsgjald á sælgæti og kex
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég er einskis vísari um það, hvort tveir hv. síðustu ræðumenn eru með eða á móti þeim skatti sem hér er til umr. eða hvort þeir eru með eða á móti frjálsri verslun.
Ég vil gjarnan fá það upplýst frá hæstv. ráðh. fyrst og fremst, hvort ég fer rétt með þær tölur, að fyrstu fimm mánuði þessa árs hafi útflutningur á sælgæti erlendis frá numið 485 millj. kr. miðað við 456 millj. árið 1979. Ef þessar tölur eru rétt eftir hafðar má gera ráð fyrir að innflutningur á sælgæti út þetta ár nálgist 1 milljarð. 40% af því er nokkuð stór upphæð. Því er það spurning mín til ráðh.: Renna þessar auknu og óvæntu tekjur, óvæntar miðað við þær umr. sem fóru fram um tekjuhlið fjárlaga á s.l. ári, beint í ríkissjóð eða renna þær sem aukið framlag til iðnaðarins og þá sælgætisiðnaðarins til að skapa honum betri starfsskilyrði í framtíðinni, til aukinnar hagræðingar, svo að hann verði viðbúinn samkeppni við erlenda framleiðslu eftir þá 18 mánuði sem þessi tímabundni skattur á að vera í gildi?
Ef þessar auknu tekjur af innflutningi á sælgæti renna beint til ríkissjóðs tel ég það miður farið. Ef þær renna til að byggja upp iðnaðinn til að taka við þeirri samkeppni sem hann var ekki reiðubúinn að taka á móti, tel ég þennan tímabundna skatt réttlætanlegan, annars ekki. Ég vil fá það upplýst hjá ráðh., hvor leiðin verði farin, ef ráðh. er reiðubúinn að gefa þær upplýsingar á þessari stundu.
Mikill misskilningur er það, ef það er almenn skoðun þm., og sýnir, hvað þeir eru lítið inn í innflutningi og innkaupavenjum fólksins, að þessi skattur dragi eitthvað úr innflutningi eða dragi úr neysluvenjum fólks sem um langan tíma hefur ekki haft frjálst val, að það fari að kaupa frekar íslenskar iðnaðarvörur. Meðan nýjabragðið er af innflutningi frá öðrum löndum og meðan innflutningurinn er frjáls og úrvalið er svo mikið á markaðnum sem raun ber vitni kaupir þjóðfélagsþegninn það sem hann hefur ekki fengið að kaupa áður, þó að það sé svolítið dýrara. Ég tala af eigin reynslu. Ég held að samkeppnin við innlendan iðnað haldi áfram, þó að einhverju leyti geti dregið úr henni tímabundið, þrátt fyrir þennan skatt. Er þá engum illt gert nema neytandanum sjálfum. Hann borgar bara meira fyrir það sem hann vill fá. Ég held að þetta gjald hafi dregið afskaplega lítið úr samkeppni við íslenskan sælgætisiðnað, en aukið tekjur ríkissjóðs verulega.
Það er líka hættulegt að slá fram dæmum um tímabundinn vanda einstakra fyrirtækja eða framleiðenda. Það voru nefnd hér þrjú fyrirtæki. Ópal er á sölulista — það er alveg rétt — vegna aldurs eigandans. Freyja er á sölulista, en ekki vegna framleiðsluörðugleika, heldur vegna þess að fyrirtækið er dánarbú. Ég hef heyrt sagt að Linda á Akureyri hafi verið komin nokkuð á leið með að aðlaga sig samkeppninni, enda er Linda svo framarlega í sælgætisiðnaði hér að framleiðsla hennar þolir fyllilega samanburð við samsvarandi vörur erlendis frá.
Það hefur oft skotið upp í huga mínum þeirri spurningu: Hvað er íslenskur iðnaður? Við erum að leggja á skatt eftir skatt til að vernda íslenskan iðnað og styrkja hann. En ég veit ekki til þess, að það hafi nokkurn tíma verið gerð úttekt á því, hvað er íslenskur iðnaður. Það er ekki allt íslenskur iðnaður sem tilheyrir aðilum innan iðnaðarsamtakanna, iðnrekendum. Ég get bent á verksmiðjur þar sem alls ekki er stundaður íslenskur iðnaður. Áfyllingariðnaður er ekki í mínum huga íslenskur iðnaður. Innpökkunariðnaðurinn er ekki íslenskur iðnaður. Sjálfvirkar vélar vinna allt það sem mannshöndin annars gæti gert og gerði áður fyrr. En þessi iðnaður er talinn íslenskur iðnaður og hann nýtur forréttinda sem hinn raunverulegi íslenski iðnaður á að njóta. Þar af leiðandi fær hann fé sem hinn raunverulegi íslenski iðnaður á að njóta.
Ég held að kominn sé tími til þess, ef menn hafa áhuga á hinum raunverulega íslenska iðnaði, að gerð sé úttekt á því, hvað er íslenskur iðnaður, hver sé sá iðnaður sem skapar atvinnutækifæri, og hann sé styrktur af þeim tolltekjum sem við erum að setja á innfluttar samkeppnisiðnaðargreinar til styrktar íslenskum iðnaði.
Ég skal ekki segja hvort þessir verndartollar eða verndartollar almennt séu réttlætanlegir til þess eins að hækka vinnulaun sem fyrirtæki annars greiða fólki. Ég held að fyrirtækin í sælgætisiðnaðinum, eins og fyrirtæki almennt á Íslandi, hafi greitt laun samkvæmt þeim launastiga sem um er samið hverju sinni, hvort sem menn vinna hjá sælgætisverksmiðjunum eða ekki. Hv. síðasti ræðumaður var að gefa í skyn áðan, hv. 3. þm. Vestf., að það væri eitthvað ábótavant launagreiðslum til starfsfólks í þessari iðngrein. Ég vona að ég hafi misskilið hann. (Gripið fram í.) Hvaða launþegi vill ekki fá hærri launastiga? Það þýðir ekkert að tala þannig. Allir þm. vilja vinna að því að launþegar fái hærra kaup, svo lengi sem þjóðfélagið ber það. Ég held þeir fái í hverri iðngrein um sig það kaup sem um er samið hverju sinni. Það þýðir ekki að fara að leggja á verndartolla og gefa í skyn að þeir eigi að standa undir hinum eiginlegu launagreiðslum. Vonandi misskildi ég þm., en ég skrifaði orðrétt eftir honum, þó að hann mótmælti því, að leggja ætti á verndartolla til að styrkja starfsemi sem gæti ekki staðið undir launagreiðslum starfsfólksins. Þarna er rangt að farið.
Ég vil ítreka fsp. mína til ráðh. Ég býst við að það sé rétt með farið, að innflutningur á sælgæti hafi verið 485 millj. kr. fyrstu fimm mánuði ársins. Þar sem jólamánuðurinn er fram undan hlýtur sú upphæð að nálgast milljarðinn í árslok. 40% af því er stór upphæð. Í hvað fer þetta? Er það eyðslufé ríkissjóðs eða fer það til að endurhæfa eða á einhvern hátt styrkja til hagræðingar fyrirtæki í þessari framleiðslugrein, til þess að þau geti betur mætt breyttum tíma að 18 mánuðum liðnum?