27.01.1981
Sameinað þing: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1913 í B-deild Alþingistíðinda. (2154)
115. mál, Blönduvirkjun
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Mér þykir rétt að nota það tækifæri, sem hér gefst við umræður um orkumál, til að vekja athygli á enn einu vandamáli og það miklu sem nú er uppi að því er varðar orkunotendur á Vestfjörðum, vekja athygli þingheims á því — og þá ekki síst hæstv. iðnrh., að nú búa orkunotendur á Vestfjörðum við afarkosti að því er varðar orkugjald. Með þeim ráðstöfunum, sem nú hafa verið ákveðnar, leggjast á herðar orkunotenda á Vestfjörðum um 980 millj. kr. á gamla genginu, ef svo má segja, á því tiltekna tímabili sem menn eru að tala um, þ.e. 100 þús. kr. á hvern einasta íbúa á orkuveitusvæði Orkubús Vestfjarða umfram það sem annars staðar er.
Ég vil því spyrja hæstv. iðnrh.: Er það meining stjórnvalda í landinu, að þau ætli enn einu sinni að níðast með þessum hætti á í þessu tilfelli Vestfirðingum með því að láta þá búa við þessa afarkosti að því er varðar orkuverð? Ég óska þess eindregið að hæstv. ráðh. komi hér og segi til um það, hvort það er meining hæstv. ríkisstj. að gera engar ráðstafanir til að létta þessar byrðar og til þess að Vestfirðingar búi við sambærilegt orkuverð og annars staðar gerist. Sé hæstv. ráðh. búinn að tala sig dauðan vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann efi honum tíma til að svara að því er varðar þetta mál. Ég tel þetta svo mikils virði og svo mikið ranglæti, sem hér er á ferðinni, að ekki verði hjá því komist að krefja hæstv. iðnrh. og hæstv. ráðh. alla, ráðamenn þjóðarinnar, um svör við því, hvort þeir ætla að láta slíkt tíðast áfram.