27.01.1981
Sameinað þing: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1923 í B-deild Alþingistíðinda. (2166)
364. mál, fullorðinsfræðsla
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Tilefni þeirrar fsp., sem hér liggur fyrir, um fullorðinsfræðslu, er að lengi hefur verið í undirbúningi að koma á heildarlöggjöf um fullorðinsfræðslu, en hægt virðist miða að leggja það mál fyrir Alþingi. Þó að nokkuð hafi áunnist í fullorðinsfræðslumálum hér á landi, svo sem í gegnum Námsflokka Reykjavíkur, Bréfaskólann, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, Stjórnunarfélag Íslands og með rekstri öldungadeilda menntaskólanna, þá er ljóst að skortur á heildarlöggjöf um fullorðinsfræðslu hefur staðið eðlilegri þróun fyrir þrifum og brýnt er, í ljósi þess hve fullorðinsfræðslan er fjölbreytt og margþætt, að koma á heildarlöggjöf um markmið og leiðir til að stórauka og efla alla fullorðinsfræðslu í landinu.
Þörfin fyrir síaukna fullorðinsfræðslu sem og mikilvægi hennar fyrir samfélagið fer ört vaxandi, en sú grundvallarfræðsla, sem fæst í gegnum skólakerfið, er hvergi nægileg og brýnt að samhliða sé kostur á margþættri fullorðinsfræðslu, bæði í bóklegu námi og þjálfun á mörgum sviðum, ekki síst þegar litið er til hinnar öru þjóðfélagsþróunar og tæknibyltingar á flestum sviðum, enda hefur þátttaka í fullorðinsfræðslu aukist mjög hér á landi undanfarin ár.
Einnig mun vel uppbyggð fullorðinsfræðsla jafna aðstöðu landsmanna til fræðslu og menntunar og skapa hverjum einstaklingi skilyrði til aukins alhliða þroska, þjálfunar og starfsmenntunar, meira eftir vali hans sjálfs síðar á ævinni en verið hefur til þessa.
Segja má að heildarlöggjöf um fullorðinsfræðslu hafi verið lengi í burðarliðnum, því að það var árið 1971 sem skipuð var nefnd til að gera tillögur um hvernig skipuleggja skyldi fræðslu fullorðinna. Sú nefnd skilaði lagafrv., sem lagt var fyrir Alþingi fyrst 1974 og síðan 1975 og 1976, en hlaut ekki afgreiðslu.
Það var síðan í ágúst 1978 sem þáv. menntmrh., Vilhjálmur Hjálmarsson, skipaði nefnd til að semja að nýja frv. um tilhögun og framkvæmd fullorðinsfræðslu. Skilaði sú nefnd tillögum í formi lagafrv. í apríl 1979 sem lagt var fyrir Alþingi. Í því frv. var reynt að skapa þann ramma um fullorðinsfræðslu sem nauðsynlegur var til þess að eðlileg þróun gæti átt sér stað án þess að tilkostnaður væri óhóflegur. Var sérstaklega tekið mið af þeirri reynslu, sem þegar var komin af fullorðinsfræðslu í landinu, og þeim athugasemdum og gagnrýni, sem fram hafði komið við meðferð fyrri frv. á Alþ. Síðan á því sama ári var skipuð nefnd til þess að fjalla um einn þátt fullorðinsfræðslunnar, þ.e. endurmenntun og skipulag í þágu launafólks. Síðan sú nefnd var skipuð fyrir rúmu ári hefur ekkert heyrst um hvað fyrirhugað er í þessu máli af hálfu menntmrn. Því er nauðsynlegt að fá fram á hverju stendur að leggja fram þetta frv. sem fullvíst er að margur bíður eftir.
Því er nú spurt: Verður frv. til laga um fullorðinsfræðslu lagt fram á yfirstandandi Alþingi?