27.01.1981
Sameinað þing: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1924 í B-deild Alþingistíðinda. (2167)

364. mál, fullorðinsfræðsla

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Spurning hv. þm. er skýr og greinileg, og svar mitt við fsp. er einfaldlega það, að ég hef í undirbúningi frv. til l. um fullorðinsfræðslu og stefni að því að það verði flutt á þessu þingi.

En mig langar, eins og hv. fyrirspyrjandi gerði áðan, að segja hér nokkur orð fram yfir þetta stuttorða svar. Það, sem mér finnst skipta máti í sambandi við undir búning löggjafar um fullorðinsfræðslu, er að benda á það, sem hv. fyrirspyrjandi gerði hér reyndar áðan, að umræður um þetta mál hafa staðið ákaflega lengi, a.m.k. 10 ár og reyndar lengur. Fyrstu tillögurnar munu hafa komið fram fyrir u.þ.b. 10 árum, og ég hef einmitt í tilefni af þessari fsp. og vegna þess, hve langur aðdragandi er orðinn að þessu máli, látið taka saman stutta skýrslu til yfirlits fyrir alþm., til þess að glöggva sig nokkuð á þeim hugmyndum, sem uppi hafa verið í þessum málum síðasta áratug, og þá hvernig staðan er í þessum málum.

Þessar hugmyndir eru ekki aðeins margar, heldur og margvíslegar. Eftir að ég fór að hafa bein afskipti af þessu málefni sem ráðh. virtist mér eðlilegast að byrja á því að safna þessum hugmyndum saman, sem eru — eins og menn sjá af þessari skýrslu — ákaflegar margar, gera á þeim samanburð og kanna hvort ekki væri mögulegt að vinna úr þeim heillegar tillögur, sem hentað gætu íslenskum almannaþörfum og einstaklingshagsmunum, um fyrirkomulag fullorðinsfræðslu sem þróast gæti eðlilega þótt ekki væri farið allt of geyst af stað meðan verið er að „prófa sig áfram“, ef svo má segja, enda eru þessi mál mjög víða í deiglunni og að mínum dómi ekki vandalaust að setja um þetta „endanlegar“ reglur, ef svo má segja.

En í þessu sambandi er alveg ástæðulaust að gleyma því, að ýmiss konar fullorðinsfræðsla á sér stað í landinu nú þegar. Hún er framkvæmd af ýmsum aðilum, svo sem félagasamtökum, opinberum skólum og öðrum fræðslustofnunum. Í skýrslu þeirri, sem dreift hefur verið hér í dag til hv. þm., er að finna yfirlit yfir þá fullorðinsfræðslu sem á boðstólum er í landinu, og mér finnst eðlilegt að kynna hana nokkrum orðum.

Það er að vísu rétt, að engin löggjöf er til um fullorðinsfræðslu, engin heildarlöggjöf. Eigi að síður hafa ýmsir aðilar staðið að slíkri fræðslu. Eins og segir í þessari skýrslu minni eða yfirliti sem ég hef látið dreifa, þá má deila þeirri fræðslu, sem nú fer fram þegar í landinu, í fyrsta lagi í það sem kalla mætti grunnmenntun, hliðstæða þeirri menntun sem fram fer almennt í skólum, það má líka segja að um sé að ræða starfsnám og viðbótarmenntun og endurmenntun í tengslum við atvinnulíf og svo í þriðja lagi frjálst nám og frístundanám til þekkingar- og menningarauka.

Eins og hv. fyrirspyrjandi nefndi áðan eru aðilar að fullorðinsfræðslu ýmsir. Ég nefni þar fyrst og fremst námsflokkana. Elstir meðal námsflokka eru Námsflokkar Reykjavíkur, sem tóku til starfa 1939. Þar er nú talið að stundi nám um 1000 manns á ári. Auk þess eru starfandi 15 aðrir námsflokkar víðs vegar um landið. Þá vil ég nefna Bréfaskólann sem svo er kallaður. Bréfaskólinn var upphaflega stofnaður af Sambandi íslenskra samvinnufélaga, en er nú rekinn af Sambandi íslenskra samvinnufélaga, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Stéttarsambandi bænda, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Ungmennafélagi Íslands. Bréfaskólinn er orðinn býsna gömul stofnun og nær mjög víða um land og hefur áreiðanlega miðlað verulega mikilli þekkingu á ýmsum sviðum.

Þá nefni ég öldungadeildir menntaskólanna, en fyrsta öldungadeildin var stofnuð 1972 við Menntaskólann við Hamrahlíð. Þaðan hafa nú útskrifast yfir 200 stúdentar. Síðan hafa verið stofnaðar öldungadeildir við allmiklu fleiri menntaskóla og fjölbrautaskóla í landinu.

Geta má þess, að Kennaraháskóli Íslands skipuleggur og hefur umsjón með endurmenntunarnámskeiðum fyrir grunnskólakennara. Sú starfsemi er orðin mjög umfangsmikil og talin mikilvæg fyrir starf í grunnskóla. Einnig hefur Kennaraháskóli Íslands séð um uppeldisog kennslufræðinám fyrir kennara í verkgreinaskólum.

Myndlista- og handíðaskóli Íslands heldur uppi ýmiss konar námskeiðum í list- og verkgreinum.

Nýi hjúkrunarskólinn hefur haldið námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga og gegnir þannig mikilvægu hlutverki fyrir framhalds- og endurmenntun á sínu sviði.

Hússtjórnarskólar hafa svo árum skiptir gefið fullorðnu fólki kost á margvíslegum námskeiðum í hússtjórnargreinum, og má segja að þess háttar námskeið fari vaxandi fremur en hitt.

Geta má þess, að Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirði er byrjaður að halda námskeið fyrir starfsfólk í fiskiðnaði, og áður en Fiskvinnsluskólinn tók til starfa fyrir nokkrum árum höfðu um mjög margra ára, ef ekki áratugaskeið verið haldin námskeið, en eigi að síður mátti segja að það væru árleg verkleg og hagnýt námskeið á vegum Fiskmatsins fyrir starfandi fiskvinnslufólk.

Fósturskóli Íslands hefur staðið fyrir stuttum endurmenntunarnámskeiðum fyrir fóstrur.

Samvinnuskólinn í Bifröst hefur haft fjöldamörg námskeið fyrir verslunarfólk víðs vegar um landið. Vélskóli Íslands hefur staðið fyrir námskeiðum fyrir vélstjóra.

Stýrimannaskólinn í Reykjavík hefur sett upp námskeið utan Reykjavíkur endrum og eins þegar næg eftirspurn hefur verið.

Iðnskólinn í Reykjavík hefur séð um ýmis námskeið fyrir iðnaðarmenn og iðnverkafólk, oft í samvinnu við sveinafélög eða aðra aðila.

Hótel- og veitingaskóli Íslands sér um árlegt námskeið fyrir svokallaða „sjókokka“, þ.e. matsveina á fiskiflotanum.

Og endurmenntunarnefnd iðnrn. stóð að og skipulagði sex námskeið fyrir iðnaðarmenn á s.l. ári og heldur áfram með námskeiðahald á þessu ári.

Þá má geta þess, að Lýðháskólinn í Skálholti gefur fullorðnu fólki kost á námi við skólann þótt þennan skóla sæki aðallega ungt fólk. Ég vil einnig geta þess, að öldungadeild er nú tekin til starfa við einn af grunnskólum landsins, þ.e. við skólann í Hveragerði. Og geta má þess einnig til viðbótar því sem sagt hefur verið, að tónlistarskólar og myndlistarskólar gegna mjög miklu hlutverki sem fræðslustofnanir fyrir fullorðna. Vantar í raun og veru gott yfirlit yfir það, hvert framlag þeirra er á þessu sviði, en ég hygg að víðast hvar í heimi sé það einmitt talið til hlutverka fullorðinsfræðslu að veita fullorðnum slíka menntun.

Eins og kemur fram í þessu plaggi, sem ég hef verið að minnast á og dreift hefur verið, standa einkaaðilar og ýmiss félagssamtök að ýmiss konar fræðslu sem ekki hefur tekist að fá nægilegar upplýsingar um.

Þetta vildi ég nefna í tengslum við þessar umræður eða það svar sem ég var að gefa hér. Þetta er stutt yfirlit yfir fullorðinsfræðslu sem er til í landinu. Ég vil benda á það, að hún er engan veginn óveruleg þó að auðvitað megi margt að henni finna, fyrst og fremst það, að hún er ekki nægilega kerfisbundin og ekki nógu víðtæk. En hitt legg ég áherslu á, að óhyggilegt væri að ganga fram hjá þeirri fullorðinsfræðslu, sem hefur þróast í landinu og orðin er föst í sessi, þegar ráðgerð er heildarlöggjöf um þetta efni. Slík heildarlöggjöf er vissulega mjög mikil nauðsyn, og ég endurtek það, að ég stefni að því að frv. verði lagt fram um þetta efni á þessu þingi, og vil taka það fram, að ég hef í sambandi við það frv. hugsað mér að taka mið af flestum þeim hugmyndum, sem fram hafa komið í því sambandi, án þess að leggja nokkurt eitt einstakt af þeim frv., sem fram hafa komið, til grundvallar í því efni, a.m.k. að svo komnu máli.