27.01.1981
Sameinað þing: 42. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1936 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)

32. mál, rafknúin járnbraut

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég tel ástæðu til að lýsa skoðun minni á þessu máli. Mér finnst þetta vera mjög athyglisvert mál sem höfðar til framtíðar, og ég get ekki fellt mig við að fullyrt sé, þó að einhver fulltrúi í Orkustofnun hafi fjallað um þetta mál eða skyld mál og fellt um það sérstakan dóm, að það eigi að gilda fyrir svona þýðingarmikið mál um alla framtíð. Ég tel þess vegna að það sé fullkomin ástæða að taka undir þessa tillögu um að þessi rannsókn verði hafin hér á landi. Ég er ekki þar með að segja að ég álíti að komið sé að framkvæmd þessa máls endilega í nútímanum, en alla vega er þetta mikilvægt mál og höfðar vissulega til þeirra umræðna sem víða fara fram um orkusparandi aðgerðir eða aðgerðir til að nýta þá innlendu orku sem fyrir hendi er á hverjum tíma.

Ég hef að vísu ekki ferðast eins mikið um heiminn og margir þeir sem hér eru inni eða hafa tekið til máls eða starfa í Orkustofnun, en í þeim ferðalögum, sem ég hef farið um nágrannalöndin, t.d. Norður-Noreg hef ég orðið áþreifanlega var við þýðingu járnbrauta í samgöngu- og flutningakerfi grannþjóðanna, og því skyldi ekki vera möguleiki á að þetta gæti gilt alveg eins hér á landi? Ég vil þess vegna undirstrika að ég tel þetta athyglisvert mál sem ekki má kasta í bréfakörfuna vegna ályktunar eða sérfræðiálits einhverra aðila, sem hafa tekið sér fyrir hendur að fjalla um þetta málefni án þess að hafa til þess tilskilin tilmæli frá stjórnvöldum. Ég vil að þetta mái sé athugað gaumgæfilega.

Ég get ekki látið hjá líða að minna á það hér, að mér fannst það furðulegt að þegar verið var í sjónvarpinu fyrir nokkrum dögum að ræða um þetta mikilvæga mál, rafknúin farartæki hér á landi, sá sjónvarpið ekki ástæðu til að minnast á það, að það mál, sem hér er til umræðu í dag, hefur komið áður inn á Alþingi Íslendinga, og rökstuðningur með þessari þáltill. er ekki ómerkari en það sem fram kom í þeirri þáltill. sem var sérstaklega tekin fyrir í þessum sjónvarpsþætti. Þarna var um hlutdrægni að ræða og ég tel ástæðulaust annað en að minnast á það hér, því að sú till., sem hér er til umræðu, er ekki síður merkileg en það sem rætt var um í þessum sérstaka þætti.

Ég endurtek, að ég styð þessa till. og álít að það sé vel þess virði að henni sé fylgt eftir með þeirri athugun sem hún gerir ráð fyrir.