28.01.1981
Efri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1954 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)

189. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég tek undir það, sem hér hefur komið fram hjá hv. þm., að hraða verður undirbúningi að frekari breytingum á lögunum um tekju- og eignarskatt og tryggja verður að þær nefndir, sem fengnar hafa verið til að vinna að þessum málum, geti unnið sitt starf og vinni það. En eins og kom mjög skýrt fram í máli mínu, að því er ég hélt, er þessum nefndum ekki þarna um að kenna í raun og veru. Þær hafa ekki fengið gögnin í hendur þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir þessum tölvuútskriftum um margra mánaða skeið. Ég hef tekið mér fyrir hendur að reka á eftir því, ekki einu sinni og ekki tvisvar, heldur að meðaltali tvisvar í hverri viku, en það hefur ekki dugað til. Virðist ákveðinn skortur á sérþjálfuðu starfsliði valda því að Skýrsluvélar eru svona langt á eftir með þau verkefni sem þeim hafa verið falin. Þetta er mjög bagalegt, kemur sér afar illa, en því miður stöndum við frammi fyrir þessari staðreynd án þess að eiga nokkurs annars völ.

Varðandi fsp. hv. þm. Lárusar Jónssonar get ég því miður ekki fullyrt neitt um hvenær ríkisstj. verði tilbúin með sínar tillögur, en ég vænti þess, að það eigi að geta orðið í næsta mánuði. Ég tel raunar að við þurfum að afgreiða þessi mál fyrir mánaðamótin febrúar–mars.

Það er rétt, sem fram kom hjá hv. þm., að skattvísitalan var sett í 145 stig í fjárlögum, en tekjuaukning milli áranna 1979–1980 hefur sennilega verið heldur meiri en sem nemur þessari hækkun skattvísitölunnar. Ástæðan til þess, að skattvísitalan var þó ekki ákveðin hærri en raun ber vitni, er sú, að við höfum í hyggju að gera ýmsar breytingar á tekjuskattslögunum, t.d. hækka vaxtafrádráttinn sem hér er verið að tala um, t.d. frádrátt vegna verkfærapeninga, t.d. að gera hugsanlegar breytingar varðandi álagningu á tekjur bænda, t.d. að reyna að hlífa einstæðum foreldrum meira en gert er samkv. núgildandi lögum. Þetta mun að sjálfsögðu kosta verulegt fé og fela í sér einhvern tilflutning á skattbyrði innan hópsins í heild.

Í öðru lagi kom í ljós undir árslok að tekjuskattur skilar ríkissjóði minni tekjum en ráð var fyrir gert. Vafalaust muna menn eftir því, að fyrr í haust og raunar í sumar urðu miklar umræður um hvort tekjur ríkissjóðs yrðu ekki verulega miklu meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Ýmsir stjórnarandstæðingar töldu að þarna væri um marga milljarða að ræða. Ég man ekki hvað þeir komust sem hæst höfðu, en mig minnir að það væru einir 5 milljarðar, og töldu þeir að tekjur ríkissjóðs hefðu aukist um þá upphæð af þessari ástæðu einni. Ég andmælti þessu, þegar umræður urðu um það í haust, og benti á að allar líkur væru á að innheimtar tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti yrðu mjög svipaðar því sem áætlað hefði verið. Undir árslokin kom hins vegar í ljós að þær voru frekar minni en að þær væru meiri en áætlað hafði verið, og þó að við höfum ekki enn nákvæmar upplýsingar um þetta atriði eru allar líkur á að þarna hafi skakkað 2–3 milljörðum. Auðvitað verður að taka tillit til þess þegar skattbyrði er ákveðin á árinu 1981, hver skattbyrðin raunverulega var á árinu 1980, og gera ráð fyrir því til ákvörðunar frádráttarliðum og öðrum þeim liðum sem ákveða hvað mikið kemur í ríkissjóð.

Skattvísitalan hækkar ekki meira fyrst og fremst af þeim tveimur ástæðum sem ég nú hef nefnt. Annars vegar eigum við eftir að gera breytingar á núgildandi skattalögum, hins vegar virðist vera að skattalögin hafi skilað minni tekjum en Alþingi gerði ráð fyrir. Það eru þessi tvö atriði sem verður að taka til greina og hafa áhrif á það að skattvísitala mun ekki hækka jafnmikið og tekjubreytingunni milli ára nemur.

Hins vegar eru líkur á því, að frádráttarliðir í tekjuskattslögum hækki eitthvað meira en gert er ráð fyrir samkvæmt hækkun áskattvísitölu um 145 stig, vegna þess að við skildum eftir 4 milljarða sem við gerðum ekki ráð fyrir þegar tekjuáætlun fjárlaganna var ákveðin. Ef skattalög væru algjörlega óbreytt frá því, sem nú er, og skattvísitalan væri algjörlega óbreytt frá því, sem nú er, mundi tekjuskatturinn skila þó dálítið meiri tekjum en ráð var fyrir gert við fjárlagaafgreiðsluna. Þó má vera að sú upphæð sé eitthvað minni en við gerðum þá ráð fyrir vegna þess að tekjurnar skila sér ekki í þeim mæli sem ráð var fyrir gert.

Þarna eru margir þættir sem taka verður tillit til, og þetta er alls ekki einfalt reikningsdæmi. En ég geri ráð fyrir að í síðari hluta næsta mánaðar verði ríkisstj. tilbúin með tillögur sínar.