28.01.1981
Efri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)
189. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin og vil taka undir það með honum, að ég held að það sé betra að vinda sér í að breyta skattalögunum sem allra fyrst þannig að almenningur viti það og það verði ekki þannig eitt árið í viðbót að fólk viti í rauninni fram eftir öllu ári ekkert um hvað það á að greiða í opinber gjöld.
Hæstv. ráðh. kom hér með ýmsar fróðlegar upplýsingar. Hann sagði, eins og ég hélt fram í umr. við afgreiðslu fjárlaga, að um væri að ræða með skattvísitölunni 145 4 milljarða kr. duldar tekjur umfram fjárlagaáætlun sem algjörlega óbreytt skattalög mundu gefa ríkissjóði. Það er út af fyrir sig ágætt að þetta kemur hér skýrt og greinilega fram. En þá var hæstv. ráðh. búinn að hækka tekjuáætlunina í eignar- og tekjusköttum um tæpa. 6.5 milljarða. Það var umfram forsendur fjárlaganna. Mismunurinn, sem rétt skattvísitala mundi gefa og ég er að tala um hér, miðað við skattvísitölu 145 er því 10 milljarðar kr., hvorki meira né minna, að óbreyttum skattalögum.
Við getum einnig séð þetta á því, að ef við segjum að rétt skattvísitala væri 153 munar þarna 8 prósentustigum í skattvísitölu. Prósentustig í skattvísitölu, sem vanáætlað er, er talið íþyngja mönnum um 1.2 milljarða. Þessi tala er því óyggjandi. Þar er um að ræða um 10 milljarða kr.
Frá þessu má eflaust draga einhverjar smásporslur, eins og hæstv. ráðh. var að koma inn á áðan, en það fullyrði ég, að þó að gerðar verði þessar minni háttar breytingar á skattalögunum, sniðnir af einhverjir agnúar varðandi einstæða foreldra, bændur og aðra slíka tekjuhópa, er stefnt í stórfellda hækkun atmennt á tekju- og eignarsköttum í ríkissjóð með ákvörðun um skattvísitölu 145.
Ég skal ekki fjölyrða meira um þetta. Ég held að þetta sé staðreynd sem engum dugar að víkja sér frá og menn verði að horfast í augu við að stefnan er þessi í viðbót við stórhækkun óbeinna skatta.
Hæstv. ráðh. taldi að tekjuskattur og eignarskattur skiluðu ríkissjóði minni fjárhæð á árinu 1980 en fjárlög greindu. Það er satt og rétt, að seinni part ársins í fyrra var innheimta tekju- og eignarskatta miklu slakari en menn gerðu ráð fyrir. En þar var um að kenna því almenna ástandi sem er í landinu og hæstv. ráðh. ætti manna best að vita um. Mér er sagt af þeim sem fylgjast með innheimtu tekju- og eignarskatta, að algengt innheimtuhlutfall á viðmiðunarári hafi verið frá 72–76% af álögðum sköttum á því ári sem skattarnir eru lagðir á, en núna varð innheimtuhlutfallið jafnvel undir 60%–66%. Sé það rétt, sem ég vefengi ekki, að innheimtir eignar- og tekjuskattar ríkissjóðs hafi verið 2–3 milljörðum gkr. minni en fjárlög gerðu ráð fyrir í fyrra, er það fyrst og fremst vegna slakrar innheimtu á því ári.
Hæstv. ráðh. ætti að hugleiða af hverju var slakari innheimta í fyrra en áður. Ég held að hún sé slakari vegna þess að svo er þrengt að atvinnurekstrinum að það eru kannske ódýrustu lán sem atvinnureksturinn getur fengið að skulda opinber gjöld, þó að þarna sé um að ræða gífurlega dráttarvexti eins og menn vita. Fyrirtæki í taprekstri geta ekki gengið inn í banka og fengið lán, auk þess sem þau eru dýrari en að skulda hæstv. ráðh. Þarna er skýringin fyrst og fremst á því, að innheimtir tekju- og eignarskattar í fyrra voru lægri en fjárlög gerðu ráð fyrir. En hæstv. ráðh. getur átt von á að innheimta þessa skatta á þessu ári. Vonandi fer ekki allt hér í kaldakol og hægt verði að ná þeim sköttum, sem voru lagðir á í fyrra, inn á þessu ári. Hæstv. ráðh. þarf ekki að hækka skatta á þessu ári til að jafna þetta bil, það fullyrði ég.
En hæstv. ráðh. kom inn á afkomu ríkissjóðs þegar hann ræddi hér um 2–3 milljarða sem vantaði á tekju- og eignarskatta. Ég tek eftir því, að nú eftir áramótin hefur verið eitthvað svo hljótt um afkomu ríkissjóðs í fyrra. Það var oft rætt um afkomu ríkissjóðs og menn gerðust spámannlega vaxnir, m.a. hæstv. forsrh., minnir mig, og svo tók hæstv. fjmrh. undir. Að vísu hafði hann lágt um það, á meðan hann var að semja við opinbera starfsmenn, að afkoma ríkissjóðs væri góð. En það hefur lítið heyrst um þetta eftir áramót. Og ef hæstv. ráðh. skyldi nú hafa í fórum sínum einhverjar upplýsingar til okkar í þessari hv. deild, sem erum að fjalla um þessa skatta í ríkissjóð, væri það vel þegið. Ég óska hér með eftir því ef hæstv. ráðh. gæti gefið okkur einhverjar upplýsingar í örfáum orðum um afkomu ríkissjóðs í fyrra.