28.01.1981
Neðri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1962 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)

151. mál, þingsköp Alþingis

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Hv. þm. Páll Pétursson lítur hér á sig sem fulltrúa þeirra sem ekki vil ja neinar breytingar. Ég verð að taka undir orð síðasta hv. ræðumanns um að skoða beri hvort ekki sé ráð, eftir að menn hafa fengið allverulegar launahækkanir hér á þingi, að lengja nokkuð þingtímann, þannig að sú regla verði niður felld, að jólafrí þm. miðist við þarfir hrúta hv. þm. Páls Péturssonar og sumarleyfi þm. miðist við þarfir áa hans.