28.01.1981
Neðri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (2205)

151. mál, þingsköp Alþingis

Páll Pétursson:

Herra forseti. Hv. þm. Árni Gunnarsson taldi bunkana hérna á borðunum okkar vera óþægilega stóra, og hann var raunamæddur yfir því, að þetta yrði kannske ekki afgreitt allt saman í vetur. Ég vil nú bara segja: guði sé lof, því að það gerir ekkert til þó sumt af því sé látið liggja. Sum mál verða náttúrlega fram að ganga. Sumt af því þarf nánari meðferð og tapar ekkert á því að bíða, en sumt af því er þannig lagt fyrir að það gerir ekkert til þó það komi aldrei til framkvæmda. Hvað varðar það að þingtíminn mætti vera lengri, þá hefur það bæði sína kosti og sína galla. Ég vissi reyndar ekki að hv. þm. Árni Gunnarsson eða hv. þm. Sighvatur Björgvinsson teldu sig vera iðjulausa þó að þingfundir væru ekki. Ég veit ekki betur en þeir þykist alltaf vera eitthvað að starfa sem þm. eða fyrir flokkinn sinn, a.m.k. þiggja þeir laun á sumrin líka. Ef þingið væri lengt skapast ein hætta enn, þ.e. að það yrði afgreitt meira af vitleysu heldur en þó er núna. Ég man þess dæmi, að á síðustu dögum þings hafi menn í ógáti hespað í gegn mátum sem hefðu mátt bíða eða jafnvel sofna alveg. (HBI: Áttir þú hlut að því?) Einstöku sinnum hef ég átt hlut að því, því miður.

Hv. þm. Pétur Sigurðsson var að harma það, að þingið hefði ekki komið saman strax í janúarbyrjun. Ef ég væri sjálfstæðismaður mundi ég ekki vera neitt að harma það. Það er ekki endilega víst að ykkur hefði lánast að vinna ykkur mikið til frægðar öllum þó að þið hefðuð komið hér strax á þrettándanum eða hvenær það nú var.

En hv. þm. Sighvati Björgvinssyni vil ég benda á það, að jólin eru út af fæðingarhátíð frelsarans, en ekki út af hrútunum mínum.