28.01.1981
Neðri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1971 í B-deild Alþingistíðinda. (2217)
180. mál, meðferð mála vegna rangrar notkunar stöðureita
Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. dómsmrh. er þetta frv. nú lagt fyrir hv. Alþingi í þriðja sinn og hefur í öll þessi skipti verið flutt hér í óbreyttri mynd.
Þegar frv. var flutt hér á síðasta Alþingi gerði ég tvær athugasemdir við frv. sem ég vil ítreka hér, vegna þess að þær eru enn í fullu gildi, og geri það í þeirri von, að sú hv. þingnefnd, sem þetta frv. fær til meðferðar, muni taka þessi atriði til athugunar, en önnur þessi athugsemd fellur mjög saman við þær athugasemdir sem borgarstjórn eða þeir forsvarsmenn Reykjavíkurborgar, sem um þetta mál hafa fjallað, hafa gert.
Í þessu frv. — sem ég tel að öðru leyti horfa mjög til bóta — er gert ráð fyrir því, eins og reyndar er í dag, að tvenns konar gjöld séu lögð vegna notkunar á stöðumælum. Það eru í fyrsta lagi stöðumælagjöldin, sem menn greiða þegar þeir hefja stöðuna, og í öðru lagi svonefnd aukaleigugjöld, en það eru gjöld sem lögð eru á menn á eftir-ef þeir standa lengur við mælana en heimilt er eða þeir hafa greitt fyrir.
Það er gert ráð fyrir í þessu lagafrv. að sveitarstjórnir taki að sér eftirlit með notkun stöðumæla og að dómsmrh. löggildi sérstaka stöðumælaverði í þessu skyni. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir að aukaleigugjöldin, sem eru langstærsti hluti þeirra gjalda sem fyrir stöðumælana koma, renni í sveitarsjóðinn. Það er gert ráð fyrir að stöðumælagjöldin renni í sveitarsjóð eða borgarsjóð, en hins vegar að aukaleigugjöldin renni í ríkissjóð. Þetta finnst mér mjög óeðlilegt. Ég tel rétt að sami aðili sjái um eftirlitið og hirði tekjur af innheimtu. Þetta eftirlit hefur verulegan kostnað í för með sér. Bæði kosta stöðumælarnir sjálfir mikið og sá starfskraftur sem í það fer að annast eftirlit með þeim, og þess vegna er eðlilegt að sá aðili, sveitarfélag í þessu tilfelli, sem á að annast þetta eftirlit og bera af því kostnað, fái þær tekjur sem stöðumælarnir gefa.
Ég held að hér sé ekki um neinn tekjustofn að ræða fyrir sveitarfélög. A.m.k. hefur reynslan ekki verið sú hér í Reykjavík, heldur eru veruleg útgjöld þessu samfara, og hvorki stöðumælagjöldin né aukaleigugjöldin hafa nægt til þess að bera uppi þennan kostnað. Þess vegna finnst mér óeðlilegt, eins og frv. gerir ráð fyrir, að ríkissjóður ætli að taka stærsta hlutann af þeim tekjum sem þetta gefur.
Ég vænti þess, að hv. þingnefnd taki þetta mál til athugunar.
Hitt atriðið, sem ég vildi gera að umtalsefni, er í 7. gr. frv., en þar segir að þau gjöld, sem lögð eru á eigendur bifreiða vegna rangrar notkunar stöðureita, njóti lögtaksréttar og lögveðs í víðkomandi ökutæki. Ég hef engar athugasemdir við það, en hins vegar hef ég athugasemdir við 2. tölul. þessarar greinar, þar sem segir að lögveð samkv. þessari grein gangi á undan öllum veðum öðrum en lögveðum vegna bifreiðagjalda og iðgjalda vegna lögboðinnar ábyrgðartryggingar ökutækja.
Hér er um að ræða mjög óvissar upphæðir sem kunna að falla á einstök ökutæki, en við vitum að ökutæki eru allmikið notuð í viðskiptum manna á meðal sem andlag fyrir veðsetningar, t.d. við kaup á bifreiðum. Þegar bifreiðar skipta um eigendur er iðulega lánaður hluti af kaupverðinu og veð tekið í bifreiðinni á móti, en með þessari grein mundi áhættan verða svo mikil við slík viðskipti að nánast er ólíklegt að bifreiðar verði lengur notaðar sem andlag fyrir veð í viðskiptum. Menn taka ekki veð í bifreiðum ef þeir vita aldrei hvað á þeim hvílir á undan. Með því að ætla að láta þetta lögveð ganga á undan öllum öðrum veðum finnst mér gengið of langt. Ég held að ríkissjóður hafi alveg næga tryggingu fyrir þessum gjöldum þó að lögveðin falli inn í eðlilega röð annarra veða í bifreiðinni.
Ég vil láta þessar athugasemdir koma fram, áður en málið gengur til hv. nefndar, og vænti þess, að hún taki þessar athugasemdir til athugunar.