29.01.1981
Sameinað þing: 43. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (2227)
86. mál, iðnaðarstefna
Guðmundur G. Þórarinsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð sem innlegg í þær umræður sem hér fara fram nú.
Hæstv. iðnrh. fór nokkrum orðum um þær styrktaraðgerðir sem rætt hefur verið mikið um að undanförnu í nágrannalöndum okkar og mörgum helstu viðskiptalöndum. Hann taldi að þar væri fremur verið að draga úr þessum aðgerðum, enda væru þær ekki til góðs þegar til lengdar léti. Ég vil vona að það sé rétt mat hjá honum. Hann vitnaði sérstaklega til Noregs í sínu máli.
Einhvern veginn segir mér svo hugur um, að flestar þessar þjóðir feli þessar styrktaraðgerðir sem einhvers konar atvinnustyrkjandi aðgerðir, byggðastefnuaðgerðir, atvinnuleysisbætur eða eitthvað slíkt, og það kann að vera erfitt að finna þær. Það eru sérfróðir menn sem sérstaklega leita að leiðum til þess — ég vil segja: beinlínis að fela þessar aðgerðir.
Félag ísl. iðnrekenda hefur hvað eftir annað gert þetta mál að umræðuefni og bent á fjölmörg atriði í þessu sambandi. Sérstaklega hefur verið bent á að t.a.m. í Svíþjóð eru veittir sérstakir flutningastyrkir til iðnfyrirtækja sem geta numið 15–35% af flutningskostnaði vegna aðfanga og afurða. Þar eru auðvitað um mikinn styrk að ræða. Í Svíþjóð er líka um að ræða sérstaka gjald- og greiðsluþrotastyrki, styrki sem geta numið allt að 50% af launakostnaði fyrirtækja sem eru í miklum greiðsluerfiðleikum. Í Svíþjóð er líka til að greiddir eru sérstakir styrkir í vissum greinum, t.d. í vefjar- og fataiðnaði, vegna eldri starfsmanna sem hjá þessum fyrirtækjum vinna, og dæmi eru um að 25 kr. sænskar eru greiddar á vinnustund með fólki sem er eldra en 50 ára. Hámark mun þó vera á slíkum styrk að hann geti ekki numið nema um 15% af heildarlaunakostnaði fyrirtækja.
Í Noregi hafa verið greiddir ýmsir rekstrarstyrkir og þeir hafa verið veittir ýmsum greinum, eins og t.d. húsgagnaframleiðendum og vefjar- og fataiðnaði, þar með talin veiðarfæragerð. Þessir styrkir hafa mest verið í formi fastrar krónutölu á vinnustund í fyrirtækjum og hún hefur verið talin nema á bilinu 2.00–3.40 kr. norskar á vinnustund. Það er mat manna, að nú um þessar mundir sé þessi styrkur 2.55 kr. norskar á vinnustund. Í Noregi er ríkiseinokun á innflutningi veiðarfæra. Er þar um að ræða Norges fiskeredskabsimport, sem jafnframt hefur einmitt sérstaklega verið rætt dálítið í okkar þjóðfélagi undanfarið, að erfitt muni reynast fyrir Íslendinga að flytja út veiðarfæri vegna þessara aðstæðna í Noregi.
Í Finnlandi er jafnvel um að ræða nokkurs konar ríkisábyrgð á kostnaðarhækkunum eða svonefnt „Kgaranti“, þ.e. að áhætta eða óvissa vegna innlendra kostnaðarhækkana er tryggð fyrirtækjum. Þetta er hreint ekki lítils virði. Jafnframt kemur fram í Finnlandi það sem kallað er niðurgreiðsla á vöxtum til minni útflytjenda þar í landi.
Í Noregi hafa verið veitt vaxtalaus fjárfestingarlán í vefjar- og fataiðnaði. Fjárfestingarstyrkir eru veittir í mörgum löndum EBE og eru þá styrkir vegna byggðastefnu í rauninni undanskildir. Það er talið, að fjárfestingarstyrkir til iðnfyrirtækja geti numið 15% í Bretlandi eða allt 2000–6000 pundum á hvern starfsmann.
Hér hefur verið bent á ýmis atriði sem Félag ísl. iðnrekenda hefur tíundað og eru hvert út af fyrir sig glettilega alvarleg fyrir innlendan iðnað í okkar landi. Það er alveg ljóst, að veikur iðnaður okkar á í vök að verjast þegar fluttar eru inn iðnaðarvörur sem beinlínis eru á þennan hátt styrktar eða niðurgreiddar í þessum löndum, en fluttar jafnvel inn undir yfirskini fríverslunarsamnings um að engir tollar skuli vera. Ég ítreka það enn, að í þessu sambandi hvílir mikil ábyrgð á íslenskum stjórnvöldum. Atvinnuleysi í löndunum í kringum okkur er gífurlegt og geigvænlegt og við þurfum mikillar varúðar að gæta svo að það breiðist ekki út til okkar líka. Auðvitað er það vísasta leiðin til þess að drepa veikan iðnað ef slíkir styrkir eru beinlínis fluttir hér inn eða þessar þjóðir flytja út atvinnuleysi sitt á þennan hátt hingað til okkar. Ég vil sérstaklega benda á þetta í þessum umræðum. Hins vegar geri ég mér fyllilega grein fyrir að hæstv. iðnrh. er öllum hnútum kunnugur í þessu sambandi, og ég treysti honum til að taka fast á þessu máli. Ég þykist vita að viðskrh. sé að vinna í þessu máli núna, og ég vænti þess, að innan tíðar komi nokkur úrslit í því.
Ég hef áður sagt það hér á þinginu, að innan Efnahagsbandalagsins mun starfa sérstök deild sem hefur það verkefni að fylgjast með niðurgreiðslum og undirboðum þannig að fríverslunarsamningur innan bandalagsins sé virkur. Slík deild bendir þá öðrum ríkjum á það, að þau verði að leggja á nokkurs konar jöfnunartolla til þess að verja sinn iðnað og koma í veg fyrir á þennan hátt — ég vil segja: óréttmæta viðskiptahætti. Þetta er geysilega mikið mál og mér segir svo hugur um að óhjákvæmilegt sé fyrir okkur Íslendinga að beita sérstökum jöfnunartollum einmitt á þær iðngreinar sem þannig eru fluttar hér inn. Og ég held að við eigum að koma þeim á fyrr en síðar. Ég vil sérstaklega ítreka í þessu sambandi þá þætti í þessari þáltill. sem lúta að samkeppnisaðstöðu innlends iðnaðar. Það er afar brýnt að þau mál séu tekin föstum tökum og samkeppnisaðstaðan, jafnréttisaðstaða innlends iðnaðar, sé tryggð. Á því má í rauninni ekki verða nein bið.
Ég gerði ítarlega grein fyrir mínum viðhorfum til þessarar að mörgu leyti ágætu þáltill., sem iðnrh. hefur látið vinna, í fyrri umr. hér á þinginu um þetta mál. En í framhaldi af þessu langar mig sérstaklega að bera fram eina fsp. til hæstv. iðnrh. og hún er þessi: Hvað líður því atriði, sem þarna er minnst á í þáltill. og reyndar er líka í okkar stjórnarsáttmála, sem er opinber innkaupastefna? Þar er stefna sem menn eru sammála um að innleiða: að kaupa innlendar iðnaðarvörur, að opinberir aðilar kaupi innlendar iðnaðarvörur, séu þær samkeppnisfærar að verði og gæðum, þá séu þær látnar ganga fyrir.
Ég fæ ekki séð að það sé ástæða til að halda um þetta mál langar ræður á Alþingi eða skrifa um það langar greinar eða flytja um það margar tillögur. Þetta er mál sem við eigum hreinlega að ganga frá. Þetta er mjög mikilvægt mál og það er brýnt að koma því í framkvæmd. Mig langar að heyra frá hæstv. iðnrh. hvað því máli líður.