29.01.1981
Sameinað þing: 43. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1989 í B-deild Alþingistíðinda. (2233)

63. mál, fjarskiptaþjónusta á Gufuskálum

Davíð Aðalsteinsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að eyða löngu máli varðandi þessa till. til þál. Hv. flm. hefur gert glögga grein fyrir henni og ástæðum hennar. Í mínum huga er slík tillaga fyrst og fremst reist á þeim forsendum að gæta öryggis sjómanna.

Það er mála sannast, að fjarskiptasamband er ekki nægjanlega gott víða um land. Eins og kom fram hjá hv. flm. er því þannig farið á því svæði sem till. fjallar um. Það er skylda okkar gagnvart sjómönnum okkar að sjá fyrir og stuðla að sem allra bestum og mestum fjarskiptum. Það er stórmál, hefur verið það, er og verður.

Sú till., sem hér um ræðir, er bundin við eitt svæði. Ég álít hins vegar eðlilegra að taka slíkt mál upp á breiðari grundvelli og athuga í samhengi landið allt í þessu tilliti. En ég lýsi yfir fyllsta stuðningi við þessa till. Ég tel hana af hinu góða og lýsi fyllsta stuðningi við hana.