29.01.1981
Sameinað þing: 43. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1990 í B-deild Alþingistíðinda. (2234)
63. mál, fjarskiptaþjónusta á Gufuskálum
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Það er ekki af því að ég þurfi hér neinu við að bæta öðru en því, að mér hefur borist í hendur ályktun frá aðalfundi útvegsmanna og sjómanna á Snæfellsnesi þar sem skorað er á Alþingi að samþykkja þessa þáltill. Þar eru tilfærð ýmis þau rök sem þegar hafa komið fram í málinu, og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka þau hér. En þetta er mikið mál fyrir sjómenn á þessu svæði og þeir leggja mikla áherslu á að úrbætur fáist á þessu sviði.
Ég er enginn sérfræðingur í þessum málum, en ég vænti þess, að þessi þáltill. verði til þess að málið verði tekið fastari tökum og viðunandi úrbætur fáist í þessu sjálfsagða öryggismáli sjómanna.