29.01.1981
Sameinað þing: 43. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2006 í B-deild Alþingistíðinda. (2247)
121. mál, geðheilbrigðismál
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Hv. 1. flm. hefur gert skilmerkilega grein fyrir þeirri till. sem hér er fjallað um, en till. gerir fyrst og fremst ráð fyrir að komið verði á fót starfshóp sem taki til endurskoðunar stöðu geðheilbrigðismála í þessu landi, en jafnframt að gerðar verði tillögur um skipulag og úrbætur í bráð og lengd. Jafnframt eru talin upp í nokkrum liðum ýmis þau verkefni sem vinna þarf í næstu framtíð. Í grg. er fjallað nánar um þessa þætti alla með það að markmiði að sem flest komi inn í þessa umræðu um geðheilbrigðismál, ekki aðeins á hinu háa Alþingi heldur og ekki síður vegna þess starfs, sem till. gerir ráð fyrir að unnið verði, að finna þessum vandmeðfarna málaflokki, geðheilbrigðismálum, eðlilega farvegi.
Hér er aðeins fjallað um einn þátt í heilbrigðiskerfinu af mörgum sem vert væri að skoða með sem mestan árangur að markmiði, en jafnframt ráðdeild í fjármögnun. En forsenda þess að sjá yfir sviðið allt án þess að tapa áttum er að gera sér ljósa grein fyrir stöðu hinna einstöku þátta heilbrigðiskerfisins svo að komist verði sem næst því að vinna að málum í réttri röð. Ég hef ekki í hyggju að fjalla sérstaklega um einstaka liði till., heldur fara aðeins örfáum orðum um efnið.
Það er mála sannast að mjög margir verða einhvern tíma á lífsleiðinni fyrir andlegum áföllum, þótt ekki sé um að ræða andlega uppgjöf í öllum tilfellum, en slíkt er alltaf afstætt. Tilfinningaleg uppgjöf er e.t.v. miklu algengari þáttur samt sem áður í mannlegu lífi en menn gera sér almennt ljósa grein fyrir. Mikið tilfinningalegt álag stofnar í hættu ekki aðeins andlegri heilbrigði einstaklinganna, heldur einnig líkamlegri, sem birtist á margan hátt. Því er hiklaust haldið fram að þriðjungur sjúklinga, sem liggja á lyflæknisdeildum, hafi sem sjúkdómsvald tilfinningaleg eða geðræn vandamál. Þegar litið er til þessa ásamt fjölmörgu öðru, hljótum við að leiða hugann að mikilvægi þess að sinna geðheilbrigðismálum eins vel og kostur er, ekki aðeins vegna geðheilbrigði einstaklinganna, heldur líka vegna líkamlegra sjúkdóma sem sigla í kjölfar andlegrar óheilbrigði. Ég lít svo á, að það sé ekki of fast að orði kveðið að engin grein innan heilbrigðiskerfisins eigi við eins hatramma fordóma að stríða og einmitt sá málaflokkur sem við hér fjöllum um.
Ég gæti vel trúað því, að fjölmargir þeirra, sem heilbrigðir teljast, veigri sér jafnvel við því að tala um geðsjúkdóma nema þá í hálfum hljóðum. Þeir fordómar, sem hér hefur verið minnst á, eiga fyrst og fremst rætur í vanþekkingu og skilningsleysi þeirra sem heilbrigðir teljast. Það er óhæfa að sá, sem leita þarf hjálpar vegna andlegrar vanheilsu, skuli í mörgum tilfellum vera lítilsvirtur og jafnvel um langan tíma brennimerktur í því umhverfi sem hann lifir og starfar í. Slíkum viðhorfum er hægt að breyta, m.a. með aukinni fræðslu um þessi mál. En vegna ótta við sitt nánasta umhverfi og þau viðhorf, sem allt of víða eru ríkjandi, veigra margir sér við því að leita lækningar fyrr en í óefni er komið. Það er aldrei of oft á það minnt, hversu nauðsynlegt er að ná til sjúkra á byrjunarstigi. Þegar það tekst ekki verður lækning óhjákvæmilega mun erfiðari.
Enda þótt opinberar aðgerðir séu nauðsynlegar að því er varðar starfslið og stofnanir til að sinna andlega vanheilu fólki og samfélagið láti allmikið fé af hendi rakna í því skyni komumst við ekki hjá því að leiða hugann að þeirri þjóðfélagsgerð sem við búum við. Spyrjum við okkur nægilega oft þeirrar spurningar, hvort við leggjum okkur fram um að móta þjóðfélag okkar, bæta umgengnishætti okkar á þann veg að stuðlað verði að andlegri velferð og geðheilbrigði einstaklinga m.a.? Mér finnst það alls ekki undrunarefni að allur sá hraði og öll sú spenna og kröfuharka sem leiðir af sér streituþjóðfélag okkar valdi í fjölmörgum tilfellum vanheilsu hjá fjölda einstaklinga. Auðvitað ber okkur skylda til þess að geðsjúkir fái notið allrar þeirrar aðstoðar sem samfélagið getur veitt, en það gerum við ekki eingöngu á forsendum stórra og mikilfenglegra stofnana, þótt hlutverk þeirra verði aldrei dregið í efa. Að mínum dómi er mest um vert hvaða viðtökur sjúklingurinn fær að meðferð lokinni, sem vonandi hefur verið á þann veg að leitast hefur verið við að hjálpa honum til sjálfshjálpar. Það er skylda samfélagsins að stuðla að andlegri heilbrigði. Það er skylda samfélagsins að koma í veg fyrir aukaálag fordóma og gera hóflegar kröfur til þeirra, sem vanheilir eru á geði, þegar þeir hinir sömu reyna á ný að taka sinn sess í fjölskyldu, í atvinnu, í samfélagi okkar. Þar ræður allra mestu skilningur og mannleg hlýja, sem hvort tveggja kostar lítið.