29.01.1981
Sameinað þing: 43. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2009 í B-deild Alþingistíðinda. (2249)

121. mál, geðheilbrigðismál

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég mun ekki bæta löngu máli við framsöguræðu hv. þm. Helga Seljans, forustumanns um flutning þessa máls, sem ég vil enn þakka þrautseigju hans og áhuga og umhyggjusemi fyrir málefnum geðsjúkra. Hann gerði mjög ítarlega grein fyrir þessu máli í hinni upprunalegu framsöguræðu sinni er hann mælti fyrir þessari till. á þinginu í fyrra. Ég óskaði þess áðan að framsöguræða hans núna hefði verið skrifleg, þannig að auðveldara hefði verið að tryggja að henni yrðu gerð ítarleg skil hið fyrsta í dagblöðum.

Öðrum ræðumönnum, sem hér hafa tekið til máls, vil ég einnig þakka undirtektir þeirra undir þetta mál. Ég hygg að hv. þm. Árni Gunnarsson þurfi síður en svo að biðjast afsökunar á „fílósófískum“ eða heimspekilegum bollaleggingum sínum í sambandi við hina bágu stöðu geðsjúkra í samfélaginu því að hér fjöllum við raunverulega um vandamál sem e.t.v. í þessari stöðu og í tengslum við þetta mál stafar frekar af viðhorfi samfélagsins, — þess háttar samfélags sem Árni Gunnarsson lýsti lauslega, — viðhorfum samfélagsins til þeirra sem kallaðir eru geðsjúkir.

Við leikmenn vitum sáralítið um orsakir og eðli hinna ýmsu svonefndu geðsjúkdóma og komumst því miður að þeirri raun við athugun og í viðræðum við hina menntuðustu sérfræðinga í læknastétt á þessu sviði að einnig þeir vita sáralítið. Ég las fyrir tveimur mánuðum nýútkomna bók eftir heimsfrægan geðsjúkdómafræðing. Bókin heitir Schizophrenia, fjallar um sjúkdóm sem nefndur hefur verið geðklofi á íslensku, en fékk í upphafi þessarar aldar heitið „schizophrenia“. Þar heldur höfundur, þessi heimsfrægi sérfræðingur í geðsjúkdómum, því fram að schizophrenia sé ekki heiti á sjúkdómi, það hafi ekki tekist enn þá að sanna að schizophrenia, sem svo hefur verið nefnd í senn hundrað ár, sé sjúkdómur, heldur sé þetta lýsing á afbrigðilegu framferði miklu fremur. Heitið var búið til, enda þótt læknar þess tíma viðurkenndu það, þegar á þá var gengið, að þeir hefðu ekki greint þann sjúkdóm sem þeir skírðu schizophrenia, heldur var nafnið búið til til þess að réttlæta innilokun manna með þessi sérkennilegu hegðunarmerki, ekki af tillitssemi við hinn meinta sjúkling eða einstakling þann sem þannig hagaði sér, heldur af tillitssemi við frændur og granna til þess að þeir þyrftu ekki að horfa upp á þetta óþægilega „félagslega fyrirbæri“. — Alveg fram á vora daga er „schizophrenia“ notað sem sjúkdómsheiti. Að vísu hefur heldur dregið úr áráttunni til þess að loka þetta fólk inni innan þykkra veggja með grindur fyrir gluggum eða binda það í stíur, en heitið er enn þá notað sem sjúkdómsheiti, þó sjúkdómsgreining hafi enn ekki átt sér stað.

Mig brestur til þess þekkingu að ræða þessa hlið málsins svo nokkru megi góðu til leiðar koma. Hitt er alveg ljóst, að svo sem hv. frsm. kom inn á og raunar ræðumenn eftir hann brestur helst á í samfélagi okkar umhyggjuna með því fólki sem þjáist, hvort heldur af geðsjúkdómi sem kynni að eiga sér lífrænar orsakir eða tilfinningalegar, - samfélagslega umhyggju og ef við, sem ræðum þessi mál hér í Sþ., leyfum okkur að nota nafngift eins og félagslegt hjartalag eða pólitískt hjartalag í umfjöllun okkar um slík mál.

Ég er efalaus um það, að enda þótt hv. Alþingi geti litlu til leiðar komið í þá átt að auka vísindalega þekkingu eða fræðilega þekkingu á eðli þeirra fjölmörgu sjúkdóma, þeirra fjölmörgu einstaklingsbundnu vandamála sem hér er um að ræða og við fjöllum hér um undir einu heiti, sem eru geðsjúkdómar, þá á það að vera á valdi þessarar stofnunar að hvetja mjög til þess og eiga frumkvæði að því, að málefni þessara sjúklinga verði tekin allt öðrum félagslegum tökum en gert hefur verið fram til þessa og e.t.v. ekki síst að sjá til þess að sá kjánaskapur, sem enn þá virðist eiga sér rætur í brjóstum mjög margra manna og einna þungbærastur er fyrir þá einstaklinga sem sjúkir eru á þessu sviði, verði upprættur.

Enn þakka ég frumkvæði Helga Seljans að flutningi þessa máls og góðar undirtektir annarra ræðumanna og heiti mínum atbeina.