02.02.1981
Efri deild: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2016 í B-deild Alþingistíðinda. (2253)

193. mál, viðnám gegn verðbólgu

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Eins og að líkum lætur hafa umræður um brbl. ríkisstj. og svokallaða efnahagsstefnu hennar verið mjög miklar í síðasta mánuði og er ekki að furða, að menn hafi áhyggjur af þróun efnahagsmála, þegar fyrir liggur að hraði verðbólgunnar síðustu tvo mánuði liðins árs var kominn yfir 100% ef miðað er við heilt ár. Svo uggvænlega hefur aldrei áður horft í verðbólgumálum þó að oft hafi syrt í álinn. En þess er þó skylt að geta, að eitthvað hefði e.t.v. dregið úr verðbólguhraða fyrstu mánuði þessa árs, þar sem hækkanir voru mjög miklar í nóv. og des. Hafa raunar einstakir stjórnarliðar í því sambandi nefnt 70–80% verðbólgu 1981 án sérstakra aðgerða.

Stefna þeirrar ríkisstj., sem setti sér það meginmarkmið að koma verðbólgu niður í svipað stig og gerist í nálægum löndum, hafði sem sagt valdið því, að verðbólguhraðinn tvöfaldaðist og glæsilegt met var slegið þegar klukkan hringdi 100 — og gott betur. Áfram var þó haldið á braut skattheimtunnar og álaganna, m.a. með því að ákveða skattvísitölu 145, þegar hún átti að vera 153, og dengja á nýjum neysluskatti, verðbólguskatti, sem er nú vel á vegi að leggja tvær iðngreinar í rúst: sælgætis- og gosdrykkjaiðnað.

Auðvitað er skattrán hæstv. ríkisstj. í fullu samræmi við stefnu og lífsskoðun sósíalista. Þeir vilja fjármunina frá fólkinu. Og á síðari árum hefur þess gætt í vaxandi mæli, að framsóknarmenn hneigðust að hinu sama. Þeir nefna þetta aukna samneyslu og minni einkaneyslu. Eru þó margir hverjir hverjir framsóknarmenn að gera sér grein fyrir afleiðingum slíkrar stefnu óðaverðbólgu.

Sú kjaraskerðing, sem nú hefur verið ákveðin og nemur nærfellt 1/10 hluta launa, er auðvitað ekki ósamrýmanleg markmiðum vinstri manna, heldur fellur hún vel að þeirri þjóðfélagsgerð sem stjórnhyggjumenn, stjórnlyndir menn keppa að. Þeirra hugmyndir eru andstæðar frjálslyndinu, andstæðar sjálfstæðisstefnunni. Þar með er þó ekki sagt að ekki geti staðið svo á að allsherjarkjaraskerðing sé réttlætanleg eða óhjákvæmileg. Tímabundin kjaraskerðing getur meira að segja verið hyggileg ef hún er gerð til að búa í haginn og bæta kjörin síðar. Engu slíku er hins vegar til að dreifa að því er kaupskerðinguna núna varðar. Í besta falli er kannske

hægt að segja að hún bægi í bili frá því böli sem við blasti beinlínis af völdum stjórnarstefnunnar eða stefnuleysisins. Sem sagt, nærri 10% kjaraskerðing í einu lagi til viðbótar fyrri kjaraskerðingum vinstri stjórnar, sem Þjóðviljinn telur nema 16.6% á 18 mánuðum, á að nægja til að koma ríkisstj. til baka í þau spor sem hún fyrst tók fyrir réttu ári. Bærilegur árangur það, enda var stjórnin, eins og kunnugt er, mynduð til að bjarga virðingu Alþingis, með frumlegustu vinnubrögðum að vísu.

Í brbl. eru vísutöluskerðingarnar raunar aðeins taldar 7%, en því til viðbótar er skerðing samkv. svonefndum Ólafslögum og mun þar vera um að ræða 2.3%. Hygg ég að óumdeilanlegt sé að þetta sé mesta kauprán sem um getur, en til viðbótar koma svo fyrri kjaraskerðingar sem Þjóðviljinn telur, eins og áður segir, nema 16.6% á 18 mánuðum. Þannig hafa vinstri öflin nú slegið annað met, sitt eigið, því að 1. mars verða kjaraskerðingarráðstafanir vinstri manna komnar vel yfir 1% á mánuði hverjum sem þeir hafa verið við völd samkv. eigin upplýsingum.

Kjör manna hafa nú verið skert jafnt og þétt síðustu vikurnar og ríki og ríkisstofnanir gengið harðast fram við hvers kyns hækkanir. Alvarlega finna menn þó ekki fyrir þessu enn, en því meir sem á tíður vetur og vor. Þó held ég að flestir mundu reyna að una þessu ef eitthvað jákvætt fylgdi í kjölfarið, en það er öðru nær að slík teikn séu á lofti. Verðbólgan æðir áfram og mun hækkun verðbóta 1. júní ekki verða öllu minni en hún hefði orðið 1. mars ef ekkert hefði verið að gert, og samhliða minnkandi kaupmætti dregur úr umsvifum öllum og þrengist um atvinnu. Hagur atvinnufyrirtækjanna er mjög bágborinn og því miður mun margur atvinnurekandinn neyðast til að draga saman seglin eða hætta rekstri. Það eru menn að sjá þessa dagana þegar þeir fá bráðabirgðatölur um afkomu s.l. árs.

Eða hvað halda menn að þær fjölskyldur séu margar sem enga leið sjá til að borga verðbólguvextina af íbúðarlánum þegar laun hrökkva aðeins til nauðþurfta? Og hverjir skyldu nú hafa trú á því, að eitthvað raunhæft komi út úr bollaleggingum opinberra nefnda um úrræði til bjargar þessu fólki? Vita ekki allir að fjármálakerfið riðar til falls?

Því er haldið fram, að kjaraskerðingin muni valda því, að verðbólgan verði ekki nema 50–55% á þessu ári. Segjum að sú áætlun sé á rökum reist. En stjórnin ætlar sér að ná verðbólgu niður í 40% og framsóknarmenn kalla á viðbótarráðstafanir, en kommúnistar neita öllu slíku, — tölur hafa verið nefndar um 5% kjaraskerðingu til viðbótar 1. júní, 4% 1. sept. og 2% 1. des, — ef ekkert annað er að gert og verðbólgu- og skattaránsstefnunni er haldið áfram, halda menn þá í alvöru að slík pólitík gangi? Og hvað ætla þessir herrar að gera næsta ár og þar næsta samkv. kenningu hæstv. forsrh. um að stjórnin sitji út kjörtímabilið? Ætla þeir að taka landslýð allan í þegnskylduvinnu nema kannske hina nýju stétt, rétt eins og í kommúnistaríkjunum? Spyr sá sem ekki veit.

En þá er kannske ekki óeðlilegt að stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. spyrji okkur sjálfstæðismenn hvað við viljum gera, og er það þó ekkert heilagt leyndarmál. A.m.k. ætti hæstv. forsrh. að hafa hugmynd um alla þá vinnu sem mikill fjöldi sjálfstæðismanna hefur á undangengnum upplausnarárum í þjóðlífinu lagt á sig við nýja stefnumörkun. Kannske hafa sjónarmið okkar ekki komist nægilega vel til skila, enda skal ég fyrstur játa að ítarlegar stjórnmálaályktanir eru lítt aðgengilegt lesefni, en megindrættir ættu þó að geta verið skýrir. Ég skal nefna nokkur dæmi þess, hvar skilur á milli stefnu Sjálfstfl. og ríkisstj.

Ríkisstj. hækkar skatta í sífellu: tekjuskatta, eignarskatta, fasteignaskatta og neysluskatta, nú síðast með því að falsa skattvísitölu og leggja gjaldið fræga á öl og sælgæti.

Sjálfstfl. hefur margsinnis ályktað að hann vilji afnema alla vinstri skattana. Kannske reynist erfitt að gera það í einni andrá, en ljóst er að flokkurinn mun draga stórlega úr skattheimtu þegar hann fær til þess völd og áhrif, enda er gersamlega vonlaust að ráða niðurlögum verðbólgu við ríkjandi skattrán.

Ríkisstj. gerir ekkert til að tryggja hag lífeyrisþega og horfir á lífeyrissjóðakerfið brenna til ösku í upplausnareldinum.

Sjálfstfl. hefur lagt fram frv. um Lífeyrissjóð Íslands, þar sem kveðið er á um fullan verðtryggðan lífeyri fyrir landsmenn alla og gerbreytt kerfi sem engum íþyngir, en afnemur hróplegt ranglæti.

Ríkisstj. boðar nýtt uppbóta- og millifærslukerfi og bónbjargarstefnu í atvinnumálum.

Sjálfstfl. vill öflug og sjálfstæð atvinnufyrirtæki í eigu einstaklinga og félaga þeirra og leggur megináherslu á að landsmenn allir geti verið þátttakendur í atvinnurekstri, m.a. í almenningshlutafélögum. Ríkisstj. þvælist fyrir virkjunum og öflugum iðnaði.

Sjálfstfl. vill margar stórvirkjanir og iðnvæðingu, þ. á m. stóriðju, sem beri uppi yfirbyggingu þjóðfélagsins.

Ríkisstj. ber ábyrgð á því, að verslunin er á vonarvöl og getur ekki sinnt hlutverki sínu, sérstaklega dreifbýlisverslunin.

Sjálfstfl. vill öfluga frjálsa verslun og stóraukna samkeppni til að bæta viðskiptakjörin.

Ríkisstj. keppir að því að auka miðstjórnarvald á öllum sviðum.

Sjálfstfl. vill dreifa valdinu, m.a. með því að bæta fjárhag sveitarfélaga og auka áhrifavald þeirra. Ríkisstj. vill skattráns- og verðbólgustefnu. Sjálfstfl.

vill leggja til atlögu við verðbólguna með raunhæfum úrræðum og það ætti nú að vera meginviðfangsefni lýðræðisflokkanna allra.

Hér hafa aðeins verið nefnd nokkur dæmi og sjálfsagt segir nú einhver: Heyrt hef ég þetta áður, og óska nánari skýringa, sérstaklega að því er síðasta liðinn varðar, þann sem fjallar um viðureign við verðbólgu, þó að raunar séu allir liðirnir lífsnauðsynlegir þættir í þeirri heildarstefnu, sem ein getur leitt til árangurs í þeirri baráttu sem lýðræðisöfl ættu í sameiningu að taka upp gegn verðbólgudraugnum.

Fyrst spyrja menn kannske: Er hægt að afnema alla vinstri skattana? Spyrja má til baka: Lifði þjóðin ekki betra og heiðarlegra lífi áður en þeir voru á lagðir? Þessir viðbótarskattar nema á þessu ári eitthvað nálægt 70 milljörðum gamalla kr. á föstu verðlagi. Þar er ekki um verðbólguhækkanir að ræða, heldur hækkun til viðbótar þeim. Auðvitað hafa einnig verið lagðar á ríkissjóð margvíslegar kvaðir og útgjöld sem gera skattalækkanir erfiðari. En ef við gæfum okkur að unnt væri að lækka skatta um þessa upphæð, þá mætti nota svigrúmið til að lækka vöruverð. T.d. nægði þessi upphæð til að draga úr verðbólgu með minni álögum ríkisins, með því að minnka álögur á vöruverði sem næmi 20–25% á ársgrundvelli, og það án þess að lækka þyrfti kaup manna um eina einustu krónu.

Nú er áætlað að vísitöluhækkanir verði um 11% í júní. Ef helmingur þessara 70 milljarða væri á rúmu hálfu ári notaður til að létta af álögum og lækka vöruverð, þannig að vísitalan færi ekki yfir 6% 1. júní, væri gífurlegum árangri náð. Þá væru t.d. komnir á raunvextir án vaxtahækkana. En auðvitað þyrfti ótalmargt að fylgja í kjölfarið, þótt ekki sé það hér nefnt, einfaldlega til að sýna umbúðalaust skólabókardæmi um það, hvernig skattalækkun, andstæða vinstri vitleysunnar, gæti verkað. Menn segja að vísu að erfitt sé að skera niður útgjöld og þess vegna sjá þeir engin úrræði önnur en þau að hækka sífellt skatta. Síðast var gripið til gotteríisgjaldsins sem sáralitlu skilar í ríkissjóð, en er upplagður verðbólguhvati nú þegar nýr vísitölugrunnur er útreiknaður, svo að í flimtingum er haft að ódýrara sé að greiða niður kókið en mjólkina. Það er því von að menn spyrji: Hvar endar þetta? Á næst að fara með verðbólguna í 200% og kannske að hirða í þeim umganginum helminginn af laununum okkar?

Heimsþekktir hagfræðingar tala nú um að ráðast gegn verðbólgu með greiðsluhalla á ríkissjóði sem fjármagnaður verði með lánsfé. Vafalaust er þetta áhættusamt og væri hreint glapræði að reyna það nema festa fylgdi á öllum sviðum og m.a. væri ráðist af hörku að útgjalda og millifærsluliðum fjárlaga. Það væri því einungis á færi sterkrar og samhentrar ríkisstj. að framkvæma slíka stefnu. Samt fara Svíar nú þessa leið og fjármagna þriðjung ríkisútgjalda með lánsfé og það erlendu lánsfé. Sýnist það vera djarft og varla til eftirbreytni fremur en niðurtalningarstefna Margrétar Thatcher í Bretlandi, sem fór að eins og stjórnvöld hér þegar hún hækkaði söluskatt úr 8% í 15 og lagði á háan bensínskatt. En raunar munu útgjöld íslenska ríkissjóðsins nú greidd að 1/10 hluta eða svo með erlendum lántökum, ef upp væri gert með sama hætti og í Svíþjóð en hérna heitir þetta hallalaus fjárlög og svo bara ofboðlítil lánsfjáráætlun. Það er bara örlítið dæmi um blekkingariðju stjórnlyndisaflanna.

Skuldasöfnunin er skilin frá fjárlögum og þannig er allt slétt og fellt og ráðist með niðurskurði að framkvæmdaliðum fjárlaga.

Ef unnt reyndist að koma á t.d. 5% raunvöxtum án vaxtahækkana mundi heilbrigður fjármagnsmarkaður skapast bæði fyrir atvinnulífið, ríkissjóð og margháttaða fjárfestingarsjóði sem þá þyrfti ekki að veita fé til á fjárlögum. Jafnframt mundu vextirnir hjálpa til að þrýsta verðbólgu niður og því gætu þeir lækkað smátt og smátt með hjaðnandi verðbólgu, gagnstætt því sem verið hefur, þegar þeir hafa elt hana og keyrt hana áfram.

Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur fjallað mjög ítarlega um efnahagsmál að undanförnu. Mun flokkurinn flytja brtt. við brbl. þegar þau koma til nefndar, eins og boðað hefur verið, og gera síðan nánari grein fyrir þeim úrræðum sem sjálfstæðismenn telja líklegust til árangurs. Raunar eru nú blessuð brbl. með þeim endemum að varla er upp á þau lappandi, og væri því kannske eðlilegast að flytja sjálfstætt frv. um þá gerbreyttu efnahagsstefnu sem óhjákvæmileg er ef ná á tökum á fjármálum og forðast að enn sígi á ógæfuhliðina í atvinnumálum. Skulu nú þessum endemislögum gerð nokkur skil grein fyrir grein, svo að höfundarnir, lögspekingarnir, fái notið sín.

1. gr. fjallar um að framlengja svokallaða verðstöðvun til 1. maí n.k. Verðstöðvun var í gildi og hafði verið í áratug, einmitt þann áratug sem hækkanir hafa verið hömlulausar. Greinin er því endaleysa. Sér það raunar hver maður, því að stöðugar verðhækkanir dengjast yfir dag hvern hvað sem líður öllum bréfaskriftum innan kerfisins. Þetta eru því venjulegar blekkingar.

2. gr. er, þótt merkilegt megi heita, um efnisatriði sem rétt var að taka afstöðu til fyrir áramót. Þar er fjallað um vaxtamál og breytt því ákvæði Ólafslaga að raunvextir verði komnir á í árslok 1980. Fresturinn er lengdur um eitt ár, eins og hæstv. forsrh. gat um. Um þetta mál spunnust miklar umr. á Alþingi fyrir hátíðar og þar benti ég hæstv. ráðh. t.d. á það, að hægurinn væri hjá að breyta lögunum strax á Alþingi, t.d. þannig að ríkisstj. fengi heimild til vaxtaákvörðunar um áramótin, svo að engin brbl. þyrfti að gefa út af þessum sökum. Það var ekki tekið í mál, því að nú skyldi sýnt í eitt skipti fyrir öll hvar mátturinn væri og dýrðin. Þá mundi þjóðin sannfærast um óskeikulleikann og festuna í stjórnarfarinu. Ríkisstj. þyrfti ekkert undir Alþingi að sækja, enda væri virðing þess engin eftir að henni var bjargað sællar minningar fyrir einu ári. Og stjórnarskráin mátti líka fara veg allrar veraldar, enda handónýtt plagg eins og hugsjónamenn, sem í hálfa öld hafa unnið að endurskoðun hennar, hafa margsinnis sýnt fram á. Þessi grein frv. var því „lífsnauðsyn“, enda lá fyrir að vextir hefðu hækkað um nálægt 10% ef ekkert hefði verið að gert.

En bæta þurfti um betur og þá er komið að 3. gr. Þar segir:

„Stofna skal til verðtryggðra sparifjárreikninga í bönkum og sparisjóðum, þar sem binda má fé til sex mánaða.“

Hvað þýðir þetta? Ósköp einfaldlega að sparifé verður svo til allt verðtryggt og endurgjald fyrir peninganotkun, þ.e. vextir og verðtrygging, verður eitthvað hærra en Ólafslagaákvæðin gerðu ráð fyrir. Líklega verður vaxtahækkunin 11–12% í stað 10. Bar nú brýna nauðsyn til þessarar lagabreytingar? Hvað segja vísir stjórnlagafræðingar og doktorar um það mál? Hæstv. forsrh. sagði raunar áðan að þetta mundi stórauka sparnað og sparifé mundi fara á þessa bundnu verðtryggðu reikninga og það þyrfti að stytta binditímann til þess að allt féð leitaði þangað, yrði fært úr tveim árum í sex mánuði. Auðvitað leitar sparifé þangað — og hverjir verða þá vextirnir? Ég leyfi mér að skjóta inn spurningu til hæstv. forsrh. að gefnu tilefni um vaxtamálin sem síðustu sólarhringa hafa verið að velkjast í ríkisstj., frá 26. jan. skildist mér á honum. Hún er eitthvað á þessa leið: Hefur hæstv. ríkisstj. tekið ákvörðun um vaxtamálin samkv. þeim merku lögum sem hér eru til umræðu, og ef svo er, hverjir verða þá vextirnir og verðtryggingin og hvað hefðu þeir orðið eftir tillögum Seðlabankans? Áttu þær ekki að koma til framkvæmda 1. febr., það skildist manni á Seðlabankanum? En nú eru þær sem sagt að velkjast í ríkisstj., eru þar til athugunar og umræðu, eins og það heitir á fína, nýja málinu. Ég endurtek spurninguna: Hverjir verða þessir vextir á verðtryggðu sex mánaða bókunum, vextir og verðtrygging samanlagt? Þeir verða örugglega hærri en samkv. Ólafslögum. Það er því ekki hér um neina vaxtalækkun að ræða, heldur vaxtahækkun. Það þurfti því engin brbl. að gefa út til að afnema ákvæði Ólafslaga, það er alveg ljóst. Það var þó eina ákvæðið í brbl. sem menn héldu að hefði verið nauðsyn á, þannig að það fer ekkert á milli mála að stjórnarskráin er vísvitandi sniðgengin, svo að ekki sé meira sagt.

En þá er komið að 4., 5. og 6. gr. Það eru greinar um kjaraskerðinguna 1. mars. Þar er svo sannarlega um efnisatriði að ræða og það meira en lítið afdrifaríkt. En nú er febrúar hins vegar að hefjast og löggjafarsamkoman hefur fyrir náð fengið að koma saman á ný. Ef réttar lýðræðis- og þingræðisreglur væru virtar og lágmarksheiðarleiki átti Alþingi að fjalla um málið, en það ekki að útkljást með brbl. þar sem tíminn var nægur.

Mér er ljóst að sumum finnst að svona vinnubrögð séu bara sniðug, og í þeim hópi er jafnvel lýðræðissinnað fólk. En hvernig væri að þetta góða fólk staldraði augnablik við og leiddi að því hugann, að einungis brotabrot mannkyns býr við raunverulegt lýðræði og lýðræðisþjóðir eiga undir högg að sækja og hafa átt undir högg að sækja, m.a. vegna þess að réttar leikreglur eru virtar að vettugi? Óttast menn kannske ekkert þann óhugnað sem viðgengist hefur í opinberu lífi allt s.l. ár og áður hefur verið óþekktur frá stofnun lýðveldisins? Er ekki mál að linni? Ég held að menn hefðu gott af að staldra við og hugleiða þessi mál öll, enda er mér tjáð að ekkert dæmi sé um það í sögu mannkynsins, sögu lýðræðisins, að lýðræðislegt stjórnarfar hafi í meira en áratug getað staðið af sér jafnmikla verðbólgu og hér er nú. Það mun ekki vera til dæmi um það. Við þekkjum sögu Weimarlýðveldisins. Við þekkjum reynslu Suður-Ameríkuríkja. Og það má nefna enn eitt dæmi, Ísrael, þar sem verðbólga er enn þá meiri en hér og hefur verið í nokkur ár, að vísu ekki, held ég, nærri því í áratug, en þar er annað sem sameinar þá þjóð: styrjöld allan tímann. En það mun ekkert dæmi vera til um það í sögunni, að lýðræðið hafi staðið af sér í nærfellt heilan áratug annað eins stjórnarfar og við búum við í dag, hvað þá lengur. Það er þess vegna tími til að menn staldri við og hugsi sitt ráð.

Svo að ég haldi áfram með lögin, þá veitir ríkisstj. sér í 7. gr. heimild til að fresta framkvæmdum samkv. fjárl. 1981. Þessari heimild á e.t.v. að beita síðar á árinu, eftir því sem hæstv. forsrh. var að upplýsa okkur um. T.d. ef ofþensla yrði eða spara þyrfti á öðrum sviðum, eins og hann nefndi það. Um þetta á að taka ákvörðun einhvern tíma, kannske á miðju ári. Þetta átti því að ákveða af Alþingi. En þar að auki hefur ríkisstj. slíka heimild að vissu marki í fjárlögunum sjálfum, þ.e. þriggja milljarða gamalla kr. Sú heimild er þegar í fjárlögum. Ef hún vildi fá hana rýmkaða átti hún auðvitað að flytja um það till. við afgreiðslu fjárlaga rétt fyrir jól í stað þess að setja um það brbl. rúmri viku síðar að Alþingi fornspurðu. Svo eru lagaprófessorarnir í ríkisstj. orðnir hugmyndaríkir í meira lagi. Þeir næla sér í brbl.-heimild til að fresta framkvæmdum samkv. lánsfjáráætlun sem hefur ekki einu sinni komið til umræðu á Alþingi, hvað þá verið afgreidd. Það er lögfest með brbl. á ábyrgð hæstv. utanrrh. Það hefði ég aldrei haldið að gæti gerst.

Af þessu getur hvert mannsbarn séð að brbl. eru píp, „marklaust blaður“ útleggst það í orðabók Menningarsjóðs. Þau eru píp, marklaust blaður, nema þau séu beinlínis sett í þeim tilgangi að storka lýðræðissinnuðu fólki á kommúníska vísu og venja menn við valdníðslu. Þau fræði kann valdaflokkur ríkisstj. og ráðherrar hans, a.m.k. tveir þeirra, manna best, og vita víst allir hvað við er átt.

Ein grein brbl. er eftir, 8. gr., og hún er merkust. Þar segir að lög þessi öðlist þegar gildi. Hún er þó skiljanleg. Brbl. hæstv. forsrh. Gunnars Thoroddsens fylgdi plagg sem er miklu áhugaverðara til gaumgæfilegrar skoðunar en lögin, og það er í æðimörgum liðum. Yfirskriftin er „Efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar.“ Freistandi væri að fara í gegnum þetta plagg lið fyrir lið til að sýna fram á það samband stjórnlyndishroka og blaðurs sem einkennir störf núv. hæstv. svonefndrar ríkisstjórnar. Ég geri það þó ekki nú, en e.t.v. síðar í umr., til að hindra ekki aðra þá, sem að þurfa að komast með ræður sínar, í að tala á hinum fasta þingfundartíma. Sannleikurinn er líka sá, að það, sem ekki segir í efnahagsstefnu ríkisstj. svonefndri, talar miklu skýrara máti en hitt, sem þar stendur. Þar stendur að vísu ótalmargt um aukna ofstjórnartilburði og þrælhert vinstri tök, millifærslur og opinbera afskiptasemi, en ekkert orð er um nein úrræði önnur en stórfellda kjaraskerðingu til að kljást við efnahagsvanda óðaverðbólgu. Og þar er komið að kjarna málsins. Það er sem sagt enn sem fyrr yfirlýst stefna ríkisstj. Gunnars Thoroddsens að leggja æ lengra út í fen vinstri stefnu, skattabrjálæðis, kjaraskerðingar og ofstjórnaræðis sem lamar allt framtak og hindrar framfarir. Það er raunar ekkert undarlegt, að kommúnistar færi sig með þessum hætti upp á skaftið úr því að þeim er rétt það. En nóg um það.

Ég greindi frá því áðan, að sjálfstæðismenn vilja útfærða efnahagsstefnu, sem er að sjálfsögðu í algerri andstöðu við verðbólgu- og kjaraskerðingarstefnu hæstv. ríkisstj., og vilja leita samstöðu lýðræðisafla utan og innan núv. ríkisstj. um stefnubreytingu, enda blasir voðinn við ef ekkert er að gert í efnahagsmálunum annað en það sem kommúnistar vilja hverju sinni: meiri ríkisafskipti, minna framtak, stöðvun framkvæmda og stöðug kjaraskerðing. Auðvitað hvorki viljum við né getum sett öðrum kostina. En við munum reyna til hins ítrasta að ná lýðræðislegri samstöðu um lífsnauðsynleg úrræði.

En til þess að von sé um að þetta takist er auðvitað eitt skilyrði sem menn verða að horfast í augu við. Ríkið verður að slaka á klónni. Það verður að draga úr sínum kröfum, það verður að koma til móts við fólkið. Kjörorðið gæti kannske verið: Ríkið slaki á klónni. Það er forsendan fyrir því, að hægt verði að brjóta í blað og taka upp gersamlega aðra efnahagsstefnu en þá sem nú er fylgt. Um þetta meginatriði ættu allir lýðræðissinnar að geta sameinast um stundarsakir a.m.k. Þá einangrast kommúnistar líka eins og vera ber, ekki síst eftir að ný kynslóð þrælskólaðra harðlínukommúnista hefur tekið öll völd í Alþb.

Ákveðin og sundurliðuð efnahagsstefna sjálfstæðismanna er auðvitað í samræmi við það sem við áður höfum sagt, en þó samræmd þeim breyttu aðstæðum sem við búum við þegar vinstri stefnan hefur endanlega gengið sér til húðar, orðið sér rækilega til skammar. En við teljum eðlilegra að sjónum sé nú beint að svokölluðum efnahagsúrræðum vinstri stjórnarinnar. Þegar fólk hefur gegnumlýst þau stendur ekki á okkur. Við munum nú sem fyrr leggja allt það af mörkum sem við megnum til að koma á ný kjölfestu í þjóðarskútuna. Oft var þörf, en nú er nauðsyn. Þess vegna verða lýðræðissinnar allir að endurskoða hug sinn.

Áðan sagði ég að ríkið yrði að slaka á klónni, verða þátttakandi í endurreisn heilbrigðs efnahags- og atvinnulífs, því að þolinmæði fólksins er á þrotum og flestum finnst enn að ríkið eigi að vera fyrir fólkið, en fólkið ekki fyrir það. Þetta er þó ekki skoðun allra, eins og dæmin sanna. En hvernig ætti nú ríkið seint og um síðir að koma til móts við fólkið? Ég skal nefna dæmi sem við sjálfstæðismenn höfum gælt við, en úrræðin eru óteljandi og ótímabært að bíta sig í eitt umfram annað. En við skulum þó og eigum auðvitað að láta hugann reika og reyna að finna nýjar leiðir, því að eitt er a.m.k. víst. Þær gömlu duga ekki til eins eða neins.

Snúum aftur til upphafs þessara orða, bollalegginga um gerbreytta efnahagsstefnu, að einsetja okkur að ráðast að rótum verðbólgunnar, skattheimtubrjálæðinu og ofstjórnaræðinu, leysa atvinnuvegina úr læðingi og hafna öllum millifærslutilburðum, setjum svo upp mismunandi dæmi, m.a. um skattalækkanir, eins og áður er að vikið, og áhrif þeirra í nýjum vísitöluútreikningum þar sem um réttan grunn er að ræða, en ekki gamla vísitölugrundvöllinn sem raunar var búið að skekkja og svindla á af öllum ríkisstj. Slík dæmi hafa lauslega verið útreiknuð allnokkur. Þau ganga svo sannarlega upp, hvað sem kerfiskarlar kunna að segja. Með þeim hætti er hægt að forðast allar frekari kjaraskerðingar en þær sem nú hata verið ákveðnar.

Samhliða verði svo óréttlæti í tryggingum og lífeyrismálum komið fyrir kattarnef með lögfestingu frv. sjálfstæðismanna í lífeyrismálum þar sem meginbreytingarnar yrðu þær að tekinn yrði upp einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn sem starfi á grundvelli gegnumstreymis iðgjalda: Lífeyrir verði veittur í hlutfalli við framtaldar tekjur og hann verði fullverðtryggður. Lífeyrisréttindum verði skipt jafnt á milli hjóna. Vinnuframlag húsmóður veiti lífeyrisrétt. Fæðingarorlof verði greitt í þrjá mánuði foreldrum sem eignast barn, í samræmi við launamissi þann tíma sem þarf að annast barnið. Heimavinnandi húsmæður njóti einnig fæðingarlauna. Öllum launþegum verði tryggð laun í allt að 12 mánuði ef þeir veikjast eða slasast. Atvinnurekendur geti tryggt sig fyrir áföllum af þessum sökum. Að lokinni þessari 12 mánaða launatryggingu fái launþeginn örorkutryggingu ef hann hefur ekki öðlast vinnuþrek á ný. — Þetta eru meginatriði í því merka frv. sem liggur fyrir þessu háa Alþingi og vonandi fæst afgreitt á þessu þingi, og þetta er einn mikilvægasti liðurinn í gerbreyttri stefnu í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum þessarar þjóðar, þeirri stefnu sem hlýtur að verða tekin upp ef við ætlum að koma hér á sæmilega heilbrigðu þjóðskipulagi, gagnstætt því frumskógarlífi vinstri stefnunnar sem þjóðin nú býr við, öllu því rangtæti þar sem hinn minni máttar nær aldrei rétti sínum, en hákarlarnir vaða uppi.

Og þá yrði auðvitað virkjana- og iðnaðarstefna hafin til vegs og virðingar, millifærslum og styrkjum hafnað í sjávarútvegi, frjálsræði og samkeppni komið á í innflutnings- og útflutningsverslun, horfið frá lénsskipulagi í landbúnaði og samgöngufyrirtækjum leyft að dafna og eflast. Þarna væri í einu orði sagt um framfara- og atvinnustefnu að ræða sem leysa mundi úr læðingi þau öfl sem drepin eru í kerfisdróma. Slík stefna mundi á örskömmum tíma bæta hag landslýðs alls og þannig yrði atvinnuleysisvofunni, sem farin er að sýna á sér ásjónuna, líka bægt frá og íslenskri þjóð búið það hlutskipti sem hún verðskuldar í langbesta og ríkasta landi veraldarinnar ef rétt er á málum haldið.