02.02.1981
Neðri deild: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (2282)

Umræður utan dagskrár

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Þetta er nú orðið meira þvoglið. Skilur hæstv. fjmrh. ekki að enn á hæstv. ríkisstj. eftir að leggja fram frv. sitt um lánsfjárheimildir? Í því frv. getur hún að sjálfsögðu, í till. sínum þar, framkvæmt hvaða niðurskurð sem hún vill innan marka lánsfjáráætlunar. Er hæstv. fjmrh. ógerningur að skilja þetta? Það er eðlilegt að svona mistök hendi þá hæstv. ráðh. og brosað sé að hæstv. ráðh. í fjmrn. og öðrum stofnunum sem fjalla um ríkisfjármál í þessu landi. Það er ósköp eðlilegt fyrst hæstv. ráðh. skilur þetta ekki enn. En látum það nú vera.

Hv. þm. Guðrún Helgadóttir lýsti því í útvarpi nú um jólin að það, sem helst þjáði þessa hæstv. ríkisstj. og þar á meðal ráðh. hennar eigin flokks, væri valdahroki. Hvað er það annað en valdahroki af hæstv. ríkisstj. að ákveða með brbl. í jólaleyfi þm. að hún hafi leyfi til að gera hvað svo sem hún vill við lagasetningu sem ekki er einu sinni byrjað að fjalla um á Alþingi? Hún hefur sem sé aflað sér með brbl. heimildar fyrir fram til að ógilda lagasetningu sem Alþingi á eftir að setja! Og hvar í ósköpunum, herra forseti, mundu slíkar starfsaðferðir enda ef hæstv. ríkisstj. gæti með brbl., t.d. áður en þing kemur saman, veitt sér heimild til að ógilda öll lög sem þingið ætti eftir að setja? Það er von að hv. þm. Guðrún Helgadóttir ræði um valdahroka ráðh. Og það er alveg furðulegt að hæstv. fjmrh. Ragnar Arnalds skuli ekki skilja þetta. En það er ekki furðulegt að það skuli vera hlegið að slíkri ríkisstj. í öllu fjármálakerfi ríkisins.