02.02.1981
Neðri deild: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (2283)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég vil taka það fram, að þegar komið var að máli við mig og óskað eftir því, að hv. þdm. fengju hér tveir orðið utan dagskrár um málefni sem þeim lá á hjarta, réð það auðvitað fyrst og fremst í mínum huga að ég er maður málfrelsis, en í öðru lagi eru auðvitað öll mál mikilvæg, en mismikilvæg, og á dagskrá eru í dag mál sem ekki geta talist í þungavigt a.m.k. Þar við bætist að hv. þdm. og hæstv. ráðh. hafa komið að máli við mig og óskað eftir að sjö af þessum níu málum yrðu tekin út af dagskrá og kæmu ekki til umr. Eftir yrðu þá fyrsta dagskrármálið, kirkjubyggingasjóður, og fimmta, um verðlag, þar sem 1. flm. er löngu horfinn af þingi. Því var það, að ég áleit að þessum tíma yrði ekki illa varið til þess að menn fengju öndinni frá sér hrundið um mikilvæg málefni sem þungt hvíldu á þeim. Fyrir því er það að ég vil vísa með öllu á bug að hér fari fram óeðlilegar umr., eins og kallað var hér upp að ástæðulausu.