03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2069 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)

177. mál, iðngarðar

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi hefur borið fram fsp. sína og lesið þá þál. sem fsp. hvílir á. Svar mitt er á þessa leið:

Með lagabreytingu vorið 1979 var Iðnlánasjóði heimilað að veita lán til byggingar iðngarða og þar sett á fót sérstök lánadeild í því skyni. Hinn 17. nóv. s.l. gaf iðnrn. síðan út reglugerð um lánadeild iðngarða við Iðnlánasjóð. Við undirbúning reglugerðarinnar var haft samráð við Samstarfsnefnd um iðnþróun, sem í eiga sæti aðilar er tengjast iðnaðinum í landinu, svo og við stjórn Iðnlánasjóðs. Í 1. gr. reglugerðarinnar segir:

„Samkvæmt heimild í lögum nr. 59/1979, um breyting á lögum um Iðnlánasjóð, skal starfrækt við sjóðinn sérstök deild er nefnist lánadeild iðngarða. Deildin hefur þann tilgang að veita stofnlán til sveitarfélaga, félagasamtaka og einstaklinga, sem reisa iðnaðarmannvirki, í því skyni að skapa starfsaðstöðu fyrir iðnfyrirtæki, efla þar með íslenskan iðnað og stuðla að hagkvæmari dreifingu iðnaðar um landið.“

Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um heimild fyrir stjórn Iðnlánasjóðs að leita eftir samstarfi við aðra sjóði um fjármögnun iðngarða eftir því sem þörf krefur.

Með starfsemi lánadeildar iðngarða skal stefnt að aukinni iðnaðarframleiðslu. Að öðru jöfnu skulu ný iðnaðarfyrirtæki sitja fyrir um aðgang að iðngörðum.

Samkvæmt reglugerðinni ber eigendum iðngarða að gera sérstakar samþykktir um stofnun þeirra og notkun. Heimilt er að setja þar reglur um tímabundin leiguhlunnindi fyrir fyrirtæki sem fær aðstöðu í iðngarði til að létta fjárhagslegar byrðar fyrirtækis sem er að hefja starf eða er á viðkvæmu breytingaskeiði.

Stjórn Iðnlánasjóðs ber hins vegar að forðast að lánveitingar til iðngarða leiði til neikvæðrar samkeppni milli fyrirtækja innan iðngarða og fyrirtækja sem utan við þá standa, hvort sem er innan einstakra byggðarlaga eða í landinu í heild.

Tekjur lánadeildar iðngarða voru ákvarðaðar í lögunum frá 1979 250 millj. gkr. á ári á árunum 1980–1983, sem taka ætti af almennu umráðafé Iðnlánasjóðs í þessu skyni. Annað umráðafé deildarinnar eru sérstök lán sem stjórn Iðnlánasjóðs tekur samkvæmt heimild í lánsfjáráætlun ár hvert.

Ýmsar sveitarstjórnir og aðrir aðilar hafa á undanförnum árum leitað eftir stuðningi við byggingu iðngarða og er með ráðstöfunum þessum verið að bæta úr brýnni þörf. Þegar mun hafa verið úthlutað lánum til sveitarfélaga vegna byggingar iðngarða og minnist ég sérstaklega iðngarða á Selfossi í því sambandi.

Ég vil leggja áherslu á gildi iðngarða fyrir hinar dreifðu byggðir landsins og væri æskilegt að Byggðasjóður veitti framlög til byggingar iðngarða á móti lánum Iðnlánasjóðs, en aðrir sjóðir iðnaðar, eins og Iðnþróunarsjóður, eiga vissulega að geta komið þar til, og vil ég þar minna á sérstök norræn lán, „regional-lán“, sem gert er ráð fyrir að tekin verði af Byggðasjóði og Iðnþróunarsjóði á yfirstandandi ári og væntanlega á hinu næsta til eflingar iðnaði hérlendis.

Ég vil og geta þess, að á vegum iðnrn. er nú í undirbúningi lagafrv. um stuðning við iðnþróun í landshlutunum og það átak, sem þar þarf að gera og margar þáltill. beinast að sem fluttar hafa verið af hv. þm. á þessu þingi og fyrri þingum og benda til þess, að áhugi er mjög vaxandi á þessum málum víða um landið.

Hagræðing að byggingu iðngarða getur verið mikil og ætla ég ekki að tíunda það ítarlega hér. Ljóst er að það getur í ýmsum tilvikum haft úrslitaáhrif fyrir uppbyggingu nýrra iðnfyrirtækja að auðvelda þeim að komast í hentugt húsnæði. Iðngarðar gefa einnig möguleika á margvíslegu samstarfi fyrirtækja. Þannig geta mörg smærri fyrirtæki notið innan iðngarða rekstrarhagræðis og aðbúnaðar sem aðeins hin stærri njóta venjulega. Ég tel að það sé mikilsvert að sveitarfélög hugi að þessum málum í sambandi við skipulagsmál þannig að þau geri ráð fyrir iðnaðarsvæðum og þá lóðum sérstaklega sem hentað gætu fyrir iðngarða. Ákveðin stöðlun í byggingum ætti einnig að koma til athugunar í þessu sambandi til að gera kostnað sem viðráðanlegastan í sambandi við slíkt iðnaðarhúsnæði.