03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)
177. mál, iðngarðar
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég átta mig ekki fyllilega á þeim orðum sem féllu hér frá hv. fyrirspyrjanda, að honum þætti ekki sæmilega að máli staðið við undirbúning iðngarða af hálfu rn. í sambandi við og í framhaldi af þeirri þál. sem hér er um að ræða. Það hafa sem sagt verið festir í lögum, eins og fram kom í svari mínu, möguleikar á að veita fjármagn í gegnum Iðnlánasjóð í þessu skyni, og þar var tryggð ákveðin lágmarksfjárupphæð, en engan veginn sett þak á að það mætti ekki veita meira fé til þess arna og afla lánsfjár einnig úr öðrum áttum en frá almennri fjárveitingu til Iðnlánasjóðs í þessu skyni.
Það er einmitt til athugunar, eins og ég gat um, að afla slíks fjármagns eftir því sem þörf krefur. Það hefur ekki verið fram að þessu um mikla ásókn að ræða eða eftirspurn eftir fjármagni í þessu skyni. En ég geri ráð fyrir að það fari mjög vaxandi eftir að reglugerð hefur verið sett um slíkt iðnaðarhúsnæði og það liggur ljósar fyrir hvaða kröfur verða til þess gerðar. Ég geri því ráð fyrir, að það verði þörf á verulega auknu fjármagni í þessu skyni á næstu árum, og þá verður auðvitað reynt að afla slíks fjármagns:
Fjármagnið, sem fyrirhugað er að taka og gert er ráð fyrir í lánsfjáráætlunardrögum þessa árs, bæði til Byggðasjóðs og til Iðnþróunarsjóðs, sem „regionallán“ í gegnum Norræna fjárfestingarbankann, ætti að einhverjum hluta að geta runnið til byggingar iðnaðarhúsnæðis, til byggingar iðngarða, og unnt ætti að vera að ráðstafa því þannig eftir því sem þörf krefur.
Þá nefndi hv. þm. að það stæði eftir að hafa samráð við þá aðila sem um er getið í þáltill. Flestir þeir aðilar, sem nefndir voru í þeirri till., eiga sæti í Samstarfsnefnd um iðnþróun sem hafði undirbúning þessarar reglugerðar sérstaklega með höndum, þannig að ég tel að gagnrýni að því leyti sé tilefnistaus, það hafi verið leitað til þeirra aðila sem eðlilegt er að kæmu inn í samráð um þetta, og ég hef ekki orðið var við neina efnislega gagnrýni á þá reglugerð sem út var gefin í nóv. s.l. um þessi efni.
Það er að sjálfsögðu með þetta mál sem önnur, að réttmætt er að endurmeta þau að fenginni reynslu. En hér er sem sagt verið að leggja upp í ferð í þessum efnum, búið að skapa þar ákveðinn grunn, og þó að iðngarðaheitið sé eldra en þessi þáltill. og lög og reglugerðir, sem sett hafa verið, er hér um verulega breytingu að ræða frá því sem var þegar talað um og lagt út í byggingu iðngarða t.d. hér í Reykjavík fyrir alllöngu. Því miður mun hluti af því húsnæði fljótlega hafa gengið til annarra þarfa. En það á að vera sæmilega tryggt að það húsnæði, sem reist mun verða samkvæmt sérstökum samþykktum sem iðngarðahúsnæði, haldist í slíkum notum, notist iðnfyrirtækjum til frambúðar. — Þetta vildi ég að fram kæmi.