03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)

177. mál, iðngarðar

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Á sínum tíma, þegar þessi þáltill. var hér til umr., lýsti ég yfir stuðningi við málið og gat þess jafnframt, að sveitarfélögin í landinu hefðu á árabili unnið að þessum málum og haft mikinn áhuga fyrir því að löggjöf eins og þarna er um að ræða yrði sett. Eins og allir, sem til þekkja, vita er mjög víða miklum vandkvæðum bundið að reisa ný iðnfyrirtæki og jafnvel að útvega hentugt húsnæði fyrir þjónustufyrirtæki sem víða er mjög mikil þörf fyrir í minni sveitarfélögum. Það var þess vegna mikilvægt að þetta mál fengi jákvæða meðferð. Ég tel að á vissan hátt hafi verið staðið að hluta til við framgang þessa máts með því að stofna lánadeild við Iðnlánasjóð. Hins vegar er sá galli á gjöf Njarðar, eins og hér hefur þegar komið fram, að það er ekki fyrr en rétt fyrir síðustu áramót að reglugerð um þessa lánadeild verður að veruleika og þess vegna hafa svo til engin lán verið veitt til iðngarðabygginga úr þessum sjóði.

Rétt er að gera sér grein fyrir að staðan í þessum málum er sú, að það hefur verið mjög mikil óvissa um framvindu þessa máls. Mér er kunnugt um að mörg sveitarfélög í landinu, sem hafa áhuga á þessu máli, hafa ekki farið af stað með undirbúning eða framkvæmdir á þessu sviði vegna þess að mikil óvissa hefur ríkt um hversu mikilla lánamöguleika væri að vænta. Ég tel að það sé mjög brýnt að auka kynningu á þeim möguleikum, sem þessi löggjöf eða reglugerð gefur, og umfram allt að auka fjármagnið, það er aðalatriðið.