03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2075 í B-deild Alþingistíðinda. (2306)
134. mál, kaup á togara til Þórshafnar og Raufarhafnar
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Ég átti víst eftir að þakka hæstv. ráðh. fyrir svarið síðast þegar þetta mál var til umr., fyrir einum og hálfum mánuði, og geri það hér með.
Vandamálið á þessum stað er að það vantar fisk hluta úr ári. Núna t.d. vantar engan fisk og það eru a.m.k. tíu ástralskar stúlkur í vinnu á Raufarhöfn. (Gripið fram í: En hvað með Þórshöfn?) Það vantar meira þar, það er rétt. Hitt er annað mál, að þeir höfðu togara þar sem gekk illa. Sá togari gengur sæmilega núna þaðan sem hann er gerður út. Það er staðreynd, að það hefur verið mjög erfitt að fá fólk frá þessum stöðum til að vera á togurunum. Það út af fyrir sig bætir ekki atvinnuástandið. (StJ: Hvaða staðreynd er það?) Það var a.m.k. staðreynd varðandi Fontinn. Eins og ég sagði: Það er nægur fiskur meiri hluta árs.
Nú vitum við það, að togaraflotinn er of stór og út frá því sjónarmiði einu saman hefði þurft að hugsa sig vel um áður en þessi kaup voru leyfð. Þar að auki er þessi togari byggður til að fullvinna fiskinn um borð þannig að hann veitir ekki mjög mikla atvinnu í landi með þeim búnaði sem hugsaður var eða a.m.k. til skamms tíma var hugsað að hafa um borð í honum. Hann mun sigla meiri hluta ársins með fiskinn. M.ö.o.: Þessi lausn er allt of dýr og það hefði verið miklu betra að leysa þetta mál með því að hjálpa þeim til að kaupa einn eða tvo báta.