03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2075 í B-deild Alþingistíðinda. (2308)

134. mál, kaup á togara til Þórshafnar og Raufarhafnar

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Fyrst þegar þetta mál var á dagskrá Sþ. gerði ég það að tillögu minni að birt yrðu bréfaskipti sem fram hafa farið vegna þessa máls frá þm. til hæstv. ríkisstj., frá ríkisstj. til Framkvæmdastofnunar og frá Framkvæmdastofnun — guð veit hvert — til ríkisstj. væntanlega, þannig að almenningur í þessu landi gæti kynnst því, hvernig svona mál eru rekin í íslenska ríkinu árið 1980. Það gæti orðið sumum fyrirmynd, en væntanlega öðrum víti til varnaðar.

Í þessari skýrslu, og ég ætla að ítreka áskorun mína til hæstv. ráðh., væri gott að kæmi fram hvernig togarinn umtalaði hefur hækkað í verði frá því að bréf þm. var skrifað og til dagsins í dag og af hvaða völdum, þannig að ekki aðeins hættu þm. hér í Sþ. að tala um mál sem ekki virðast liggja nægilega skýrt fyrir, heldur gæti þjóðin kynnst því, hvernig svona mál verður til, hvaða stefnu það tekur og hvaða endi það hlýtur.