03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2077 í B-deild Alþingistíðinda. (2311)

134. mál, kaup á togara til Þórshafnar og Raufarhafnar

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Því miður er ekki möguleiki að ræða þetta mál hér eins og þörf væri á. Menn athuga það ekki í þessum umr. að allt lífið, öll atvinna á þessum stöðum á Norðausturlandi byggist á sjávarafla. Menn athuga ekki að það hefur hvergi á landinu verið eins mikið atvinnuleysi og t.d. á Þórshöfn. Menn athuga það ekki heldur að erfitt er að halda við skipi þarna. Það sýnir sagan af Fontinum. Hann voru þeir neyddir til að kaupa á sínum tíma þó að þeir væru orðnir næstir í röðinni að fá nýtt skip erlendis frá.

Ég verð að segja það, að mér þykir dálítið hlálegt að heyra að sumir þm. kjördæmisins kvarta yfir sambandsleysi við kjósendur sína. (Gripið fram í.) Sumir, sagði ég. — Það er auðvitað þeirra mál hvaða samband þeir hafa, og ekkert við því að segja. En ég legg áherslu á að það verði ekki hopað frá þessu máli. Það hefur verið ýmislegt ofsagt bæði hér og annars staðar um þessi mál. Það kann að vera að ég taki til penna og rifji það allt saman upp á næstunni, a.m.k. ef á að fara að setja fótinn nú fyrir að þetta skip verði keypt.

Ég vil segja það að endingu, að menn verða að athuga að þó að upphæðir hækki þarna sem í öðrum framkvæmdum hér á Íslandi held ég að þetta sé kannske ekki miklu meira en í sambandi við aðra fjárfestingu. Það er ýmislegt sem kemur til og því miður ekki möguleiki á að rekja það hér og því verð ég að láta þessu lokið.