03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2077 í B-deild Alþingistíðinda. (2312)
134. mál, kaup á togara til Þórshafnar og Raufarhafnar
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég má til með að bæta örfáum orðum við og það er til þess aðeins að orðfæra álit Framkvæmdastofnunarinnar um að lausnin á atvinnumálum á norðausturhorninu væri að bæta við öðrum togara á þessu svæði. Það var ekki Framkvæmdastofnunin sem hefur uppgötvað þau sannindi sérstaklega.
Menn segja: Þessi staður á að vera bátaútvegsstaður. Við höfðum reynt ítrekað að styðja og styrkja bátaútveg á þessum stað, en hringinn í kringum landið í hverjum einasta þéttbýliskjarna þykjast menn ekki geta rekið frystihús og fiskvinnslustöðvar á nútímavísu nema hafa hið jafna og góða hráefni úr togveiðiskipum. Það var ekki Framkvæmdastofnunin sem réð því á sínum tíma þegar var hafin bygging á öðrum togara til handa Tálknafirði, 340 manna þorpi, — það eru þó 442 íbúar á Þórshöfn. Vestmannaeyjar, sem telja sér þó nauðsynlegt að hafa þrjá togara og leita með logandi ljósi eftir að fá fleiri keypta, voru frægasti bátaútvegsstaður í landinu, og bátaútvegsstaður var Bolungarvík og bátaútvegsstaðir voru Suðureyri og Flateyri, en allir þessir staðir hafa séð sig til knúna að halda uppi jafnri atvinnu og til þess að geta rekið þessi nýtísku frystihús að geta beitt slíkum tækjum fyrir sig. Á þessu byggðum við okkar álit, á reynslunni af því að við höfum ekki getað eflt bátaútveginn. — Þeir urðu fyrir stóráföllum einnig, en þetta sýndi sig að var staðreynd.
Það er fleira sem kemur til á þessu horni ef menn t.d. ætla að hafa skipan mála í sambandi við fiskveiðilögsögu með þeim hætti að um aldir alda verði lokað í norður frá Hraunhafnartanga út í 200 mílur og austur og norðaustur af Fonti út í 200 mílur fyrir öllum togveiðum.
Þetta þurfa menn auðvitað að endurskoða. Þetta hefur gert mönnum erfitt um vik þarna, því að þaðan er um einna lengstan sjó að sækja á mið af þeim stöðum sem við þekkjum í landinu. Þetta var okkar skoðun þegar við fengum það verkefni í hendur að leggja fyrir hæstv. ríkisstj. með hvaða hætti ráðin yrði til frambúðar, svo sem beðið var um, bót á hinu ískyggilega atvinnuástandi norðausturhornsins.
Það má líka geta þess, að þó að Þórshöfn búi við uppland og aðra þjónustu, en vinni ekki einvörðungu að vinnslu sjávarafla, hefur Raufarhöfn ekkert bakland þannig að öll hennar lífæð liggur út í sjó.