03.02.1981
Sameinað þing: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (2329)

179. mál, nýting kolmunna og vinnslustöð á Austurlandi

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 278 hef ég leyft mér að flytja till. til þál., svo hljóðandi:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að hefjast nú þegar handa um nýtingu kolmunna til veiða og vinnslu. Skal í því sambandi komið á fót vinnslustöð á Austurlandi (Reyðarfirði) til vinnslu kolmunnaafurða með frystingu og þurrkun í huga.“

Þessi till. er endurflutt. Hún var flutt á síðasta löggjafarþingi, en fékk þá ekki afgreiðslu, enda var hún flutt síðla á þinginu.

Það eru tveir menn aðallega og nær eingöngu sem ég hef stuðst við varðandi alla grg. þessa máls. Sá mikli áhugamaður Magni Kristjánsson er aðalhvatamaður þess, að þessari hugmynd er hreyft hér á Alþingi, — ekki aðeins vegna þess að hann er áhugamaður um það að veiða kolmunna og nýta þau verðmæti sem þar er að finna einmitt í okkar miklu vandræðum gagnvart ofnýttum fiskstofnum, heldur einnig vegna þess að hann hefur trú á því, að vinnsla kolmunnaafurða, bæði hvað snertir frystingu og þurrkun, sé mjög mikilvæg fyrir okkar þjóðarbúskap og við eigum að stefna að því að láta þær hugmyndir, sem nú eru uppi hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, ná sem fyrst fram. En einmitt þangað hef ég sótt annað meginefni þessarar grg., til Sigurjóns Arasonar sérfræðings í þeirri stofnun sem hefur alveg sérstaklega fjallað um kolmunnann og hugsanlega nýtingu hans og hefur stjórnað þeim vinnslutilraunum sem þegar hafa farið fram varðandi kolmunnann.

Ég ætla aðeins að stikla á því stærsta í þessari grg. og vitna til þeirra til skiptis hér eða til þeirra beggja, Magna Kristjánssonar og Sigurjóns Arasonar, varðandi þetta mál.

Það þarf ekki að rekja, held ég, fyrir hv. þm. eða fyrir neinum þá baráttu sem Magni Kristjánsson hefur staðið í varðandi nýtingu á kotmunnanum. Hann hefur talað þar um of fyrir daufum eyrum, menn hafa ekki hlustað á hann nægilega. Satt er að hér er um mikil vandkvæði að ræða í byrjun. En við hljótum að hugsa til þess, hve miklu magni af kolmunna er mokað upp hér rétt hjá okkur. Þetta telja Rússar t.d. ómaksins vert að gera rétt við landhelgismörk okkar. Þeir moka þar upp um 760 þús. lestum miðað við síðasta ár, að talið er, og það er ekkert smáræði af þeirri heildarveiði sem talin er að sé á kolmunna alls, eða um 1200 þús. lestir.

Magni segir m.a. í grein, sem hann skrifaði um þetta, með leyfi forseta:

„Umræða um ofnýtingu fiskstofna er fyrirferðarmikil. Samfara þeirri umræðu er stundum bent á að til eru vannýttir fiskstofnar. Það síðarnefnda fær ekki umfjöllun sem skyldi. Þvargað er fram og aftur um ofnýttu stofnana. Lengra nær umræðan oftast ekki og að sjálfsögðu fæst engin niðurstaða. Margir segja líka, að fiskiskipaflotinn sé allt of stór, og vilja selja bróðurpart flotans eða leggja honum. Þessi floti er nú einu sinni í höndum landsmanna og raunhæfari leið til úrbóta er að finna honum verkefni við hæfi.“

Í framhaldi af þessu ræðir Magni um kolmunnann, gerir honum góð skil, bæði varðandi uppeldisstöðvar hans og stofnstærð, og fer ég ekki nánar út í það. En hann segir svo, með leyfi forseta:

„Langbest veiðivon er, að því er menn nú best vita, á hrygningarstöðvunum, einnig við Færeyjar og svo í íslenskri fiskveiðilögsögu úti fyrir Austfjörðum og á Dohrnbanka. Það, sem gerir hlut okkar betri en ella, er sú staðreynd, að þegar kolmunninn heldur sig hér við land er hann í besta hugsanlegu ástandi, hvort sem er til manneldis eða mjölvinnslu.“

Síðan ræðir Magni þetta nánar, spyr t.d. að því, hvort við eigum skip til þess arna, og segir í lokin, með leyfi forseta:

„Við lauslega athugun sýndist mér að u.þ.b. 30 loðnuveiðiskip hafi 1000 hestafla vélar eða stærri og þar með möguleika að draga flotvörpu við sæmileg veðurskilyrði. Auk þess eru a.m.k. 3 skuttogarar sérlega hentugir til kolmunnaveiða.“

Þessi grein var rituð í ársbyrjun 1979, og til marks um þann stórhug, sem þar felst hjá Magna, eru þessi lokaorð hans, með leyfi forseta:

„Eins og áður segir veiddust hér við land aðeins 35 þús. lestir á s.l. ári af kolmunna. Setjum því markið hátt og veiðum í ár yfir 100 þús. lestir og 200 þús. lestir næsta ár. Þetta er framkvæmanlegt og mundi, eins og ég hef bent á, styrkja stöðuna þegar að kvótaskiptingu kemur, og ekki má gleyma blessuðum ríkiskassanum. Þar hlýtur að vera pláss fyrir þann gjaldeyrisauka sem af þessu hlytist. En til að þetta megi takast verður að hefjast handa. „Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær.“

Þetta segir Magni Kristjánsson. Menn vita að hann stendur í öðru nú en að veiða kolmunna og ekki síður þörfu verkefni, sem er vonandi að honum takist vel að leysa. En ég hygg að ef hann væri nú hér á landi mundi hann leggja orð í belg varðandi þær umræður, sem nú fara fram um verkefni fyrir loðnuflotann okkar, og mundi þá örugglega benda á það réttilega að við ættum að skoða þá möguleika sem í því felast að nýta kolmunnann til að leysa vandamál þess stóra flota sem nú virðist engin leið að leysa á annan hátt en þann að beina honum að einhverju leyti, kannske verulegu leyti, í þorskinn sem er talinn á mörkunum varðandi ofveiði.

Ég vík svo stuttlega að því sem kemur frá sérfræðingi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Það gildir sama um þann mann, að hann hefur tröllatrú á því, að við getum fært okkur í nyt kolmunnann, bæði til fiskmjölsframleiðslu og ekki síður til manneldis. Hann vitnar í það, að hann hafi staðið fyrir því, að vinnslutilraunir voru framkvæmdar á Eskifirði þar sem kolmunninn var unninn í skreið og verkunin var miðuð við tvo markaði, svo ólíkir sem þeir eru, annars vegar gæludýrafóður og hins vegar til manneldis í Nígeríu. Það kom í ljós að þessar vinnslutilraunir báru mjög góðan árangur. Hann segir hér að kostnaðartölurnar segi að vísu lítið af þeirri einföldu ástæðu að vinnslutilraunirnar hafi verið of takmarkaðar, en engu að síður fullyrðir hann í niðurlagi þeirrar skýrslu, sem hann gaf um vinnslutilraunirnar að kolmunnaveiðar við Ísland eigi að geta aukist verulega, og segir svo orðrétt, með leyfi forseta: „Raunhæft væri að stefna að a.m.k. 200 þús. tonna veiði árlega.“ Hér kemst hann að sömu niðurstöðu og Magni Kristjánsson komst að árið áður.

„Fyrstu árin þyrfti að gera ráð fyrir blönduðum veiðiskap, þ.e. landa hluta kolmunnans úr hverri veiðiferð til bræðslu og hinn hlutinn færi í vinnslu til manneldis, vegna þess að í landi er ekki til næg aðstaða til vinnslu á neyslufiski og eins hitt, að markaðir fyrir kolmunna til neyslu eru óvissir. Þurrkun kolmunnans getur farið fram á sama hátt og þurrkun annars smáfisks og skapast þá samfelldara hráefnisframboð. Einnig þarf að vera nægilega stór markaður fyrir þessa vöru. Töluverður markaður virðist vera á Norðurlöndum og víðar fyrir þurrkaðan smáfisk í gæludýrafóður og stór markaður er fyrir smáfiskskreið til manneldis í Nígeríu. Eins og áður er nefnt er framleiðsla á kolmunnaskreið sú vinnsla sem skilar mestum arði.“

Síðan víkur hann að vandamálinu sem er kannske aðalvandamátið sem þarf að snúa sér að: „Fiskverkendur og neytendur hafa ekki enn þá viðurkennt kolmunnann sem nýja tegund, heldur er sífellt reynt að framleiða úr honum afurðir, sem eru sambærilegar við þá fiskrétti sem nú þegar þekkjast á markaðnum. Kolmunninn hentar ekki vel í þessa fiskrétti og þar af leiðandi er markaðsverð kolmunnaafurða um 70% lægra en fyrir sambærilegar þorskafurðir.“

En síðan segir Sigurjón orðrétt: „Engin tæknileg vandkvæði eru á því að veiða og vinna kolmunna í afurðir til manneldis. Málið snýst því raunverulega um það verð, sem framleiðendur geta borgað fyrir hráefnið. Verðið er mjög háð markaðsverði fullunninnar vöru, sem þarf að vera það hátt, að ekki verði tap á rekstrinum.“

Síðan hefur hann sett hér upp ákveðna hugmynd um nýtingu og verðmætasköpun varðandi kolmunnaveiðarnar og gengur þá út frá því, að við höfum sölusamning upp á 5000 tonn af kolmunnaskreið til Nígeríu, gengur út frá ákveðnu skilaverði þar, en hitt fari svo í fiskmjölsvinnslu. Hann er hér með nýjustu útreikninga á þessu, frá nóv. 1980, þar sem hann er að tala um heildarskilaverðmæti annars vegar upp á 15 milljarða 375 millj. gkr. og dregur svo frá því stærsta kostnaðarliðinn, þ.e. olíunotkunina bæði fyrir veiðiflotann og fiskmjölsvinnsluna, og áætlar þann kostnað upp á 4 milljarða 950 millj. Hann slær því þannig föstu að verðmætasköpunin við kolmunnaveiðarnar yrði um 10 milljarðar og þá olíukostnaðurinn 25–30% af söluverðmæti kolmunnaafurðanna.

Sigurjón hefur sjálfur sagt að þetta séu tölur sem hann setji fram með nokkrum fyrirvara, og ég tel rétt að gera það hér einnig. Hann segir hins vegar að hann telji að þessar tölur, ef rétt væri að málum staðið og við gengjum í þetta verkefni af fullri alvöru, séu síst of lágar, en hann bendir líka á þau vandkvæði sem eru varðandi markaðsöflun okkar og varðandi hvernig við eigum að vinna kolmunnann öðruvísi en til fiskmjölsvinnslu. Það hefur áður komið fram að kolmunninn er mjög góður í mjöl, en hann er magur þannig að lýsisvinnsla úr kolmunna er lítt ábatasöm.

Ég held að ég þurfi ekki að hafa mörg fleiri orð um þessa tillögu. Vinnslustöð með fullkomnum búnaði er forsenda þess að við fáum úr því skorið hvort við getum nýtt kolmunnann á þann hátt sem okkar færustu sérfræðingar hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins telja að við eigum að gera. Hinir miklu möguleikar á frekari veiði eru mjög háðir því, hvort við ætlum eingöngu að snúa okkur að fiskmjölsvinnslu varðandi kolmunnann eða hvort við eigum að reyna hvort tveggja, þurrkun og frystingu á kolmunnanum til manneldis, í eins ríkum mæli og við getum aflað markaða fyrir.

Ég vil svo víkja að því í lokin, að Sigurjón hefur sett fram ákveðnar hugmyndir um, hvers vegna Reyðarfjörður er sérstaklega tekinn þarna inn í, og rekur fyrir því nokkur rök í lokin. Ég ætta ekki að fara að vitna í þau sérstaklega, en hann segir t.d. þar að hugsanleg kolmunnavinnsla á Austfjörðum eigi að vera fjölhæf vinnsla þannig að hægt væri að framleiða þurrkaðan eða frosinn kolmunna í sömu verstöðinni, hægt væri að nota sömu vinnsluvélar fyrir flökun og slægingu bæði í frystingu og þurrkun.

Ég fór víst rangt með tölur áðan. Ég vitnaði til Sovétmanna varðandi veiðar þeirra. Þá átti ég við árið 1979, en 1980 juku þeir enn hlutdeild sína í þessari veiði og fóru þá upp í kringum 1 millj. tonna, og stærsti hluti þess afla, sem þeir veiddu, veiddist rétt hér fyrir utan íslensku 200 mílna mörkin.

Sigurjón segir að lokum að kolmunni, sem fari eingöngu í mjölvinnslu verði ekki hagkvæmur kostur í framtíðinni, en hagkvæmnin liggi í verðmætasköpun á hráefninu í dýrari vöru en fiskmjöl og því sé vinnslustöð með fullkomnum búnaði brýn nauðsyn.

Ég held að það sé tvímælalaust að hér sé um brýnt þjóðhagslegt atriði að ræða, jafnt frá sjónarmiði fiskveiða og vinnslumöguleika. Að einhverri slíkri skipan mála, sem þessi till. lýtur að, þarf að vinna af fullri einurð og gera allt sem unnt er til að nýta þessa auðlind sem best. Því er till. aftur hreyft á Alþingi og þess að vænta, að hún verði tekin til skoðunar í nefnd. Ég vænti þess einnig, að í þeim vanda, sem við stöndum varðandi loðnuveiðiflota okkar, verði hugað rækilega að þeim möguleikum sem við höfum í kolmunnanum. Þó að við þurfum þar að koma til með vissa styrki og bætur í upphafi, því að öðruvísi fara menn ekki út í þessar veiðar, held ég að menn ættu vandlega að huga að þessu og eins því, að þetta er sú leið sem sérfræðingar okkar hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins benda sérstaklega á til að við getum aukið verðmætasköpun í sjávarútvegi alveg sérstaklega.

Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði þessari till. vísað til hv. atvmn.