04.02.1981
Efri deild: 47. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2110 í B-deild Alþingistíðinda. (2348)
Umræður utan dagskrár
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég verð að segja það strax, að ég er snortinn yfir því, að hæstv. sjútvrh. skuli hafa áhyggjur af mínu andlega ástandi og því, að ég komist ekki nægilega oft á skíði. Ég get huggað hann með því, að ég fer á skíði þegar ég á þess kost. Ég á þess ekki eins oft kost og ég kannske kysi og verð yfirleitt að láta mér nægja fjöllin og brekkurnar hér í kring, en það er önnur saga.
Hann vék að því hér, að ég teldi atvinnuástand í Stykkishólmi alvarlegt nú. Það voru ekki mín orð. Hins vegar veldur sú þróun, sem sýnilega er hér uppi, mér áhyggjum, og ég hygg að með þessu sé verið að stefna atvinnuástandi í Stykkishólmi í voða í framtíðinni, ef svo heldur fram sem horfir. Hitt sagði ég aldrei, að þar væri nú slæmt atvinnuástand, það eru hreinar rangfærslur.
Hæstv. ráðh. vék sömuleiðis að því, að það væri engan veginn augljóst að draga þyrfti úr þessum veiðum. Ég verð auðvitað að játa það, að ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði. Að því er þetta varðar hef ég eingöngu fyrir mér orð fiskifræðinga — og þá þess fiskifræðings sem mest hefur kannað þetta svæði — og hann telur að hér sé boginn spenntur til hins ýtrasta og það sé næsta augljóst, að til þess muni koma að aflamagnið þarna minnki, nema auðvitað því aðeins að saman fari mörg góð ár og mikil uppskera á þessum skeljamiðum.
Það er vissulega athyglisvert, að annar vinnsluaðilinn í Stykkishólmi hefur boðið mönnum á Brjánslæk, sem um er að tefla hér, aðstoð sína við að verka hjartaskel sem þarna er mikið af. Það er hárrétt, og satt að segja skil ég ekki hvers vegna það góða boð var ekki þegið í stað þess að allir skuli nú sækja í það sama, sem er þó ekki til skiptanna handa einum. Og þar á ég við handa einum stað.
Ég er hiklaust þeirrar skoðunar, að ef haldið verður áfram á þeirri braut sem hæstv. sjútvrh. fer nú, að dreifa út um allar jarðir þessu lítta magni sem þarna er til skiptanna, þá stefnir í óefni fyrir stað eins og Stykkishólm. Það gefur auga leið. En ég vek athygli á því, að hæstv. ráðh. svaraði ekki því sem ég spurði um, hvaða háttur yrði hafður á ef draga þyrfti úr og minnka leyfilegt veiðimagn. Verður þá skert að tiltölu hjá öllum eða verða afturkölluð leyfin til þeirra sem síðast fengu þau? Fá þeir, sem lengst hafa að þessu unnið, bæði á feitu árunum og mögru árunum, þá að halda sínu og það fólk sem við þetta vinnur? Ég spurði sömuleiðis — vegna þess að ég tel mig hafa rökstuddan grun um að sótt verði á frá fleiri stöðum um leyfi — hvort hæstv. ráðh. hefði í hyggju að veita leyfi til fleiri staða. Ef honum finnst rök hníga til þess að veita slík leyfi til Grundarfjarðar og til Brjánslækjar, eins og þegar hefur verið gert, þá hljóta sömu rök að hníga til þess að veita öðrum stöðum svona leyfi.
Sömuleiðis bar ég fram þá spurningu — og vitnaði hér í efnahagsstefnu ríkisstj. og stjórnarsáttmála — hvort þetta væri í samræmi við þá stefnu sem þar er boðuð. Ég les þau plögg þannig, að þessar aðgerðir ráðh. séu í hróplegu ósamræmi við stefnu ríkisstj., og þess vegna spurði ég. Því var hins vegar ekki svarað.
Að lokum aðeins þetta: Ég veit mætavel, eins og hæstv. ráðh., um það ástand sem þarna hefur verið, að einhverju magni af fiski hefur verið ekið í burt. Það er auðvitað ekki verjandi, og ég er reiðubúinn til þess hvenær sem er, ef ráðh. óskar, að vinna með honum og öðrum, sem málið snertir með einhverjum hætti, að því að leita lausnar á því máli. Mér finnst það sjálfsagt og eðlilegt og það skal ekki standa á mér.