05.02.1981
Sameinað þing: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2163 í B-deild Alþingistíðinda. (2384)
Umræður utan dagskrár
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að óska eftir þessari umr. Það er nauðsynlegt að þetta mál sé rætt rækilega eftir það moldviðri sem hefur verið þyrlað upp, aðallega í Morgunblaðinu, undanfarna daga um þetta mál. Ég flyt hv. þm. þakkir á sama hátt og þm. flutti mér hjartanlegar þakkir fyrir að ég skyldi gefa mér tíma til að mæta á þessum fundi.
Þetta er ákaflega víðtækt mál og mætti margt um það segja. Ég vil fyrst segja það þó, að það vakti nokkra undrun mína, að í ræðu hv. þm. voru dómar felldir mjög ákveðið. Ég skynjaði ekki í sjálfu sér að hv. þm. hefði út af fyrir sig neinar spurningar fram að færa. Þm. virtist greinilega hafa þörf fyrir að láta mig fá orð í eyra um sínar skoðanir á þessum málum frekar en leggja fyrir mig spurningar um málið. Ég hef út af fyrir sig alltaf gaman af því að heyra í hv. þm., en það er nokkuð óvenjulegt, þegar menn kveðja sér hljóðs utan dagskrár, að ekki séu bornar fram fsp., heldur í fyrstu ræðu felldur dómur yfir því embættisverki ráðh. sem spurt er um. En það er nú smáatriði í málinu, enda var ég að þakka þm. fyrir að taka málið hér upp og gefa mér kost á því að ræða það.
Samkv. lögum um lyfsöluleyfi frá 1963 eru þau yfirleitt veitt eftir umsögn nefndar lyfjafræðinga og lyfsala annars vegar og hins vegar eftir umsögn landlæknis. Ég hef aflað mér upplýsinga um hvernig leyfisveitingum hefur verið háttað á lyfsöluleyfum undanfarin ár. Ég gæti rakið það mjög ítarlega hér, en ætla ekki að gera. Ég vil aðeins nefna það, að í mjög mörgum tilvikum hefur það gerst, að ráðh. hefur valið annan umsækjanda um stöður en þann sem stöðunefnd og/eða landlæknir mæltu með sem fyrsta manni. Þetta stafar af því, að samkv. ákvæðum laga um lyfsöluleyfi ber ráðh. ábyrgð í þessum efnum. Hann verður sjálfur að meta stöðu mála. Stöðunefnd er ráðgefandi í þessum efnum og það er landlæknir einnig.
Það getur auðvitað verið álitamál, og um það mætti ræða hér síðar, hvort svona nefndir eigi að hafa algert vald í þessum efnum og ganga frá málum, eins og t.d. þessi nefnd í sambandi við lyfsöluleyfi og eins sú nefnd sem fjallar um stöðuveitingar lækna. Þó hefur verið talið að það væri eðlilegt að sá sem fer með framkvæmdavaldið í þessum efnum samkv. lögum, þ.e. ráðh., úrskurði um það og leggi sjálfur nokkurn dóm á efnisatriði málsins. Þetta gerir það að verkum að ráðh. verður, þegar hann veitir embætti, að taka afstöðu til mála með sjálfstæðum hætti vegna þess að hann ber ábyrgðina. En það er auðvitað álitamát, eins og ég segi, og það er hægt að ræða það síðar, hvort hugsanlega ætti að fara þarna aðrar leiðir.
Ég vil nefna það sem dæmi — engum til hnjóðs — að á tímabilinu frá 1974–1978 voru veitt tólf lyfsöluleyfi af sama ráðh. Í sjö tilvikum fór ráðh. nákvæmlega eftir tilmælum hinnar ráðgefandi nefndar og landlæknis, þ.e. tók fyrsta mann, en í hinum tilvikunum tók hann annan mann eða þriðja samkv. umsögn stöðunefndarinnar. Það er þess vegna mjög ljóst að ráðherrar hafa greinilega á undanförnum árum lagt á þessi mál sjálfstætt mat. Það eiga þeir a.m.k. að gera. Þessar embættaveitingar, sem hér voru nefndar og vitnað var til frá árunum 1974–1978, voru hins vegar gagnrýndar mjög harðlega fyrir það — sumar þeirra — að um væri að ræða pólitíska afstöðu viðkomandi ráðh., að hann væri að hygla sínum flokksmönnum. Ég þekki það mál ekki, en ég vil hins vegar segja og láta það koma mjög skýrt fram, að í þeirri embættisveitingu, sem hv. þm. gerði hér að umtalsefni, Dalvíkurlyfsöluleyfinu, er ekki um neitt slíkt að ræða.
Ég vil einnig láta það koma fram hér, vegna þess moldviðris sem hefur verið þyrlað upp út af þessari embættisveitingu, að það hefur komið fyrir hvað eftir annað að lyfjafræðingar hafa sótt um stöður aftur og aftur og þeir hafa fengið þessar stöður í annað, þriðja eða fjórða skipti, eftir atvikum. Ég vil t.d. nefna að 1977 var veitt lyfsöluleyfið á Egilsstöðum. Þar raðaði stöðunefnd þannig, að Einar Benediktsson var í fyrsta sæti, Hjálmar A. Jóelsson í öðru og Vigfús Guðmundsson í þriðja. Ráðh. veitti Hjálmari A. Jóelssyni embættið. Árið 1976, 1. okt., var veitt lyfsöluleyfið í Neskaupstað. Þar sótti sami Einar Benediktsson um lyfsöluleyfi og hann var aftur nr. eitt, annar var Vigfús Guðmundsson og þriðji Jón Sveinsson. Niðurstaða ráðh. varð sú að veita leyfið Vigfúsi Guðmundssyni. Einar Benediktsson sótti enn um lyfsöluleyfið í Hveragerði, sem veitt var frá 1. okt. 1977. Honum var enn raðað nr. eitt, Kristni R. Gunnarssyni nr. tvö og Jóni Sveinssyni nr. þrjú. Niðurstaða ráðh. varð sú í þetta skipti — í þriðja sinn sem Einar Benediktsson sótti um lyfsöluleyfi — að Einar fékk stöðuna í það skipti í Hveragerði.
Þetta er ég að rekja hérna, herra forseti, til að sýna fram á að það hefur verið mat þeirra ráðh., sem með þessi mál hafa farið á undanförnum árum, að þeir yrðu sjálfir að taka afstöðu til þessara þátta.
Ég gætið síðan rakið þessi mál nokkru ítarlegar og mér fyndist í raun og veru nauðsynlegt að hafa hérna miklu lengri tíma til að fara ofan í þessi mál, vegna þess að hér hefur margt vitlaust verið sagt af vissum fjölmiðlum í landinu, en ég hef ekki tíma til þess. En ég ætla aðeins að rekja þá ákveðnu embættisveitingu sem hér er um að ræða.
Freyja Matthíasdóttir lauk kandídatsprófi 1971. Hún starfaði í lyfjamáladeild danska innanríkisráðuneytisins til ágúst 1978. Frá sept. 1978 hefur hún verið yfirlyfjafræðingur í Kópavogsapóteki. Óli Þ. Ragnarsson lauk kandídatsprófi 1974. Hann réð sig þá þegar til starfa í Vesturbæjarapóteki og var ráðinn þar yfirlyfjafræðingur frá 1. ágúst 1974. Í sumarleyfum sínum 1976 og 1980 fór hann með rekstur Ísafjarðarapóteks og 1977 og 1978 fór hann með rekstur Dalvíkurapóteks. Jafnframt hefur hann gegnt störfum sem forstöðumaður lyfjabúrs á Landakoti, Borgarspítala og St. Jósepsspítala. Ég held að það sé hafið yfir allan efa, að þessi maður, sem þarna fær stöðuna, hefur meiri reynslu af því að reka apótek og starfa í apóteki sem yfirlyfjafræðingur.
Þess vegna var mitt val í þessum efnum spurning um hvernig menn meta annars vegar embættisstörf í stjórnkerfi og hins vegar faglega reynslu í þeim þætti þ jóðlífsins sem hér er um að ræða. Það var þetta mat sem ég lagði á málið og á því byggðist þessi embættisveiting af minni hálfu.
Varðandi jafnréttissjónarmiðið, sem ég þyrfti hér að ræða í löngu máli, vil ég segja það, að að sjálfsögðu mun heilbr.- og trmrn. senda Jafnréttisráði greinargerð um þetta mál. Það verður ekki þörf á því fyrir ráðið að óska eftir því. Við munum senda ráðinu grg. ótilkvaddir og gera grein fyrir þessum málum í heild. En mér þykir það hins vegar nokkuð undarlegt, að á sama tíma og hv. þm. ræðst hér að mér fyrir þessa embættisveitingu með heift og offorsi, sem hv. þm. gerði hér áðan, skuli í raun og veru ekki vera spurt um aðra embættisveitingu sem einnig er gagnrýnd mjög harðlega í bréfi Kvenréttindafélags Íslands eða ályktun þess.
Ég vil svo að allra síðustu segja það, að þegar jafnréttislögin voru sett árið 1976 var flutt hér tillaga um að lögin yrðu orðuð þannig, að hlutverk þeirra væri ekki einasta að tryggja jafna stöðu kvenna á við karla, heldur væri einnig hlutverk þeirra að bæta stöðu kvenna gagnvart körlum. Þessi till. var flutt hér af þm. Alþb. og hún var felld með atkv. allra annarra þm. hér í þessum sal. Spurningin er um það í þessum jafnréttismálum, hvort menn eru tilbúnir á löggjafarsamkomunni að setja lög sem kveða á um að það eigi við embættaveitingar að tryggja stöðu kvenna þannig að hún sé betri en karla. Það er grundvallarspurning sem menn verða að taka afstöðu til áður en þeir fara að hreyta skít í menn fyrir embættisverk.