05.02.1981
Sameinað þing: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2166 í B-deild Alþingistíðinda. (2387)
Umræður utan dagskrár
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég ætla með örfáum orðum að lýsa furðu minni á málflutningi hæstv. heilbrrh. Það er beint til hans nokkrum orðum í fullri kurteisi. Hann talar um skítkast og notar stór orð. Ég varð ekki var við að sá hv. þm., sem kvaddi sér hljóðs utan dagskrár, notaði nein sérstaklega stór orð. Þó væri kannske ástæða til í þessu máli.
Hæstv. ráðh. talar um að moldviðri hafi verið þyrlað upp í sambandi við þetta mál. Hann verður auðvitað að una því, að hans verk umdeild séu rædd í fjölmiðlum, og það er furðulegt að láta liggja að því hér, að einhverjar annarlegar ástæður liggi þar að baki.
Satt best að segja sakna ég þess, að ekki skuli í þessum umr. kveðja sér hljóðs fleiri fulltrúar þess flokks sem hefur þóst fremstur í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna og talað mest um jafnrétti. Ég sakna þess t.d., að hv. þm. Guðrún Helgadóttir skuli ekki vera stödd hér í salnum og fylgjast með þessum umr. Hún hefur oft talað hér kannske af minna tilefni.
Enn þykir mér það undarlegt, að ráðh. skuli ekki meta að neinu reynslu í stjórnkerfi, eins og hann orðaði það, að þessum málum. Það kom fram í máli hans að störf í stjórnkerfinu, þó að að þessum málum væru, væru einskis metin. Þetta þykir mér svolítið undarlegur málflutningur.
Sömuleiðis kvartaði ráðh. yfir því áðan, að hann hefði ekki verið spurður spurninga. Hann var raunar spurður spurninga og hefur svarað þeim að nokkru. En auðvitað hlýtur sú spurning að vakna í sambandi við þessa embættisveitingu, hvort það sé sú leið sem umsækjendur um embætti eiga að fara, að safna nöfnum meðmælanda á lista og senda ráðh. Sú spurning hlýtur að vakna vegna þess að svo virðist óneitanlega sem sú aðferð hafi hér að nokkru ráðið um ákvörðun ráðh.
En auðvitað verða ráðh. Alþb. eins og aðrir að una því, að verk þeirra séu gagnrýnd, og það er furðulegt að stökkva upp á nef sér af þeirri ástæðu einni að menn leyfi sér að gagnrýna valdsgjörðir hæstv. heilbrrh.