05.02.1981
Sameinað þing: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2167 í B-deild Alþingistíðinda. (2389)

186. mál, einangrun húsa

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 330 hef ég leyft mér ásamt hv. þm. Steinþóri Gestssyni, Alexander Stefánssyni og Magnúsi H. Magnússyni að flytja svohljóðandi þáltill.:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta fara fram rækilega könnun varðandi einangrun útveggja húsa. Skulu Húsnæðisstofnun og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins annast könnun þessa og birta niðurstöður sínar sem fyrst.“

Þessari till. fylgir nokkur grg., en áður vil ég aðeins segja um hana almennt, að þarna er um þær tvær stofnanir að ræða sem eiga, bæði hlutverks síns vegna og eðlis, að fjalla um allar nýjungar í byggingariðnaði. Og ég vil taka undir það sem hv. 1. þm. Vesturl. kom inn á áðan varðandi Húsnæðisstofnunina, að tæknideild hennar hefur allt um of vanrækt það að örva menn til dáða og nýjunga, eins og þó er hlutverk hennar lögum samkvæmt og enn hefur verið hert á samkvæmt nýju húsnæðislöggjöfinni.

Það er staðreynd, eins og hefur verið bent á áður í umr. um þessi mál í dag þessu tengd, að þeir menn, sem hafa viljað brydda á nýjungum, viljað gera tilraunir með eitthvað nýtt, hafa rekið sig á vegg og ekki komist til þess verkefnis eins og þeir hafa viljað gera það best. Vantrú manna á því, að þeir hefðu rétt fyrir sér, hefur ráðið öllu í raun, þó að á þessu hafi orðið breyting hjá þeirri stofnun annarri, sem þarna er á minnst, sem sagt Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, sem hefur, eins og hv. 1. þm. Vesturl. tók fram, verið jákvæð gagnvart t.d. því máli sem hér er reifað.

Við flm. byrjum á því í raun og veru í grg. okkar að leggja áherslu á tvær þáltill., sem hér hafa nýlega verið ræddar, önnur rétt áðan, þ.e. þáltill. frá hv. þm. Birgi Ísl. Gunnarssyni um lánafyrirgreiðslu vegna sérstakra viðgerðaraðgerða af völdum alkalískemmda, og ekki síður till. hv. þm. Jóns Helgasonar um aukna hagnýtingu innlendra byggingarefna og hagkvæmni við byggingarframkvæmdir. Ég held að það fari vel á því, að þessar till. allar séu skoðaðar í nokkru samhengi og þessi till., sem við höfum hér flutt verði alveg sérstaklega skoðuð með tilliti til annars vegar þeirra voveiflegu atburða, sem hafa gerst varðandi alkalískemmdirnar, og hins vegarvarðandi þá tilraun tilraun sem hér er verið að stinga upp áum hagnýtingu á innlendum byggingarefnum.

Við víkjum að hinum miklu mistökum sem hafa orðið í gerð sements og notkunar fylliefna og valda því, að á næstu árum muni viðgerðarkostnaður nema tugmilljörðum króna. En það, sem við viljum fá hér um rækilega könnun og fá um óyggjandi úrskurð, er það, hvort gerð útveggja hvað einangrun snertir sé rétt eða röng.

Ég skal játa það, að fyrst þegar ég heyrði hugmyndir þess manns sem hefur lagt okkur til efni þessarar grg. rak ég upp stór augu og hafði ekki mikla trú á að hér væri rétt með farið. Því nánar sem ég hef kynnt mér þetta, því sannfærðari er ég um að þessi byggingarmeistari hefur mjög mikið til síns máls og trúlega gæti hér verið um byltingu að ræða, alveg sérstaklega hvað snertir minni byggingarkostnað, betri endingu, meiri einangrun, meiri orkusparnað.

Ég ætla ekki að fara mjög náið út í þessa till., vegna þess að ég geri ráð fyrir að sú nefnd, sem fær till. til meðferðar, muni byggja fyrst og fremst á því áliti sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hefur sent frá sér varðandi þessi mál, en vitna aðeins til þess byggingarmeistara sem við höfum haft samband við, reyndar leitað til okkar vegna þeirra vandkvæða sem honum hafa verið á höndum til þess að koma þessari aðferð sinni rækilega á framfæri og kynna hana fyrir almenningi, vegna þess að það hefur lítið að segja að einn maður sé að gera tilraun, þó að hún heppnist, ef t.d. sú stofnun, sem leiðbeinir almenningi mest um þessi mát, þ.e. Húsnæðisstofnun ríkisins, sinnir ekki því sjálfsagða hlutverki sínu að kynna mönnum þessa nýjung, ef hún reynist á rökum reist, eins og við teljum að séu miklar líkur til, þó að við viljum að sjálfsögðu engu slá föstu um það.

Sturla segir svo orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Meginskoðun mín, sem ég hef reynt að sanna og tel mig raunar hafa sannað, er að hönnun einangrunar í húsum sé nú röng.

Vegna þess að einangrun hefðbundinna steyptra útveggja hefur verið og er sett innan á veggina, en ekki utan á, sem tíðkast hefur víða erlendis, verða veggirnir fyrir togspennum vegna hitamismunar veðurfars og springa þar af leiðandi.“

Þar vitnar höfundur till. beint í sérrit Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins, rit 33: um steypuskemmdir, áhrif hitabreytinga á steinsteypu.

Síðan víkur Sturla að því, hvernig þensla í steinsteypu vegna alkalívirkni íslensks sements og saltmengunar í fylliefnum hefur valdið mjög alvarlegum skemmdum á mannvirkjum þar sem rakastig er um og yfir 80%, en það er sá raki sem algengur er utanhúss á Suður- og Suðvesturlandi.

„Með því að færa einangrunina út fyrir burðarveggi húsa haldast þeir þurrir og verða þá ekki fyrir alkalívirkni.“

Aftur vísar byggingarmeistarinn beint í rit Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins, sem ég ætla ekki að fara nánar út í hér, og tel raunar ekki ástæðu til í framsögu fyrir þessu máli, þó þar mætti vissulega lesa upp fleiri blaðsíður, má segja, og þá alveg sérstaklega varðandi það sem hann vitnar til hvað snertir rakastreymi í steinsteypu, sem gerð eru mikil og góð skil í því riti sem hann vitnar þar sérstaklega til.

Um nánari grg. með þessu máli mun ég í lokin koma að því sem Sturla segir beint um þetta:

„Markmiðið með byggingaraðferðinni er að koma í veg fyrir sprungumyndanir og aðrar skemmdir í útveggjum húsa og lækka byggingarkostnað með aðferð sem fellur að mismunandi gerðum húsa án notkunar byggingarkrana, stálmóta eða annars kostnaðar mikils útbúnaðar.“

Um eiginleika þessarar aðferðar umfram hefðbundnar byggingaraðferðir — þar tel ég nú að sé að meginmálinu komið og höfum við flm. lagt sérstaklega að því eyrun og reyndar séð með eigin augum í því tilraunahúsi, sem vitnað er til í grg., að Meðalbraut í Kópavogi, — um eiginleika þessarar aðferðar umfram hefðbundnar byggingaraðferðir segir Sturta svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Með því að færa einangrunina út fyrir burðarveggi hússins er komið í veg fyrir togspennur útveggjanna vegna hitabreytinga og sprungumyndana er af hitabreytingum leiðir, þar sem veggir eru tengdir við gólfplötur og milliveggi.

Þar sem burðarveggirnir eru innan við einangrun og hlífðarvegg, verða þeir ekki fyrir skemmdum af frosti og slagregni. Af sömu ástæðum verða veggirnir ekki fyrir skemmdum vegna alkalíþenslu. Vegna rakaútstreymis innanúr húsum hafa útveggir húsa skemmst mjög vegna frostskemmda, þegar rakaloft innan frá þéttist við kaldan útvegginn, verður að vatni og frýs. Veggir, sem eru innan við einangrun, frjósa ekki og verða þar af leiðandi ekki fyrir rakaútstreymisskemmdum. Þar sem hlífðarveggur er ekki steyptur fastur við milliveggi eða plötur hússins getur hann gengið til vegna hitabreytinga veðurfars án stífrar samtengingar við húsið og springur þar af leiðandi ekki.

Þar sem einangrunin umlykur húsið á alla vegu er komið í veg fyrir kuldaleiðni þá er á sér stað í hefðbundnum húsum. Hitunarkostnaður lækkar því um 5–20%. Hitastig í húsum verður jafnara. Kostnaður vegna kyndingar með olíu er um það bil 1 millj.“ — Þetta mun nú trúlega vera nokkuð eldri tala sem þarna er miðað við.

„Þar sem eldnæm plasteinangrun er fyrir utan 14 sm veggi hússins er húsið að því leyti ónæmt fyrir eldi og þeirri hættu, er stafar af eitruðum reyk frá brennandi einangrun.

Þar sem yfirborð veggjanna úti og inni er með áferð eftir krossviðarmót, þarfnast húsið ekki venjulegrar múrhúðunar, heldur holufyllingar.

Festingar við útvegg, svo sem gluggatjalda, skápa, hillna og annarra hluta, eru mun öruggari þar eð skrúfað er í massífan innri vegginn, en ekki í þunna múrhúð í hefðbundnum húsum. Festa má einnig með skotnöglum, en slíkt er ekki mögulegt í venjulegan útvegg.“ Ég ætla ekki að fara að tíunda allt þetta mál hér. Spurningin er í raun og veru ákaflega einföld og úr henni þarf að fást skorið sem allra fyrst.

Þó að eitthvað væri rangt eða missagt í þeim fræðum, sem ég hef nú lesið upp, er ég alveg sannfærður um að hugmyndin er allrar athygli verð. Meginmálið hlýtur að vera að kanna þessa fullyrðingu, sem er í raun og veru byltingarkennd og mönnum þykir nóg um, mörgum þeim sem fást við þessi verkefni, að einangrun skuli vera utan á veggjum steinsteyptra húsa, en ekki innan á, eins og vitnað hefur verið til hér að framan.

Þegar við flm. höfum lesið yfir þær tilvitnanir sem vísað er til frá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, þegar við lesum yfir þær vísbendingar, hlýtur það að verða til þess að við fyllumst enn meiri bjartsýni á að hér sé um réttmætar ábendingar að ræða, og að sjálfsögðu hljóta hagsmunir húsbyggjenda sem þjóðarheildar að vera ótvíræðir ef niðurstöðurnar reynast þær sem flm. telja mörg rök hníga að. Það verður því hér að skera úr um þetta. Þessar tvær stofnanir eiga að vinna saman að því að fá úr því skorið, hvort hér er rétt fram haldið eða ekki. Við leggjum engan dóm þar á þó að okkur sýnist eða mér sýnist það a.m.k. með þá litlu skynsemi sem ég hef gagnvart byggingarmátum almennt — að hér sé um augljóst mál að ræða. Vil ég ekki fullyrða neitt um það, fyrr en lokaniðurstaða er fengin, en bæði með tilliti til þess, sem ég hef lesið mér til varðandi þau rit sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hefur sent frá sér, með tilliti til þess sem ég hef séð með eigin augum varðandi það hús sem hér hefur verið nefnt, sem er tilraunahús Sturlu Einarssonar, og vegna þess, sem mér sýnist að heilbrigð skynsemi mæli með, finnst mér sjálfsagt að á þessu sé gerð könnun nú þegar, því að um svo stórt þjóðhagslegt atriði er að ræða og svo stórt atriði fyrir húsbyggjendur að ég tel óhæft að láta þetta mál stranda í kerfinu öllu lengur. Það er nógu lengi búið að gerast og því er þessi till. fram lögð.

Ég vil, herra forseti, óska eftir því að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. atvmn. til þess að þessar till. allar fái skoðun hjá sömu nefnd.