09.02.1981
Efri deild: 48. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2185 í B-deild Alþingistíðinda. (2397)
185. mál, bætt kjör sparifjáreigenda
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka þær að ýmsu leyti góðu undirtektir sem frv. hefur fengið hjá hv. 4. þm. Vestf. og hæstv. viðskrh., þó að mér séu náttúrlega nokkur vonbrigði að t.d. hæstv. viðskrh. skyldi ekki sjá mun á því, hvort mönnum sé gert að binda fé sitt í sex mánuði eða það sé óbundið og menn hljóti verðtryggingu á þriggja mánaða fresti af þeim hluta innistæðunnar sem óhreyfður er. Það er auðvitað grundvallarmunur á þessu fyrir sparifjáreigendur. Ég held að hæstv. viðskrh. og bankamálaráðh. hljóti að vera ljóst að þær tilraunir, sem hafa verið gerðar með bindingar af þessu tagi, t.d. á s.l. ári, skiluðu ekki verulegum árangri. Það voru engin feikn sem komu inn á þá reikninga sem ríkisstj. bauð þá.
Nú er þetta auðvitað skref í rétta átt hjá ríkisstj. Engu að síður hefur stór hluti sparifjáreigenda ekki geð í sér eða kannske þor til að fara inn á þá leið sem hæstv. viðskrh. býður, nefnilega að menn leggi inn fé sitt til bindingar í sex mánuði. Það er verulegur munur fyrir fólk, sem er að spara peninga, hvort það telur sig og getur átt aðgang að þessu fé hvenær sem er ef eitthvað kemur upp á, eða verður að hlaupa til í einhverjar „reddingar“ jafnvel þótt það eigi fé á bók. Þegar eldra fólk er t.d. að velta þessu fyrir sér þykir því framtíðin svo óviss þrátt fyrir þá ríkisstj. sem situr og telur sig vera æðigóða, að það vill ekki leggja svona lagað á sig. Sama gildir um margt ungt fólk. Á þeim tíma sem óróleikinn, óstöðugleikinn og gusugangurinn í þjóðfélaginu er eins mikill og raun ber vitni eru menn ekkert sérstaklega ginnkeyptir fyrir þeim bindingum sem ríkisstj. er að bjóða og tala fyrir.
Þetta er eiginlega spurningin um það, hvers konar viðhorf menn hafa til sparnaðar. Hafa menn það viðhorf að það eigi að leggja á menn aukakvaðir í sambandi við sparnað, t.d. þá kvöð að menn megi ekki komast í þá peninga sem menn eru að spara? Það eru viðhorf bindingarinnar. Er viðhorfið e.t.v. það, að það eigi að verðlauna menn fyrir sparnað, — beinlínis að það, sem sé raunverulegur sparnaður, njóti verðtryggingar, en kvaðirnar séu veikar? Í mínum huga er þetta grundvallarmunur og ég er sannfærður um að svo er einnig um það fólk sem hugsanlega sparar peninga og að áhrifin af reikningum af því tagi, sem ríkisstj. er að bjóða, muni verða tiltölulega mjög lítil í átt til aukins sparnaðar, heldur einungis verði að einhverju leyti um að ræða tilflutning á fé milli reikninga.
Hin aðferðin, sem við tölum fyrir í þessu frv., er sem sagt að verðlauna menn fyrir sparnað, en leggja ekki á þá kvaðir. Ég er sannfærður um að það muni einmitt auka sparnað, vegna þess að þegar menn standa frammi fyrir því, hvort þeir ætla að spara eða taka út peningana, muni menn sjá af hverju þeir missa ef þeir taka peningana út, og það muni verða til að efla sparnaðinn og á hinn bóginn sé ekki verið að fæla fólk frá því að nota reikninga af þessu tagi.
Ég skil ræðu hæstv. viðskrh. þannig að hann telji að það þurfi að auka sparnað í landinu. Ef það þarf að auka sparnað er spurningin: Hvernig á að gera það? Ég tel að sú aðferð sem við mælum með hérna muni auka sparnað. Ég tel að sú aðferð, sem ríkisstj. býður, muni fyrst og fremst þýða tilflutning á fé milli reikninga hjá þeim hópi fólks sem kann að spila á bankakerfið.
Það er önnur spurning sem líka skiptir máli. Á að stela af sparifjáreigendum sem að stórum hluta er eldra fólk? Ef svarið er, að það eigi ekki að stela af sparifjáreigendum, á auðvitað að bjóða sparnaðarform sem er aðgengilegt fyrir fólk og tryggir að sparifé þess sé í raun og sannleika verðtryggt, haldi verðgildi sínu, reikninga sem bjóða fulla verðtryggingu, en eru aðgengilegir. Þetta er það sem felst í okkar frv. Um leið og menn búa til flókinn frumskóg er verið að útiloka ákveðinn hóp fólks sem ekki er reiðubúið í þennan frumskógarleik.
Það er alveg sérstaklega á þetta að líta þegar bankarnir haga sér með þeim hætti sem raun ber vitni, að þeir hafa ekki uppi neina sérstaka kynningarstarfsemi, hvorki að því er varðar lánskjör sem menn eiga kost á, og hvernig þau koma út með mismunandi hætti, né heldur að því er varðar innlán. Í minnihlutastjórn Alþfl. var gerð krafa til bankanna um kynningarstarfsemi í þessum efnum, og tókst að fá þá til að auglýsa nokkuð þessi mál um nokkra hríð, en síðan hefur það gersamlega dottið niður og sama leyndin hvílir yfir þessu áfram og gerði áður.
Ég fagna líka því, sem kom í raun og sannleika fram í ræðu hæstv. viðskrh., að það sé eiginlega ekkert því til fyrirstöðu að framkvæma þá stefnu sem hér er lögð fram. Hann mælti ekki gegn því, að þetta yrði reynt. Hann talaði sérstaklega um að staða bankakerfisins væri hagstæð, eins og ég gerði líka að umtalsefni, og það mundi auðvitað verða til þess að auðvelda nálgun málsins með þessum hætti. En ég vil aðeins rifja upp að þörfinni fyrir lánsfé til húsbygginga mun verða mætt — ég segi ekki að öllu leyti með auknum sparnaði í gegnum kerfið sem hér um ræðir, en að miklu leyti. Í annan stað mun losna um þörf fyrir víxla og vaxtaaukalán til skamms tíma. Þetta lánakerfi mun koma í stað þess. Í þriðja lagi hafa útlán bankanna til húsbygginga dregist saman, eins og ég rakti tölur um áðan, úr 20–25 % niður í 10–14 % af heildarbyggingarkostnaðinum. Mér finnst að bankarnir geti komið til móts við húsbyggjendur með þessum hætti, við almenning í landinu, og þá ekki síst með tilliti til þess að 3/4 hlutar af öllu sparifé í landinu kemur frá almenningi, en 1/4 úr atvinnulífinu. Á hinn bóginn eru útlánahlutföll þannig núna, að einungis illa fer til almennings, en 1/4 til atvinnuveganna. Manni finnst að þegar almenningur leggur fram 3/4 hluta af sparnaðinum eigi hann skilið að fá aðeins meira en 1/4 hluta af útlánunum. Líka þess vegna væri ástæða til þess fyrir bankana að koma til móts við húsbyggjendur, við almenning í landinu.
Hæstv. viðskrh. taldi líka, að það væri kannske ekki mikill munur á því, sem ríkisstj. hefði boðað á gamlársdag að því er varðaði að breyta skammtímaskuldum í lán til lengri tíma, og því, sem felst í þessu frv. okkar Alþfl.manna sem lagt var fram í desembermánuði. Það er mjög verulegur munur á þessu. Ég held að ég verði að vekja athygli á því, úr því að ráðh. taldi að munurinn væri lítill. Munurinn er þessi: Ríkisstj. er að tala um, með því að setja nefnd fjögurra aðila, að fara ofan í mál einstakra manna og athuga hvort þeir hafi þörf fyrir að breyta skammtímaskuldum í lengri lán. Eins konar rannsóknarnefnd á að fara ofan í fjárreiður hvers einstaks. Þetta hefur ekki verið kynnt heldur sem nein aðgerð til frambúðar eða langframa. Eiga þessir fjórir aðilar að sitja í
því að skoða framtöl næstu árin jafnóðum og ætla mönnum fyrst að taka öll þessi skammtímalán með því að hlaupa á milli bankastjóra, ættingja og vina og síðan eigi það að fara fyrir þetta lánalengingarráð hvort menn eigi að fá lán til lengri tíma? Þetta er aðferðin sem ríkisstj. boðar: afgreiðsla í lánalengingarráði. En það, sem felst í okkar frv., er að það sé sjálfkrafa réttur hvers og eins að hann eigi kost á svona láni. Honum er líka ætlað að greiða það að fullu til baka að raunvirði og lántakandinn verður auðvitað að gera það upp við sig hvort hann vilji fá svona lán. Hér er ekki um neina skömmtunarskrifstofu af því tagi að ræða sem manni sýnist að felist í frv. ríkisstj. — eða ekki einu sinni frv., heldur hugmyndum ríkisstj. Það vekur manni reyndar ugg um að framgangurinn og framkvæmdin geti orðið svifasein að það eru fjórar „bureaukratískar“ stofnanir sem eiga að standa að því að meta hvort menn hafi þörf fyrir lánalengingu eða ekki. Það er Seðlabanki, það er félmrn., það er viðskrn. og ég man nú ekki hvað. (Gripið fram í.) Og Húsnæðisstofnun. Ég er hræddur um að það geti orðið þungt í vöfum að fá afgreiðslu hjá þessu lánalengingarráði.
Svo er það enn að ráðh. vék að því, að þetta yrði mjög vandasamt vegna þess að það gæti auðvitað hugsast að menn, sem væru að byggja, hefðu keypt sé þvottavél og þeir hefðu keypt sér sjónvarp og hugsanlega hefðu þeir endurnýjað bílinn sinn, af því að hann væri orðinn 8 ára eða meira einmitt á þessum tíma. Þá var helst á ráðh. að skilja að þá kæmu þarna frádráttarliðir sem lánalengingarráð fjögurra „bureaukratískra“ stofnana yrði náttúrlega að fara yfir og vega og meta. Ég ætla að benda mönnum á það í leiðinni, að jafnvel þótt menn séu að byggja þurfa þeir á þvottavél að halda og jafnvel þó menn séu að byggja getur staðið svo á að þeir þurfi að endurnýja bílinn sinn. En ef þeir eru að byggja, — kannske fyrir þvottavélinni eða bílnum, eins og ráðh. gat um, — en það er af því að þeir eru að byggja, þannig að lánin eru í raun og sannleika vegna byggingarinnar. Ef þeir væru ekki að byggja ættu þeir fyrir þessu. Ég legg til að hæstv. viðskrh. komi því á framfæri við lánalengingarráð hinna fjögurra „bureaukratísku“ stofnana að það, sem hann hélt fram áðan í ræðustólnum, er auðvitað á misskilningi byggt vegna þess að maðurinn, sem er að byggja, lendir í skuldasúpunni af því að hann er að byggja. Hann hefur ekki neina aukaþörf fyrir þvottavél einmitt þá. Hann hafði bara alltaf þessa þörf. Sama máli gegndi um bílinn.
Hæstv. ráðh. var dálítið viðkvæmur fyrir því, að honum fannst ég ekki tala nógu vel um ríkisstj. Ég veit náttúrlega ekki hvað ráðh. ætlast til að hann hljóti hér mikið lof fyrir frammistöðu ríkisstj. En ég held að það atriði, sem ég rakti hér um mismuninn á þeim tillögum, sem við flytjum, og því, sem ríkisstj. boðar, gefi fyllilega ástæðu til þess að hér sé uppi verulegur skoðanaágreiningur. Ég held að það sé fyllilega ástæða til þess að agnúast út í ríkisstj. og vera ekkert sérlega ánægður með þá frammistöðu hennar, að hún hefur sífellt verið að stytta lánstímann þó að standi í lögum að eigi að lengja hann, að ríkisstj. hefur haldið þannig á þessum málum að ég er sannfærður um að stefnan hrynur í fangið á henni, að ríkisstj. hefur samtímis verið að níðast á sparifjáreigendum og húsbyggjendum í síauknum mæli með því að gæta ekki að því að grundvallarforsendan fyrir því að koma peningamálum, lánamálum og vaxtamálum á kjör sparifjáreigenda. 2188 eðlilegan grundvöll er m.a. sú að lengja lánstímann og jafna greiðslubyrðina. Ég spyr nú ekki að hvað það væri langtum skemmtilegra fyrir bankastjórana að geta afgreitt þessi mál í eitt skipti fyrir öll fyrir húsbyggjendur og þeir þurfi ekki að búa við þetta eilífa rennirí.
Það er svo komið að ýmsir þeir, sem eru að byggja, — ég ætla að upplýsa þetta fyrir hæstv. bankamálaráðh. ef hann skyldi ekki vita það — verða að taka sér frí úr vinnunni annan hvern mánuð til að „redda“ lánamálum sínum, til að útvega sér lán í banka nr. 3, 4 og 5 til að borga af lánum í banka nr. 1 og 2. Þeir fá þessi lán, en það er ekki lítið vinnutap sem í þessu liggur, það er ekki lítið álag á fjölskylduna að búa við þessa óvissu. Þetta kalla ég villimannlegar aðfarir. Þessu viljum við koma af. Það er þetta sem við viljum afnema.
Mér skildist á hæstv. ráðh. að það væri ekki úr vegi að auka svolítið sparnað í landinu. Við höfum talið það líka. Ég ætla að nefna hérna tvær tölur til marks um hvaða svigrúm menn hafa í rauninni hérna með því að taka upp þær hugmyndir sem við erum hér með um sparifjárreikninga.
Fyrir 10 árum var sparnaður í landinu 40% af brúttóþjóðarframleiðslu. Núna er sparnaður 24% af brúttóþjóðarframleiðslu. Þarna er verulegt svigrúm sem mætti m, a. nýta til að koma í auknum mæli til móts við húsbyggjendur og auðvitað langt umfram það sem þetta frv. gerir ráð fyrir.
Ég tók eftir því í ræðu hv. 4. þm. Vestf., að hann var ekki nægilega trúaður á þessa sparireikninga og vitnaði til gamallar reynslu um skyldusparnað og sparnaðarreikninga af því tagi og það hefði ekki reynst nógu vel. En ég vil minn á að það hefur verið blaðamál árum saman að fólk, sem sparaði með þessum hætti, var stórkostlega hlunnfarið. Það er varla hægt að ætlast til þess, að meðan menn lesa daglega um það í blöðunum að verið sé að stela af þeim rjúki menn upp til handa og fóta til að velja sér það sparnaðarform. Ég þekki hins vegar ýmsa sem á fyrstu árum þessa fyrirkomulags nutu mjög góðs af því. Þá var ástandið þannig að með lánafyrirgreiðslu úr húsnæðismálastjórn og fyrirgreiðslunni, sem ráðh. var að rekja, gátu menn jafnvel fengið lán svo að nægði fyrir íbúð tilbúinni undir tréverk. — Ég kann dæmi um það. Það var að vísu ekki stór íbúð. Það var um 75–80 fermetra íbúð. — Þetta sparnaðarform hafði því sínar góðu hliðar á sínum tíma.
Ég get tekið undir margt af því sem hv. 4. þm. Vestf. talaði hér um varðandi Byggingarsjóð ríkisins. En ég legg til að þessi þm. og aðrir þm. sameinist nú með okkur um að setja lágmark á hvað lán mega vera lítill hluti af verði staðalíbúðar — hér er gert ráð fyrir 35 % — þannig að þær kvaðir, sem um er að ræða, þær skyldur, sem uppfylla þarf, liggi alveg ljóst fyrir og þannig að það sé ljóst að Alþingi og ríkisstj. geti ekki vikið sér undan því að útvega það fé sem þarf til að standa undir því sem við teljum vera eðlilega lánafyrirgreiðslu í þessum efnum.
Það hefði að sjálfsögðu verið ástæða til þess að fara langtum fleiri orðum um þetta mál, en ég ætla að láta þetta nægja og að lokum einungis að láta í ljós þá ósk að menn geti samþykkt það frv. sem hér liggur fyrir. Ég þykist mega ráða það af góðum undirtektum hv. 4, þm. Vestf. að það geti komið til álita af hans hálfu og þá vonandi hans flokks. Mér finnst líka ef viðskrh. finnst ekki mikill munur á því, sem við erum að leggja til, og því, sem hann er að hugsa um að framkvæma, að þá sjái hann að munurinn liggur allur til réttrar áttar — í þá átt nefnilega að það er betra, sem við erum að leggja til, og þess vegna geti hann komið til liðs við þetta frv. líka.