10.02.1981
Efri deild: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2211 í B-deild Alþingistíðinda. (2413)
185. mál, bætt kjör sparifjáreigenda
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, lýtur að úrbótum um lánakjör sparifjáreigenda, íbúðabyggjenda og íbúðakaupenda, en hagsmunir þeirra hafa mjög verið bornir fyrir borð í tíð núv. ríkisstj. sem alls ekki hefur framkvæmt þá vaxtastefnu sem á sínum tíma var samþykkt með setningu svokallaðra Ólafslaga. Það var reyndar mikið deilt um það, hvernig þau lög skyldu verða. Þá fór fram mikil umræða í ríkisstj. og þingflokkunum um það, hvernig með skyldi fara, en þó féllust samstarfsflokkar Alþfl. á að verðtryggja lánsfé að nokkru leyti, þó ekki eins og best hefði verið. Það var gert ráð fyrir því þar, að lánatími yrði lengdur og kjör þeirra, er búa við erfiða lánabyrði, yrðu bætt, en það hefur ekki verið efnt.
Hins vegar hefur skipulega verið unnið að því að gera kjör þessa fólks mjög erfið, og það er fyrst nú með setningu þeirra laga, sem boðuð voru í áramótaskaupinu, að nokkrar úrbætur eru boðaðar, en þó ekki nærri því eins og gert er ráð fyrir í því frv. sem hér liggur fyrir.
Í því, sem boðað var um áramótin, er talað um að stefnt skuli að almennri vaxtalækkun í marsmánuði. Mig langar til að spyrja hæstv. viðskrh. hvernig eigi að framkvæma það. Þar segir einnig að innlán skuli verðtryggð. Er þá ekki líklegt að það þurfi að verðtryggja útlán að sama skapi? 10% vaxtahækkun var frestað, en aftur á móti lítur út fyrir að verðtryggja eigi útlánin í staðinn til viðbótar við vexti, og heyrst hefur að þar sé ekki um 10% að ræða, heldur allt að 12%, þannig að í raun sé um vaxtahækkun að ræða. Það væri mjög gaman að fá skýringar á því, hvernig fara á að því að lækka vextina í mars, meðan innlán eru verðtryggð, eða hvort það er meiningin að setja allt bankakerfið á hausinn. Sú hugsun getur verið á sínum stað, en erfitt er að skilja hvernig með þetta verður farið.
Þeir aðilar, sem voru í ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar, samstarfsaðilar Alþfl., hafa mjög gagnrýnt vaxtastefnuna og talið vexti allt of háa. Þrátt fyrir það hafa þeir ekki treyst sér til þess að lækka vextina, eins og þeir hafa margir hverjir haft á orði að gera.
Það frv., sem hér liggur fyrir, verður ótvírætt, ef samþykkt verður, til mikilla hagsbóta fyrir sparifjáreigendur, íbúðabyggjendur og íbúðakaupendur. Ég skora því á ráðh. — sem ég veit að er velviljaður maður — að samþykkja að beita sér fyrir því, að það verði samþykkt. Það skref, sem tilkynnt var í gær, er ekki nóg, það þarf að ganga lengra. Það þarf að ganga svo langt sem við leggjum hér til. En ég spyr enn á ný: Hvernig á að fara að því að lækka vexti á meðan verið er að hugsa um að verðtryggja innlánin?