30.10.1980
Sameinað þing: 12. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í B-deild Alþingistíðinda. (242)
22. mál, félagsleg þjónusta fyrir aldraða
Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Fyrst út af ræðu hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur.
Þegar ég lagði þessa þáltill. fyrst fram, sem var á 100. löggjafarþingi, var mér kunnugt um að stuttu eftir að hún var lögð fram skipaði þáv. heilbr.- og trmrh. nefnd til að fjalla um þessi mál. En honum gafst ekki tími, meðan hann sat í ráðherrastól, til að leggja málið fram. Mér var því ekki kunnugt um að það væri á döfinni að leggja fram hér frv. um þetta mál. — Hv. þm. Guðrún Helgadóttir segir að þetta hafi komið fram í fjölmiðlum. Það hefur farið fram hjá mér. Ég hef hvergi séð þetta mál kynnt í fjölmiðlum. Vera má að það hafi verið í Þjóðviljanum, en ég geri ekki mikið að því að lesa hann.
Hv. þm. Albert Guðmundsson, sem unnið hefur mikið að málefnum aldraðra- og ég legg við hlustirnar þegar hann talar um þau mál, kom hérna inn á mörg málefni sem vert væri að svara, en ég held að ég kynni betur við hv. þm. Albert Guðmundsson ef hann talaði í þá veru að fleiri hefðu kannske vit á málum varðandi aldraða og öldrunarþjónustu en bara hann sjálfur. Ég get upplýst hv. þm. um að ég hef kynnt mér þessi mál mikið. Ég hef leitað til lækna um þetta, ég hef talað við aldrað fólk þjónusta fyrir aldraða. 360 sjálft um þetta og ég hef talað við fleira fólk sem hefur áhuga á uppbyggingu öldrunarþjónustunnar. Ég tel mig því hafa töluvert vit á þessum málum líka.
Það kom hérna fram, bæði í máli hv. þm. Alberts Guðmundssonar og Guðrúnar Helgadóttur, að í þessari till. væri kannske meginþunginn lagður á vistrými. Svo er alls ekki. Þau hafa þá ekki lesið þessa till. vel. Meginþunginn er lagður á það, sem fram kemur í þáltill. sjálfri, að komið verði á samræmdu skipulagi í þessum málum þannig að við vitum hvar við stöndum, hvert við þurfum að stefna.
Ég geri mér vel ljóst að það þarf vistrými. Það þarf líka heimahjúkrun og heimilisþjónustu. Það er rétt hjá hv. þm. Albert Guðmundssyni, að Reykjavíkurborg hefur gert töluvert átak í heimilishjúkrun og heimilisþjónustu fyrir aldraða, og það ber að meta. En það er ekki nándar nærri nóg sem hefur verið gert. T.d. höfum við opinn hlekk enn þá þar sem er öll þjónusta í heimahjúkrun og heimilisþjónustu yfir helgar, hún er lítil sem engin fyrir hendi á kvöldin og um helgar. Ef við byggðum þjónustukerfi okkar við aldraða þannig upp að við lokuðum þeim hlekk, ef við gætum boðið fullkomna þjónustu um helgar og á kvöldin mundi það vissulega minnka vistrýmisþörf. Og ég þykist sannfærð um að ef við byggjum upp góða heimilisþjónustu og heimahjúkrun fyrir aldraða munu aldraðir frekar vilja vera sem lengst í heimahúsum en fara á elli- og dvalarheimili.
Elli- og dvalarheimili, sem hafa risið hérna nokkuð ört upp síðustu árin, eru vissulega stórt spor í uppbyggingu öldrunarþjónustu, og það er mál sem við þurfum að skoða sérstaklega og þá ekki bara með stór-Reykjavíkursvæðið í huga, heldur þurfum við að byggja sem víðast þar sem þess er þörf. En aðalmálið er auðvitað að við fáum heildaryfirsýn yfir þessi mál, að við vitum hvert eigi að stefna.
Ég vil ítreka að í þessari till. er alls ekki lagður þungi á aukin vistheimili. Þvert á móti tel ég að hérna sé lögð áhersla á að við getum stefnt að þeirri öldrunarþjónustu sem gerir öldruðum fært að dvelja sem lengst í heimahúsum.