10.02.1981
Efri deild: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (2425)
189. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Það er alkunna, að í gildi eru í landinu skattalög sem samið voru í tíð ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar og flutt af Matthíasi Á. Mathiesen fjmrh. Þessi lög fela í sér mjög veigamiklar breytingar á eðli skattkerfisins hér á landi. Eitt af meginákvæðum þessara laga er að breyta tilhögun vaxtafrádráttar við skattlagningu frá því, sem hún var áður, og binda hana hvað snertir einstaklinga, sem ekki eru í atvinnurekstri, við íbúðarhúsnæði til eigin nota eingöngu.
Veturinn 1979–1980 fóru fram viðræður milli þingflokka um framkvæmd þessara skattalaga og náðist þá samkomulag allra þingflokka um að láta gildistöku þeirra ná fram að ganga með þeim hætti sem ákveðið hafði verið áður, en ákvæðið um vaxtakerfið til skatts kæmi ekki til framkvæmda fyrr en tekjur ársins 1980 yrðu skattlagðar, þ.e. í þeirri skattlagningu sem nú fer í hönd.
Það hefur hins vegar orðið ljóst á síðustu vikum og mánuðum, að ýmsir hafa talið að ekki væri grundvöllur fyrir því að láta þessi ákvæði koma til framkvæmda nú. Minni hl. fjh.- og viðskn., sem skipaður er flokksmönnum þess fjmrh. sem er höfundur þessara skattalaga, ákvað að skila sérstöku nál. sem gerð verður grein fyrir á eftir. Meiri hl. n., sem skipaður er öðrum nm., hefur ákveðið að láta fyrri ákvæði laganna koma til framkvæmda, þó með ákveðnum breytingum sem eiga að auðvelda öllum almenningi að laga sig að því nýja kerfi sem hér er tekið upp.
Það er með þetta atriði eins og mörg önnur í þeim skattalögum, sem nú gilda, að erfitt er að átta sig nákvæmlega á eðli ákvarðana fyrr en framkvæmdin liggur fyrir. Ég vil þess vegna strax í upphafi míns máls láta koma fram það sjónarmið þeirra, sem að þessu áliti standa, þ.e. meiri hl. n., að nauðsynlegt sé, þegar álagning liggur fyrir næsta sumar, að skoða sérstaklega, hvernig þetta atriði, vaxtafrádrátturinn vegna eigin íbúðarhúsnæðis, hefur komið út, og jafnvel gera þá breytingar á skattalögunum og álagningunni sjálfri, ef í ljós kemur að það fellur ekki í þann farveg, sem meiri hl. n. telur eðlilegt, eða kemur svo niður í ákveðnum tilfellum að ekki er bærilegt fyrir viðkomandi einstaklinga eða fjölskyldu. En við höfum þó trú á því, að með breytingum, sem lagt er til að gera á frv. og greint er frá í nál. og á sérstöku þskj., sé kerfið orðið með þeim hætti að viðunandi sé fyrir allan þorra almennings. Ég vil því gera hér nokkra grein fyrir þeim ákvæðum sem brtt. eru fluttar um.
Í fyrsta lagi er, eins og í upphaflegu frv. sem hér var lagt fyrir, ákveðið að hámark vaxtafrádráttar fyrir einhleyping verði hækkað úr 1.5 millj. gkr. í 2.5 millj. gkr. og þessar tölur hækka síðan enn frekar miðað við skattvísitölu 145 stig. Það hefur í för með sér að á gjaldárinu 1981 verða vextir vegna kaupa á eigin íbúðarhúsnæði frádráttarbærir að upphæð 3.6 millj. rúmar fyrir einhleyping og 7 millj. 250 þús gkr. fyrir hjón.
Í öðru lagi er tekið upp það nýmæli, að verulegar endurbætur á íbúðarhúsnæði verða frádráttarbærar hvað vexti snertir, líkt og um íbúðarkaup hefði verið að ræða, ef þessar endurbætur eru meiri háttar eða nema að verðgildi 7% eða meira af fasteignamati íbúðar í árslok. Hér er farið inn á þá braut, að ákveði einstaklingar að gera meiri háttar breytingar á sínu íbúðarhúsnæði verði farið með þær í skattalegu tilliti líkt og um venjuleg íbúðarkaup eða húsbyggingar væri að ræða. Ég tel að þetta sé mjög mikilvægt ákvæði og eigi að stuðla að því, að einstaklingar hugi betur en ella að varanlegri endurnýjun og viðhaldi síns íbúðarhúsnæðis. Við erum komnir á það stig í aldri íbúðarhúsnæðis í elstu þéttbýlisstöðum landsins, að slíkar meiri háttar viðgerðir eru fyllilega orðnar tímabærar í stórum hlutum Reykjavíkurborgar og velflestum stærstu kaupstöðum landsins. Þess vegna er mjög mikilvægt að ákvæði af þessu tagi sé tekið inn í skattalögin.
Í þriðja lagi er skilgreining á þeim lánum sem eru frádráttarbær án tillits til þess, hversu langt er liðið frá öflun íbúðarhúsnæðis, rýmkuð á tvennan hátt frá því sem er í lögunum. Í fyrsta lagi, að undir þennan flokk lána falla nú öll fasteignaveðlán til tveggja ára eða lengri tíma, en í lögunum er krafist a.m.k. þriggja ára lánstíma. Í öðru lagi, að á gjaldárinu 1981 séu lán til tveggja ára eða lengri tíma til öflunar íbúðarhúsnæðis, sem tryggð eru með sjálfskuldarábyrgð þriðja manns, lögð að jöfnu við fasteignaveðlán. Þessar breytingar fela í sér að mjög mikið af þeim vaxtaaukalánum, sem fjöldi íbúðarhúsakaupenda hefur orðið að taka á undanförnum árum, ætti að falla innan þeirrar vaxtafrádráttarskilgreiningar sem yrði gildandi í lögunum.
Fjórða meiri háttar breytingin felur það í sér, að tímamörk frá kaupári eða upphafsári byggingar eru rýmkuð allverulega. Þau eru lengd úr tveimur árum í þrjú hvað snertir íbúðakaup og úr fjórum árum í sex hvað snertir íbúðabyggingar. Ég tel eðlilegt að þarna sé gerður verulegur munur á íbúðakaupum og byggingum, vegna þess að byggingartími gæti verið 2–3 ár og þess vegna eðlilegt að þeir sem byggja sér húsnæði, njóti þessara kjara álíka lengi og þeir sem kaupa húsnæðið fulltilbúið.
Þessar fjórar breytingar: hækkun vaxtafrádráttarmarkanna, að gera veigamiklar endurbætur á íbúðarhúsnæði frádráttarbærar líkt og um kaup eða nýbyggingu væri að ræða, að ákveða að lán með sjálfskuldarábyrgð jafngildi á árinu 1981 venjulegum fasteignaveðtryggðum lánum og í fjórða lagi að lengja tímatakmörkin frá því sem var í lögunum, ætti að okkar dómi, sem að nál. meiri hl. stöndum, að gera öllum þorra almennings í landinu, sem hefur ráðist í að tryggja sér venjulegt íbúðarhúsnæði fyrir sig og fjölskyldu sína, kleift að ganga til þeirra verka án þess að það hafi nein sérstök áhrif á skattbyrðina. Hins vegar verða áfram í gildi þau ákvæði þessara skattalaga sem sett voru fyrir um það bil þremur árum og hindra að menn noti vaxtafrádráttarkerfið líkt og áður tíðkaðist til þess að gera sig meira eða minna skattlausa, án þess að þeir vextir væru á nokkurn hátt tengdir íbúðakaupum viðkomandi einstaklinga.
Við þekkjum öll hér innan þings og mikill fjöldi almennings dæmi um það, hvernig menn hafa notað lánveitingakerfið til þess að skapa sér skattalega stöðu á þann veg, að þeir borguðu lítið sem ekkert til almennra þarfa í landinu, jafnvel léku þann leik að taka lán í bönkum fyrir áramót til að auka vaxtabyrði sína til þess að minnka skattgreiðslur sínar. Í lögunum var einnig tekin upp sú regla, að einstaklingar, sem stunduðu atvinnurekstur, ættu ekki að geta fært á milli sinna einkaumsvifa og fjölskyldu sinnar annars vegar og fyrirtækis síns hins vegar fjármuni í því skyni að hagnast á því skattalega séð. Þær breytingar, sem hér eru gerðar á vaxtaákvæðum skattalaganna, eru innan þess ramma að halda þeirri grundvallarreglu, að slík tilfærsla fyrir einstakling í atvinnurekstri sé ekki möguleg.
Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir þá, sem að þessum lögum stóðu á sínum tíma, og þingheim allan, að láta þau koma til framkvæmda eins og þau voru hugsuð í upphafi, en fara ekki nú að tína út úr meiri háttar grundvallarreglur laganna og annaðhvort fresta framkvæmd þeirra eða ónýta þessar grundvallarreglur að meira eða minna leyti þannig að þjóðin geti ekki fengið að kynnast þessum skattalögum í heild sinni. Þess vegna harma ég það, að minni hl. n., þm. Eyjólfur Konráð Jónsson og Lárus Jónsson, skuli ekki hafa til að bera þann pólitíska kjark að lofa þessum skattalögum Matthíasar Á. Mathiesens að njóta sín. Mér finnst þetta sérkennileg undansláttarstefna. Hefði verið karlmannlegra af þeim að taka þátt í því með okkur hinum hér í deildinni að breyta ákvæðunum á eðlilegan hátt, eins og þær brtt. sem gerðar eru fela í sér, en láta ákvæðin að öðru leyti standa.
Auðvitað er alltaf hægt að reyna að afla sér stundarvinsælda með því að minnka skattbyrði fólks. En ég held að slík hljómsveitarverk af hálfu hluta stjórnarandstöðunnar eigi ekki að vera á kostnað þeirra grundvallarreglna skattalaganna sem þeir stóðu að á sínum tíma og var talið eitt helsta stolt ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar. Fyrst við ýmsir, sem sátum þó hjá við afgreiðslu þeirra skattalaga, höfum gengið í það verk að taka að okkur í samvinnu við aðra þingflokka, eins og ákveðið var veturinn 1979–1980, að láta þessi skattalög koma til framkvæmda, þá verð ég að segja það eins og er, að mér finnst það koma úr hörðustu átt að jafntraustir liðsmenn stjórnarandstöðuarmsins í Sjálfstfl. og Lárus Jónsson og Eyjólfur Konráð Jónsson og jafneinlægir aðdáendur ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar og þeir eru skuli verða meðal fyrstu manna til að hlaupast undan þessum merkjum.
Í brtt. meiri hl. er kveðið skýrar að orði um það, hvar innan skattalaganna sá frádráttarliður, sem upphaflega var í frv., til iðnaðarmann og hljóðfæraleikara, skuli koma í skattalögunum sjálfum. Meginhluti brtt. fjallar hins vegar um vaxtakerfið, eins og ég hef verið að lýsa, og ég vil fyrir hönd meiri hl. n. leggja til að brtt. verði samþykktar. Ég þakka nm. öllum fyrir ágætt samstarf í n. að framgangi þessa máls og vona að þingið beri gæfu til þess að afgreiða málið næstu daga, Ed í dag og að Nd. geti síðan tekið það til umfjöllunar strax, vegna þess að það er nauðsynlegt vegna framtalanna að almenningur í landinu fái að vita, hvernig þessum vaxtafrádrætti verður háttað, áður en framtalsfrestur rennur út.