30.10.1980
Sameinað þing: 12. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (244)
22. mál, félagsleg þjónusta fyrir aldraða
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég harma að 1. flm. þessarar góðu till., endurritaðrar till. Sjálfstfl. annars staðar frá, þarf að missa stjórn á skapi sínu þó að ég tali af þeirri reynslu sem ég hef persónulega vegna þess að ég vinn að þessum málum, eins og hún réttilega tók fram, bæði sem framkvæmdaaðili í byggingum fyrir aldraða og hugmyndasmiður að tillögum sem er unnið að af öllum stjórnmálaflokkum í mikilli einingu. Aldrei þessu vant eru allir sammála um að gera sitt besta, og aldrei hefur orðið ágreiningur um það sem gert hefur verið. Okkur eru vandamálin kannske betur ljós vegna þess að við störfum í borgarmálum. Við höfum bein sambönd við þá aðila sem þarf að hjálpa. Ég hef ekki upplýsingar frá neinum læknum. Ég byggi á eigin reynslu. Mér er kært að bjóða hv. þm. að fylgjast með mér, þó ekki væri nema einn dag, og vita hvort hún kæmist ekki á þá skoðun sem ég hef látið hér í ljós. Það gerði ekkert til, af því að hún er þm. Reykv., þó að hún eyddi einum degi með þessu fólki í Reykjavík og talaði síðan af eigin reynslu, en ekki með tilliti til reynslu annarra, lækna eða borgarfulltrúa.
Ég vil segja alveg eins og er, að það, sem hefur gert mér erfiðast fyrir í þessu starfi mínu sem ég gegni nú fyrir annan meiri hl. borgarfulltrúa en ég gerði áður, eru einmitt samskiptin við læknana og þeirra fáránlegu tillögur og hugmyndir, sem allar miðast að því einu að ná yfirráðum og gera að sjúkrastofnunum það sem á ekki að vera sjúkrastofnanir.
Í þjónustumiðstöðinni, sem Reykjavíkurborg setti á laggirnar á sínum tíma, eru 3 af 5 frá Félagsmálastofnuninni. Við erum að leysa félagsleg vandamál í borginni, en ekki sjúkrahúsavandamálið. Ég hef neitað því og ég hef mótmælt því, að bara vegna þess að maður verður gamall skuli hann ekki hafa sama aðgang að sjúkrastofnunum og aðrir, en það eigi að byggja einhver sérstök hæli fyrir sjúkt gamalt fólk. Hvað er að gerast í þjóðfélagi okkar og hvað meina flm. með þessari málsgrein í grg.?
„Vandamál öldrunarsjúklinga eru líka af margvíslegum öðrum toga spunnin en vandamál yngri sjúklingahópa, og má oft leysa þau ef til væri vel skipulögð heimahjúkrun eða öldrunardeildir, sem tækju aldraða sjúklinga til skammtímadvalar til endurhæfingar.“
Það er alltaf verið að finna leiðir til að bægja öldruðum sjúklingum frá þeim stofnunum, sem þeir eiga að fá aðhlynningu á, og senda þá heim. Þegar við tölum um að halda öldruðum heima fyrir eins lengi og mögulegt er erum við að tala um að reyna að halda þeim heima hjá sér, heima í sinu umhverfi. Við erum ekki að tala um það, sem læknarnir eru að gera, að senda þá heim til ættingja sem þeir hafa e.t.v. aldrei búið hjá og vilja ekki búa hjá. Eigi þeir ættingja skulu þeir ekki á sjúkrahúsið þó þeir þurfi á að halda. Það er þetta sem ég er að gera aths. við. Það er ókunnugleiki flm. sem gerir að verkum að þeir líta fram hjá þessu, en ekki hjartalagið því að það þekki ég og það þekkjum við allir af tillöguflutningi 1. flm. þessarar tillögu.
Ég vil taka undir það sem kom fram hjá hv. 7. landsk. þm., að það er ánægjulegt að undanfarin ár hafa dvalarheimili og elliheimili risið víða um landið. Í sumar, þegar ég átti þess kost að ferðast meira um landið en önnur sumur, fannst mér það lýsa hjartalagi forráðamanna byggðarlaganna þegar ég sá vel búið um gamla fólkið. Víðast hvar þar sem ég kom eru þetta nýjar byggingar. Þetta vandamál aldraðra hefur því hlotið það rúm í hugum sveitarstjórnarmanna víða um land sem það hefði átt að fá fyrir löngu. Og það á ekki síður við Reykjavík en aðrar sveitarstjórnir.
Ég bið hv. 1. flm. þessarar till. innilega afsökunar ef ég hef farið út fyrir eitthvað af því, sem mér er heimilt að tala um sem þm., með því að taka til máls um það mál, sem hér liggur fyrir, af þeirri einföldu ástæðu að þetta málefni og þessi málaflokkur er mér kær og hefur verið það síðan ég kom í borgarstjórn fyrir 10 árum. Ég vona að ég þurfi ekki að bið ja hana afsökunar á því að taka hér til máls og tala af reynslu, en ekki eftir upplýsingum, eins og hún segist gera sjálf, frá öðrum aðilum, en þar af leiðandi lítilli reynslu.
Málið er miklu stærra en svo, að við getum afgreitt það á skömmum tíma á Alþ. Ég fagna því — mér er alveg sama hvaðan það kemur — ef það er á leiðinni frv. frá núv. heilbrmrh. sem getur betrumbætt aðstöðu þessa gamla fólks, þeirra sem ég er með í huga, og það eru þeir öldruðu sjúku sem þurfa annaðhvort vist á heimili með góðri þjónustu eða á sjúkrahúsi. Ég fagna því, hver sem á í hlut og í hvaða pólitískum flokki sem hann kann að vera. Ég álit að löngu sé liðin sú tíð að góð mál gjaldi þess, að pólitískur andstæðingur leggi þau fram.