11.02.1981
Sameinað þing: 48. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2247 í B-deild Alþingistíðinda. (2450)
Umræður utan dagskrár
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Það ástand, sem nú er í fiskverðsmálum, er gersamlega óþolandi, ekki aðeins fyrir útgerðina, heldur sérstaklega fyrir sjómenn sem nú hafa í 43 daga ekki vitað hver laun þeirra eru raunverulega. Þetta skapar mikil vandræði varðandi uppgjör og annað er lýtur að útgerðinni. Það er ýmislegt sem miðað er við fiskverð, eins og kaup beitningamanna o.fl. Þeir eru á sama báti og sjómennirnir. Við þetta verður ekki unað öllu lengur. Hins vegar er það svo, að aldrei fyrr mun hafa dregist eins lengi að ákvarða fiskverð og einmitt núna.
Í áramótaboðskap forsrh. var tilgreint að enn ein verðstöðvun kæmi til. Það var nú almennt gert grín að þessu í landinu. En hitt er annað mál, að ástæðulaust er að efast um góðan vilja þeirra sem eru enn á ný að prédika verðstöðvun, sem er í raun ekkert annað en viðurkenning á því, að fyrri verðstöðvun, sem þeir þóttust framkvæma, hafi mistekist. Ég var að frétta af því, að 1. febr. hefðu öll veiðarfæri hækkað allverulega, t.d. hefðu net og tóg hækkað um 8% og blýteinar um 4%. Langar mig að spyrja að því, hvort þetta hafi verið leyft af ríkisstj., hvort þetta sé löglegt eða á hvern hátt þessum málum er varið. Það gengur náttúrlega ekki, að á meðan auglýst er verðstöðvun skuli verðhækkanir dynja yfir. Reyndar hefur það verið daglegt brauð að undanförnu, en það er mjög alvarlegt að á meðan ekki er ljóst hvert fiskverð er og á meðan verið er að reyna að leysa vanda útgerðarinnar skuli hægt að hækka allan tilkostnað eins og mönnum sýnist. Nú spyr ég sjútvrh. hvort leyft hafi verið að hækka veiðarfærin eins og gert hefur verið eða ekki og hvort það verður þá afturkallað — eða er verðstöðvunin ekki marktæk? — sem manni dettur að vísu helst í hug.
Ég tek undir það sem sagt var hér áðan, að það eina, sem eftir er sjáanlegt af áramótaboðskapnum og kemur til framkvæmda 1. mars, er kaupskerðingin ein, kauplækkunin ein, — ein sú hrikalegasta kauplækkun sem gerð hefur verið á síðari tímum.
Sjútvrh. tilgreindi í fyrri viku að fiskverðið hefði ekki komið vegna tilmæla frá sáttasemjara og samninganefndarmönnum sjómanna. Í framhaldi af því hafði ég samband við nokkra samningamenn úr samninganefnd sjómanna. Þeir komu alveg af fjöllum, ef svo mætti segja. Það má vera að einhverjir aðilar hafi gaukað þessu að sjútvrh., og ég vil ekki vera að vefengja hans orð, en eitt veit ég fyrir víst: að sjómenn í mínu byggðarlagi, sjómenn þeir sem ég þekki til, eru afar óhressir yfir þessum vinnubrögðum og hafa ekki óskað eftir því, að ákvörðun fiskverðs yrði seinkað.