11.02.1981
Sameinað þing: 48. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2255 í B-deild Alþingistíðinda. (2455)

187. mál, vegáætlun 1981--1984

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Það er ástæðulítið að fara mörgum orðum um þessa till. til þál. nú hér við 1. umr. Bæði á ég sæti í fjvn. og kem til að fjalla ítarlega um hana áður en hún verður afgreidd og eins höfum við sjálfstæðismenn lagt fram hér á hinu háa alþingi till. til þál. um stórhuga áætlun í vegamálum. Ég vil þó nota þetta tækifæri til að segja nokkur orð um þessa till. til þál.

Undanfarin ár, frá því 1978, má segja að umfjöllun og stefna ríkisstjórna, sem setið hafa, í vegamálum sé skólabókardæmi um hvað hefur gerst í ríkisfjármálum, skattamálum og framkvæmdum í landinu. Frá því 1978 hafa skattar á bensín aukist um 15 milljarða gkr. að raungildi á árinu 1981. Sáralítill hluti af þessu fé fer hugsanlega til framkvæmda á næsta ári, þó skal ég koma nánar að því, en fram að þeim tíma hefur engin einasta króna af þessari gífurlegu skattahækkun á bensíni farið til framkvæmda í vegamálum. Samtímis þessu hafa verið tekin aukin lán til að halda þó uppi þeim framkvæmdum á s.l. ári sem eru meðaltal áranna 1974–1978. Þannig má segja að þessi stefna sé nákvæmlega skólabókardæmi í því sem gerst hefur í ríkisfjármálum á undanförnum árum. Það er þetta sem hefur gerst: Skattar hafa stórhækkað, framkvæmdir á hinum ýmsu þýðingarmiklu sviðum hafa í besta falli staðið í stað og lán hafa verið tekin í stórauknum mæli til þess einungis að hjakka í sama farinu í framkvæmdum.

Í þessari till. til vegaáætlunar er gert ráð fyrir að verðbreytingar milli ára, frá árinu 1980 til 1981, verði einungis 42%. Hv. þm. vita að verðbólguhjólið hefur ekki snúist eins hratt nokkurn tíma í Íslandssögunni og síðan í sumar. Það er því alveg ljóst að þessar verðlagsforsendur standast því miður alls ekki. Þær eru algerlega út í hött. Á meðan hæstv. ráðh. veit ekki hvað hann er að tala um í verðlagsforsendum ákveðinna upphæða getur hann því miður ekki fullyrt, eins og hann gerði hér áðan, að þetta sé mesta heildarfjárveiting til vegamála síðan 1974 sem hér sé verið um að fjalla. Því miður getur orðið svo, að í ár verði ekki um meira framkvæmdamagn að ræða samkv. þessum tölum. Vegagerðarkostnaður fer áreiðanlega það mikið hækkandi frá því í fyrrasumar og fram á næsta sumar. Mér er nær að halda, án þess að hafa farið nokkuð nákvæmlega ofan í það, að þarna verði mjög mjótt á munum og vart náist að halda raunverulegu verðgildi í framkvæmdamætti milli áranna.

En það er fleira athyglisvert við þessa þáltill. Hún gerir ráð fyrir að markaðir tekjustofnar standi í auknum mæli undir framkvæmdum, og það er gert ráð fyrir að bensíngjald hækki nokkuð umfram verðlagsforsendur áætlunarinnar. Hér er sem sagt haldið áfram þeirri stefnu að leggja auknar álögur á bensín til að halda uppi framkvæmdum í vegamálum. Hæstv. ráðh. sagði, og gaf þá í skyn að það gæti að hans mati komið til greina, að lækka mætti þá aðra skatta á bensíni. Mæli hann þar manna heilastur. Ef þetta á að vera fjáröflunarleiðin sýnist mér að það verði að hverfa af þeirri hrikalegu skattastefnu á bensín sem verið hefur umfram verðlag til ríkissjóðs sjálfs á undanförnum árum. Ég held að því miður sé þessi stefna ekki fær að öðrum kosti.

Ég gat ekki annað en brosað í kampinn þegar hæstv. ráðh. sagði að með þessari till. til þál. væri hann að brjóta í blað í stefnunni í vegamálum. Það var nefnilega svo, að fyrir tveimur árum sat hæstv. núv. fjmrh. í stól hæstv. samgrh. og þá sagði hann nákvæmlega þessi sömu orð. (Fjmrh.: Það var líka rétt.) Í blaðið braut hann þannig, að með stóraukinni lántöku, sem hann þarf vonandi að borga sem fjmrh., tókst honum að hjakka í því fari sem hann hafði mest gagnrýnt á árunum 1974–1978 því að framkvæmdir voru með stóraukinni lántöku nokkurn veginn nákvæmlega þær sömu og á árunum 1974–1978. Það var nú blaðið sem hæstv. ráðh. braut í, og við skulum vona að hæstv. núv. samgrh. brjóti í það einhvern veginn öðruvísi að þessu sinni.