12.02.1981
Neðri deild: 51. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2276 í B-deild Alþingistíðinda. (2472)

189. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég skal ekki stæla við hæstv. fjmrh. um þessi atriði, en ítreka fsp. mínar. Fsp. mínar snerta framkvæmd skattalaga á þessu ári. Ég vil spyrja aftur og óska eftir að fá afdráttarlaus svör.

Í fyrsta lagi: Er það skilyrði til þess, að ríkisskattstjóri geti ákveðið mönnum frádrátt samkvæmt 1. gr. þessara laga, að um það sé samið í kjarasamningum? (Fjmrh.: Nei.) Það er ekki skilyrði. Það er gott að fá það fram, það er þó í áttina.

Mig langar í öðru lagi að fá fram hvaða sérstök rök liggja til þess, að þetta ákvæði skuli ekki ná til þeirra manna sem ekki eru í löggiltum iðngreinum. Ég sé að formaður Verkamannasambands Íslands er kominn inn, og ég geri ráð fyrir að hann taki undir það með mér, að það er undarlegt að ófaglærðir verkamenn skuli ekki sitja við sama borð og faglærðir varðandi frádrátt af þessu tagi. Ég sé enga ástæðu til að binda þetta við launþega í löggiltum iðngreinum. En þar sem ég veit af reynslu að þýðingarlaust er að koma með ábendingar til stjórnvalda til þess að reyna að fá málum framgengt, þá ætla ég að stilla mig um að flytja um þetta formlega brtt., nema óvæntur liðsauki kæmi frá einhverjum milli umræðna til að athuga þetta mál sérstaklega. Þá mun ég athuga um það.

Enn fremur vil ég ítreka það sem ég sagði áðan og raunar kom ekki nógu vel fram, að í reglugerð um sjómannafrádrátt er ekki fjallað um fiskimannafrádráttinn, 10%. Þá er spurningin: Gildir sama regla og áður, að netamenn, sem ráðnir eru þannig að launakjör þeirra fara eftir aflahlutum skipverja, geti vænst þess að fá 10% fiskimannafrádrátt með sama hætti og beitingamenn? Það stendur ekki í lögunum — ég skal lesa þetta fyrir hv. 3. þm. Austurl., sem ekki virðist hafa lesið lögin. Ég skal lesa það aftur. Hér stendur á bls. 12 í C-lið, ég les þetta aftur, með leyfi hæstv. forseta, til þess að ekkert fari nú á milli mála:

„Sjómannafrádrátt að fjárhæð 2700 kr. fyrir hvern dag sem lögskráður maður á íslensku skipi telst stunda sjómannsstörf. Sama regla skal gilda um hlutaráðna sjómenn og landmenn enda þótt þeir séu ekki lögskráðir.

Fjmrh. ákveður nánar í reglugerð hvernig dagafjöldi í þessu sambandi skal ákveðinn.

Sjómenn á íslenskum fiskiskipum, sem þurfa sjálfir að sjá sér fyrir fæði og njóta ekki fæðisgreiðslu frá áhafnadeild Aflatryggingasjóðs, skulu, auk þess sem um ræðir í 1. mgr. þessa töluliðar fá fæðisfrádrátt fyrir hvern úthaldsdag að mati ríkisskattstjóra.“

Þetta er um sjómannafrádráttinn. Sama regla skal gilda um hlutaráðna sjómenn og landmenn enda þótt þeir séu ekki lögskráðir.

Í reglugerð, sem út var gefin 27, júní 1980, ti1 þess að það komi einnig fram, stendur á hinn bóginn, með leyfi hæstv. forseta:

„Hlutaráðnir landmenn, þ.e. beitingamenn á línubát, skulu fá sjómannafrádrátt sem svarar til þeirra daga sem þeir njóta greiðslu fæðispeninga frá áhafnadeild Aflatryggingasjóðs. Frádráttur þessi tekur ekki til manna sem starfa í ákvæðisvinnu við beitingu. Þeim, sem starfa við landvinnu hjá útgerðinni, t.d. netavinnu, skal ekki heimill sjómannafrádráttur enda þótt um launakjör þeirra fari að öllu eða einhverju leyti eftir afkomu útgerðar eða aflahlutum skipverja.“

Þarna hefur hæstv. fjmrh. breytt þessum ákvæðum laganna, enda hefur framkvæmd sjómannafrádráttarins á skattstofunum breyst í samræmi við þessa reglugerð hæstv. fjmrh. (HÁ: Fjmrh. er þetta ekki heimilt samkv. lögum.) Fjmrh. er ekki heimilt að gera þetta samkv. lögum? (Gripið fram í.)

Herra forseti. Ég vek athygli á því, að það er komið upp merkilegt mál hér, þar sem helsti talsmaður ríkisstj. í skattamálum, hv. 3. þm. Austurl., fullyrðir hér úr sæti sínu að reglugerð fjmrh., dags. 27. júní 1980, þar sem settar eru takmarkanir varðandi hlutaráðna netamenn, brjóti í bága við gildandi lög og sé ekki heimil. Þetta er náttúrlega stórkostlegt mál og kallar á endurvinnslu skattframtala á s.l. ári, allra þeirra hlutaráðinna netamanna sem sviptir voru sjómannafrádrætti fyrir árið 1980. Ég sé ekki annað en óhjákvæmilegt sé að fjh.- og viðskn. Nd. komi saman milli 2. og 3. umr. og ræði þetta mál sérstaklega, hvernig fara skuli með sjómannafrádráttinn að þessu leyti.

Ég vil svo í framhaldi af þessu spyrja hæstv. fjmrh. að því beint: Lítur hann svo á, að fiskimannafrádrátturinn skv. tölul. 2 í kafla C, 30. gr. skattataga, nái einnig til hlutaráðinna landmanna á netabátum sem lögskráðir séu? „Þessi ákvæði eiga einnig við um hlutaráðna landmenn,“ stendur hér. Getur hæstv. fjmrh. ekki svarað því, hvort sú hugsun, sem lá að baki því að hann gaf út umrædda reglugerð sem einungis nær til sjómannafrádráttar, hafi verið sú, að 10% fiskimannafrádrátturinn skyldi áfram ná til hlutaráðinna netamanna? Það fæst ekki svar við þessu. En ég óska eftir því, herra forseti, að fjh.- og viðskn. deildarinnar verði gefið tækifæri til þess að hittast milli 2. og 3. umr. og ræða þau óvæntu viðhorf sem upp eru komin eftir að hv. 3. þm. Austurt. fullyrðir úr sæti sínu að reglugerð, sem hæstv. fjmrh. hefur gefið út varðandi sjómannafrádrátt, standist ekki lög.