12.02.1981
Neðri deild: 52. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2281 í B-deild Alþingistíðinda. (2479)

189. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég fór fram á það í máli mínu við 2. umr., að sá ágreiningur, sem upp er kominn milli skilnings talsmanns ríkisstj. í skattamálum, hv. 3. þm. Austurl., og framkvæmdarinnar á grundvelli reglugerðar núv. hæstv. fjmrh., yrði ræddur á milli umræðna, við því hefur ekki verið orðið. Ég leyfi mér að líta svo á eigi að síður — og skírskota í þeim efnum til ummæla hv. 3. þm. Austurl. áðan — að deildin telji að með orðalaginu: „sama regla skal gilda um hlutaráðna s jómenn og landmenn enda þótt þeir séu ekki lögskráðir“ í 1. lið C-kafla 30. gr. laga um tekju- og eignarskatt og sömuleiðis í tl. 2, sé átt við landmenn á netabátum, þegar svo stendur á sem kveðið er á um í lögum, þrátt fyrir reglugerð þá sem fjmrh. gaf út 27. júní s.l., með öðrum orðum þessi frádráttur skuli ná til hlutaráðinna landmanna, bæði á línubátum og netabátum.

Ég leyfi mér að líta svo á, að sá sé skilningur þessarar hv. deildar, og vænti þess, að hæstv. fjmrh. sendi skattstofunum leiðbeiningu um það.