12.02.1981
Neðri deild: 52. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2283 í B-deild Alþingistíðinda. (2485)
189. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Í tilefni af þeirri einkennilegu umræðu, sem hér hefur farið fram, vil ég aðeins minna á að það er ekki hlutverk Alþingis að túlka lög, það gera dómstólar. Hér á að setja lög. Einstakir þm. geta ekki staðið hér upp og lýst yfir: Þetta er skilningur minn og ég tel það vera skilning Alþingis. Það skiptir ekki máli. Það eru aðrir sem eiga að túlka lögin.