12.02.1981
Neðri deild: 52. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2283 í B-deild Alþingistíðinda. (2486)

189. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég er nú ekki með úrskurði ríkisskattanefndar fyrir framan mig, en til þess að rifja upp fyrir hv. 4. þm. Reykv. ýmislegt, sem skeð hefur, vil ég minna hann á að ákvæði um að áætla mönnum tekjur, þar sem gert var ráð fyrir því í tekjustofnalögum sveitarfélaga að skattstjóri skyldi áætla mönnum tekjur voru af ríkisskattanefnd túlkuð með hliðsjón af umræðum á Alþingi, og þau ummæli, sem vitnað var til í því sambandi, voru ummæli Björns Jónssonar, þáv. félmrh. Ég vil aðeins rifja þetta upp að gefnu tilefni og einnig benda á það, að meðal þeirra gagna sem dómstólar hafa við túlkun laga eru einmitt umræður á Alþingi og einnig grg., þannig að ég skildi ekki aths. hans. Ég held líka að það sé alveg ljóst, að hverjum þm. er heimilt að segja það í ræðu hér — og eðlilegt að hann skýri frá því — hver sé túlkun hans á viðkomandi máli, hvað hann álítur um það. Og eins og fram kom hér áðan stóð hæstv. fjmrh. upp og lýsti annarri skoðun á málinu, þannig að þar er ekki um neinn skilning að ræða. Að því leyti er það rétt hjá þessum hv. þm., að engin einhliða túlkun verður dregin af umræðunum.

En sem sagt, þessi hv. þm. getur rifjað upp úrskurði ríkisskattanefndar varðandi þau tekjustofnalög sem fyrri vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar sendi frá sér, og þá mun hann komast að raun um að það, sem sagt var um málið hér á Alþingi, réð úrslitum um hvaða skilning ríkisskattanefnd lagði í viðkomandi ákvæði.