03.11.1980
Neðri deild: 9. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (249)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þannig stendur á, að tveir hv. þdm hafa kvatt sér hljóðs utan dagskrár. Ég vil taka það fram, að ég er eindregið þeirrar skoðunar, að það eigi að halda fast við þann hefðbundna rétt, að menn fái orðið utan dagskrár um mikilvæg mál, en þó einkum og sér í lagi brýn mál, sem ekki þolir bið að rædd séu, því ella er ætlast til að þau gangi hina hefðbundnu fyrirspurnarleið í Sþ.

Enn fremur vil ég minna hv. þdm. á að um fsp. í Sþ. hafa umr. mjög verið takmarkaðar og skornar niður eins og menn þekkja. Slíkt er ekki til siðs þegar umr. utan dagskrár fara fram. Allt að einu bið ég hv. þdm. að hafa þetta til hliðsjónar, enda hygg ég að ég muni hasta á ef mér sýnist sem um málalengingar verði að tefla.