16.02.1981
Neðri deild: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2285 í B-deild Alþingistíðinda. (2493)
5. mál, barnalög
Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Ég leyfi mér að mæla hér fyrir nál. allshn. um frv. til barnalaga. N. leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem koma fram á þskj. 409.
Lög þessi eru viðamikil og fjalla um viðkvæm málefni. Hætt er við að seint verði allir á eitt sáttir um efni þessara laga. Hitt má þó ljóst vera, að sem heild er frv. þetta til mikilla bóta.
Fjölmiðlar hafa talað heldur gáleysislega um þetta frv. og einstakir þm. talið sér til framdráttar að auka á vanþekkingu annarra í þessu máli.
Sifjalaganefnd undir forustu Ármanns Snævars hefur unnið mikið og gott starf, en breytingar frá hendi nefndarinnar við frv. hafa komið fram eftir að þing kom saman á þessu ári. Einnig hafa umsagnir frá öðrum aðilum leitt til þess, að allshn. leggur til breytingar. Eru þær allar með samþykki sifjalaganefndar nema þær smávægilegustu, sem ekki þótti nauðsyn að bera undir sifjalaganefnd. Þá vil ég víkja að helstu breytingunum.
N. leggur til að 5. gr. verði einfölduð. Hér er farið að ráðum Stefáns Más Stefánssonar, lagaprófessors við Háskólann, og sifjalaganefnd hefur fallist á þá brtt. sem þar er lögð fram. Taldi prófessorinn að dómari hefði ekki nægilega frjálsar hendur til að meta sönnunargögn og það gæti leitt til rangs faðernis ef greinin væri óbreytt.
Orðalagsbreytingar 8. gr. eru frá sifjalaganefnd komnar svo og attar breytingar aðrar en við 17. gr., 23. gr., 4. mgr. 37. gr. og 42. gr.
Nefndin varð ásátt um að mæla með því að miða framlag til menntunar og starfsþjálfunar við 20 ára aldur.
Í frv. hafði verið miðað við 24 ára aldur. Í bréfi frá einstæðum foreldrum kom fram að þeir voru hlynntir því að miðað yrði við 20 ára aldur, en vildu aftur á móti að þar yrði skylda. N, leggur til að miðað sé við 20 ára aldur, en að öðru leyti verið greinin óbreytt. Sú hugsun, sem er þarna að baki, er að þeir, sem stunda nám eftir þennan aldur, eiga flestir aðgang að námslánum, og svo hitt, að við þennan aldur verða menn lögráða.
Ákvæði 23. gr. þóttu nm. of þröng, en þar er fjallað um varðveislu fúlgufjár, þ.e. ef meðlagsgreiðslur eru inntar af hendi í eitt skipti fyrir öll. N. leggur því til rýmkun á geymslumöguleikum.
Við 37. gr. leggur n. til þá efnisbreytingu, að ákvæði greinarinnar verði gagnkvæm, þ.e. að ef móðir hefur afsalað sér til föður forræði yfir barni þeirra getur hún, eins og við leggjum til að greinin verði, óskað eftir því, að hún fái aftur yfirráðarétt yfir barninu ef faðirinn hefur ákveðið að ættleiða barnið. Okkur var ljóst að það væri aðeins um fágæt undantekningartilfelli þar að ræða sem slíkt gæti átt sér stað, en töldum samt tvímælalaust rétt að móðirin hefði þennan möguleika undir þeim kringumstæðum.
Við 42. gr. leggjum við til smábreytingu, þ.e. að niður falli orðin „eða annarra lasta“. Það kom fram í umræðum í n. að það bæri ekki síður að líta á drykkjuskap sem sjúkdóm og n. sem slík vildi ekki kveða upp neinn dóm í þeim efnum, en telur að andi greinarinnar sé nánast óbreyttur, en leggur til að henni verði breytt á þann veg að orðin „eða annarra lasta“ verði niður felld.
Í umræðum um 25. gr. kom það fram sem sameiginlegur skilningur nm. að valdsmaður úrskurði því aðeins að faðir eigi að greiða framfærslueyri með konu að viðkomandi kona hafi ekki fullt fjárframlag eftir öðrum leiðum tryggingakerfisins. Þar var lagt til af hálfu sifjalaganefndar að orðin „barnsfararkostnað og“ féllu niður.
Ég ætla ekki að eyða fleiri orðum í þessa framsögu, en vona að deildin sjái sér fært að afgreiða þetta mál þannig að frv. verði að lögum á þessu þingi, en eins og menn vita er þetta frv. gamall kunningi hér í þinginu og vonandi hefur það fengið þá slípun sem dugir til þess að það fari í gegnum þingið.