16.02.1981
Neðri deild: 53. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2291 í B-deild Alþingistíðinda. (2500)
209. mál, tollskrá
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég fagna því að þetta stjfrv. er komið fram. Það er ástæða fyrir mig að fagna því sérstaklega, því að ég hef beitt mér fyrir því á síðustu þingum að fá leiðréttingu á þessu máli fyrir öryrkja. Það var fyrst á þingi 1979 sem samþ. var samkv. frv. frá okkur þremur þm. Framsfl. að leiðrétta niðurfellingu gjalda þessara miðað við verðlagsþróun sem þá var. Á Alþingi 30. apríl 1980 var enn fremur samþykkt að færa til verðlags þessa eftirgjöf. En það var ljóst að gera þurfti meira til að þurfa ekki á hverju þingi í verðbólguþjóðfélagi að bera fram breytingu á lögum til að leiðrétta svo sjálfsagt mál fyrir þá sem þurfa að fá þessa eftirgjöf.
Mér sýnist í fljótu bragði að flest þau atriði, sem barist hefur verið fyrir á undanförnum árum að leiðrétta þyrfti, hafi náð fram að ganga í þessu stjfrv. og þess vegna sé nauðsynlegt að hraða afgreiðslu þess nú á þingi þar sem komið er að þeim tíma að úthlutun fer fram.
Ég fagna því sérstaklega að fjölgað hefur verið úr 400 í 500 bifreiðar. Það er mjög mikilvægt, því að eins og hér hefur komið fram hefur aukinn þrýstingur komið fram á þetta atriði frá samtökum öryrkja. Eins og umsóknir hafa borið með sér síðustu 2–3 árin hefur nauðsyn á fjölgun bifreiða verið augljós.
Ég ætla ekki að fjölyrða meira um þetta mál Ég fagna því, að þetta er komið fram, og ég vænti þess, að hv. Alþingi sjái um að afgreiða þetta mál fljótt til þess að það komi að þeim notum sem að er stefnt.
En áður en ég lýk máli mínu vil ég leggja áherslu á síðustu mgr. í 1. gr. frv. Þar er talað um heimild ráðuneytisins til að lækka eða fella niður fyrir það fólk, sem um getur, gjöld af gervilimum sem ekki verða gerðir hér á landi, svo og áhöldum og hjálpartækjum sem sérstaklega eru gerð með tilliti til þarfa þess og henta ekki öðru fólki. Það er ákaflega mikilvægt að fjmrn. eða þeir, sem fara með þessi mál, skilji þessa grein þannig, að það eigi að vera fyrirhafnarlítið fyrir þetta fólk að fá þessa eftirgjöf. Reynslan hefur sýnt til þessa, að þetta hefur valdið talsverðum erfiðleikum fyrir fatlað fólk og óþarfasnúningum í sambandi við svo sjálfsagt mál. Ég vænti þess að hæstv. fjmrh. sjái um að þeir aðilar í fjmrn., sem um þetta fjalla, vinni að því, eftir að frv. verður að lögum, að þetta atriði verði gert einfalt í meðferð fyrir það fólk sem á slíkum tækjum þarf alltaf að halda. Kemur til greina að setja ákvæði í tollskrá þannig að gervilimir og hjálpartæki séu algerlega tollfrjáls.